Fréttablaðið - 05.10.2017, Síða 58
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lögum með hljómsveitinni Of
Monsters and Men hefur nú verið
streymt yfir milljarð sinnum á tón-
listarveitunni Spotify. Samkvæmt
upplýsingum frá Símanum, sem
er í samstarfi við tónlistarveituna,
mun Spotify senda
frá sér tilkynningu
um þetta í dag.
Þar er haft eftir
hljómsveitinni.
„V i ð t r ú u m
því varla að
v i ð s é u m
komin með
yfir milljarð
spilana á Spot-
ify. Vávává!
Takk fyrir að
hlusta á okkur
á meðan við
vinnum að nýrri
tónlist.“
Lagið Little Talks
er vinsælasta lagið
með hljómsveitinni, Dirty Paws fær
silfrið og Mountain Sounds hlýtur
bronsið. Mest er hlustað á hljóm-
sveitina í Bandaríkjunum og Bret-
landi en Brasilía kemur í þriðja sæti.
Íslendingum erlendis þykir það
ekki lengur tiltökumál að hlusta
á hljómsveitina þegar hún
heyrist í
ú t v a r p i
e ð a í
verslunar-
miðstöðum og
eru nánast hættir
að láta vita á sam-
félagsmiðlum að
slíkur atburður
hefur átt sér stað.
OMAM streymt milljarð sinnum
Hljómsveitin Of
Monsters and Men er
svo sannarlega búin
að „meika“ það.
10 VINSÆLUSTU LÖGIN
1. Little Talks
2. Dirty Paws
3. Mountain Sounds
4. King & Lionheart
5. Crystals
6. Love love love
7. Slow and Steady
8. From Finner
9. Six Weeks
10. Your Bones
OMAM eftir löndum
1. Bandaríkin
2. Bretland
3. Brasilía
4. Kanada
5. Ástralía
6. Þýskaland
7. Mexíkó
8. Svíþjóð
9. Holland
10. Ítalía
Ég vildi senda plötuna, sem ber heitið Shape 1, frá mér á Íslandi af því að hér líður mér eins og heima hjá mér,“ segir kanadíski tónlistar-
maðurinn Denique sem sendir frá
sér plötu á morgun. „Ísland er fyrsti
áfangastaðurinn sem ég hef ferðast
til þar sem mér fannst ég vera inni-
lega velkominn. Þar sem ég gat verið
með svartan varalit án þess að finn-
ast ég þurfa að skammast mín og án
þess að verða fyrir áreitni. Svo fannst
mér eðlilegt að gefa plötuna út á
Íslandi þar sem ég fékk mikinn inn-
blástur við gerð hennar frá íslensku
umhverfi.“
Denique hefur ferðast víða og
kynnst fjölbreyttum samfélögum.
En orkan á Íslandi heillar hann og er
í sérstöku uppáhaldi.
„Ég bjó í Ástralíu í eitt ár, ferðaðist
um Evrópu og dvaldi um tíma í Botsv-
ana í Afríku. Af öllum stöðum sem ég
hef heimsótt þá er fólk hvað opnast
í Reykjavík. Hvað varðar Kanada þá
er það yfirleitt þannig að því stærri
sem borgin er, því auðveldara er að
vera maður sjálfur. En eftir því sem
samfélögin verða minni, því síður
er samþykkt að maður sé öðruvísi
að mínu mati. Ég sjálfur kem úr litlu
samfélagi og varð oft fyrir höfnun í
tónlistar- og listasamfélaginu. Þess
vegna er það svo góð tilbreyting að
finna fyrir stuðningi frá fámennu
samfélagi, eins og Íslandi. Allir sem
ég hef hitt á Íslandi hafa tekið mér
svo vel. Það er einhver innri kraftur
sem margir Íslendingar búa yfir og
það hefur veitt mér innblástur til að
vera staðfastur í því sem ég tek mér
fyrir hendur.“
Denique dreymir um að búa á
Íslandi í framtíðinni. „Núna er ég
bara í tveggja vikna heimsókn hérna,
og hef áður varið tveimur sumrum
hérna. Og ég myndi elska að búa
hérna til frambúðar, það er draumur
og markmið sem ég hef sett mér. Ég
veit að það mun gerast í framtíðinni.“
Denique hefur tekist að búa sér til
öflugt tengslanet hér á landi og það
þykir honum magnað. „Á mínum
yngri árum hefði mér aldrei dottið
í hug að ég myndi einhvern tímann
fá tækifæri til að dvelja í Reykjavík,
eignast vini hérna og fagna útgáfu
hljómplötu hérna.“ gudnyhronn@365.is
Finnur að hann er
innilega velkominn
Kanadíski tónlistarmaðurinn Denique mun á morgun senda frá sér
hljómplötu. Hann vildi vera hér á landi þegar platan kemur út því Ís-
land á sérstakan stað í hjarta hans og hann dreymir um að búa hér.
Platan Shape 1
hefur að geyma 15 lög
kemur út á morgun
er að miklu leyti innblásin af
Íslandi
hverju lagi mun fylgja mynd-
band
lög plötunnar og myndböndin
má nálgast á www.denique.ca
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
27.09.17 - 10.03.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Með lífið að veði
Yeonmi Park
Gagn og gaman
Helgi E. / Ísak J.
Stúlkan sem gat ekki fyrigefið
David Lagercrantz
Kanínufangarinn
Lars Kepler
Án tillits
Eydís Blöndal
Ég veit hvar þú átt heima
Unni Lindell
Litla bókabúðin í hálöndunum
Jenny Colgan
Iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
Independent People
Halldór Laxness
The Sagas of The Icelanders
Ýmsir höfundar
Denique segir orkuna á Íslandi henta sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK