Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 57
Eitt mikilvægasta sambandið sem við eigum og ættum að rækta vel er sambandið við
okkur sjálf. Hugurinn er öflugt
fyrirbæri og jákvætt sjálfstraust
getur fleygt okkur jafn langt og
lélegt sjálfstraust getur haldið aftur
af okkur.
Hvernig kemur þú fram við
sjálfa/n þig? Allt sem við veitum
athygli vex og dafnar. Íhugum því
vel að hvaða þáttum í fari okkar
við beinum orku okkar og athygli.
Óraunhæfar kröfur til okkar sjálfra
og fullkomnunarárátta ýta undir
lélegt sjálfstraust.
Hugum að því hvernig við tölum
við okkur sjálf þegar erfiðlega
gengur. Í stað gagnrýni spyrjum
frekar: Hvernig kæmi ég fram við
vin minn í sömu sporum? Munum
að allir gera mistök og það er hluti
af lífinu að stíga feilspor.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Allir búa yfir hæfileikum sem
eiga að geta blómstrað og það er
mikilvægt að veita þessum þáttum
athygli. Í hverju liggja styrkleikar
þínir? Hvað gerir þú vel? Hvað er
það sem gerir þig að góðum vini,
systkini eða maka? Prófaðu að
takast á við nýjar áskoranir, setja
þér raunhæf markmið og leyfa
þér að finna fyrir stolti þegar litlum
áföngum er náð.
Fólk með lítið sjálfstraust á
gjarnan erfitt með að taka við
hrósi. Taktu eftir því hvort sjálf-
virka niðurrifið fer af stað þegar
þér er hrósað, staldraðu við þá
hugsun og skoðaðu hana. Falleg
einlæg orð frá öðrum næra sjálfs-
traustið og það er mikilvægt að
hleypa þeim orðum inn á við.
NIÐURSTAÐA: Veittu styrk-
leikum þínum athygli, komdu
fram við sjálfan þig eins og þú
myndir koma fram við þá sem
þér er annt um og mundu að
hafa markmið þín raunhæf.
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Hvernig efli ég
sjálfstraustið?
Heilsan
okkar
Edda Björk
Þórðardóttir
doktor í lýðheilsu-
vísindum svarar
heilsuspurning-
um lesenda.
FÓLK MEÐ LÍTIÐ
SJÁLFSTRAUST Á
GJARNAN ERFITT MEÐ AÐ
TAKA VIÐ HRÓSI.
NÝR 4BLS
BÆKLINGUR
MERKIVÉL
Hún er komin aftur ný og endurbætt
1.490
NÝ ÚTGÁFA Eitt eintaká mann!
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF TÖLVUM OG TÖLVUBÚNAÐI
40
AÐEINS
EINTÖK
PS4 SLIM 1TB
39.990
FIFA18
8.990
5. O
któber 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
5. O
któber 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
5. O
któber 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
Sjálfvirk
Árekstrar
vörn
Næsta
Kynslóð
LI-FI
Einstök
Spaða
Tækni
Allt að
50km
hraði
LEIKJADRÓNI
Star Wars leikjadróni 3 gerðir
34.990
Sem nötrar þegar dróni er
skotinn, hljóð effectar og
Star Wars tónlist, festing
fyrir síma með Appi fyrir Android eða IOS.
MÖGNUÐFJARSTÝRING
Í þættinum Ísland í dag í kvöld fer
Vala Matt í leiðangur og talar við
innanhússhönnuðinn Höllu Báru
Gestsdóttur og Rut Káradóttur innan-
hússarkitekt og fræðist um helstu
innanhússtilhneigingar vetrarins.
Halla Bára segir áhorfendum meðal
annars frá því hvaða litir hafa verið
mest áberandi og vinsælir innanhúss
og deilir í leiðinni nokkrum trixum
um hvernig við getum breytt og bætt
heimilið með auðveldum og ódýrum
aðferðum. „Það er spennandi að sjá
hvað hægt er að gera á ódýran og ein-
faldan hátt til að ná fram skemmti-
legri stemningu og
n o t a l e g h e i t u m á
heimilinu. Til dæmis
sýnir hún okkur koll-
inn sem er inni á baði
sem fær svo nýtt hlutverk
í stofunni. Halla segir okkur
frá því hvernig pastellitir hafa verið
vinsælir en að karlmennirnir neiti að
nota þá sem var dáldið fyndið. Hún
sýnir okkur líka hvernig dökkir litir
hafa verið óhemju
vinsælir að undan-
förnu,“ segir Vala
sem komst að því
að blágrái liturinn
hefur verið einn sá allra
vinsælasti í vetur. „Svo er
farið til Rutar Káradóttur
innanhússarkitekts og hún
segir okkur frá nokkrum
innanhúss-trixum.“ – gha
Dökkir litir óhemju vinsælir undanfarið
Dökk veggmálning hefur verið aðal-
málið undanfarna mánuði.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÞAÐ ER SPENNANDI
AÐ SJÁ HVAÐ HÆGT
ER AÐ GERA Á ÓDÝRAN OG
EINFALDAN HÁTT TIL AÐ
NÁ FRAM SKEMMTI-
LEGRI STEMNINGU.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I ÐL Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 43F I M M T U D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7