Fréttablaðið - 07.11.2017, Side 10

Fréttablaðið - 07.11.2017, Side 10
BANDARÍKIN Maðurinn sem myrti 26 í baptistakirkju í Sutherland Springs í Texas, Bandaríkjunum, í gær var 26 ára hvítur karlmaður. Maðurinn, Devin Patrick Kelley, hafði þjónað í flugher Bandaríkjanna en var rekinn úr hernum árið 2014 eftir að upp komst um að hann hefði ráðist á barn sitt og konu. Tilefni árásarinnar er enn óljóst en maðurinn fannst látinn í bíl sínum skammt frá kirkjunni. Kelley gekk inn í kirkjuna um hádegi að staðartíma á sunnudag og hóf skothríð. Hann var svartklæddur og í skotheldu vesti, vopnaður sjálf- virkum riffli. Um 400 manns búa í Sutherland Spring og eru þeir 26 sem Kelley myrti því drjúgur hluti bæjar- búa. Því næst flúði hann vettvang á bíl sínum en tveir karlmenn eltu hann. „Árásarmaðurinn flúði á bíl sínum. Maður kom upp að mér og sagði mér að við yrðum að elta hann,“ sagði Johnnie Langendorff, annar mann- anna, við staðarmiðilinn KSAT í gær. Langendorff var staddur í bíl sínum á gatnamótunum þar sem kirkjan stendur og maðurinn sem um ræðir kom upp að bíl hans með byssu sína. „Hann útskýrði snögglega hvað gerð- ist, steig upp í bílinn og ég vissi að við þyrftum að keyra af stað.“ Því næst sagði Langendorff að þeir hefðu ekið á um 150 kílómetra hraða á eftir Kelley þar til árásarmaðurinn missti stjórn á bíl sínum og bíllinn stöðvaðist. Kelley lést eftir að hafa orðið fyrir skoti en samkvæmt lög- reglu er óljóst hvort hann svipti sig lífi eða hvort annar mannanna tveggja hafi skotið hann til bana. Nokkur skotvopn fundust í bílnum. „Við leiddum lögregluna að honum. Allir aðrir voru á leiðinni í kirkjuna,“ sagði Langendorff en tví- menningarnir hafa verið lofaðir í bak og fyrir vestanhafs. Ekki hefur þó verið greint frá því hver hinn maður- inn er. Á Facebook-síðu Langendorff hefur fjöldi fólks lýst yfir aðdáun sinni á honum og þakkað honum fyrir. „Guð blessi þig, bandaríska hetja,“ segir í einum skilaboðunum. „Kærar þakkir Johnnie frá Phoenix, Arizona. Þú hjálpaðir til við að bjarga fjölda mannslífa,“ segir í öðrum. Viðbrögðin við árásinni hafa verið misjöfn, eins og tíðkast þegar skot- árásir sem þessi eru gerðar í Banda- ríkjunum. Donald Trump Banda- ríkjaforseti sagði til að mynda að byssur væru ekki vandamálið. „Það eru mikil geðheilbrigðisvandamál í landinu okkar, þetta er ekki byssu- tengt,“ sagði forsetinn. Chris Murphy, öldungadeildar- þingmaður Demókrata, var ekki á sama máli. „Áður en kollegar mínir fara að sofa í kvöld þurfa þeir að hugsa um hvort stuðningur þeirra við byssuiðnaðinn sé virði þess blóð- flæðis sem streymir um gólf banda- rískra kirkna, grunnskóla og  kvik- myndahúsa,“ sagði þingmaðurinn. Árásin markar annan mánuðinn í röð þar sem tugir deyja í einni skot- árás. 58 voru myrtir í skotárás í Las Vegas í byrjun október. thorgnyr@frettabladid.is Hafði áður ráðist á konu sína og barn Alls fórust 26 í skotárás í Texas. Morðinginn hafði þjónað í flughernum en verið rekinn fyrir líkamsárásir. Tveir menn eltu hann uppi og eru hylltir sem hetjur. Stjórnmálamenn deila enn um breytingar á byssulöggjöf en Bandaríkjaforseti segir byssur ekki vandamálið. Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, huggar bæjarbúa á kertavöku þar sem fórnarlambanna var minnst. NORDICPHOTOS/AFP Devin Patrick Kelley. TILBOÐ 30 Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll Kletthálsi 13 · hnb.is · 590 5040 Ford Fiesta Trend 1.0 1.590.0002015 24 Jeep Renegade Limited 3.990.0002016 16 3.590.000 TILBOÐ VW UP TakeUP! 1.0 1.150.0002014 57 980.000 TILBOÐ Skoda Octavia Ambition 1.6 TDI MT 2.890.0002015 36 2.590.000 TILBOÐ VW Polo Trendline 1.0 MT 2.140.0002016 9 1.950.000 TILBOÐ VW Passat Variant Comfortline 2.0 TDI 2.990.0002014 82 2.640.000 TILBOÐ Mini One 1.990.0002013 37 1.690.000 TILBOÐ Chevrolet Captiva 2.2 7manna leður og lúga 2.790.0002012 104 2.380.000 TILBOÐ 1.390.000 TILBOÐ Fiat 500 Lounge AT 2.440.0002017 2 2.140.000 TILBOÐ Fleiri tilboðsbílar og myndir á netinu: hnb.is Tilboðsbílar í tugavís. 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.