Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1974, Blaðsíða 24
fjölgandi, vita, að þar er notalegt að vera. Listamenn sýna
þar gjarnan verk sín í litlum en notadrjúgum sal með vand-
aðri lýsingu. Bæði þeir og gestir þeirra hafa fundið þessa
sömu notakennd. Þetta var líka eitt hið fyrsta, sem systurn-
ar minntust á. Og þeim kom það ekki á óvart, þær þekktu
þetta af sér og sínum, en það gladdi þær, að „vandalausum"
skuli á sama veg farið.
Þegar Hamragarðar komu til skjalanna 1941, var Sam-
vinnuskólinn orðinn rífra tveggja áratuga gamall. Hið al-
fyrsta starf hans fór fram í tveimur herbergjum í íbúð
Jónasar og Guðrúnar að Skólavörðustíg 35 í Reykjavík,
í húsi sem stendur enn, þegar þetta er ritað, en hefur látið
æði nokkuð á sjá hin síðari ár. Jónas segir í bókinni „Sam-
vinnuskólinn 30 ára“, að bæði herbergin hafi verið „hituð
með einum móofni, og þótti mega una við þann aðbúnað."
Þetta var „Frostaveturinn mikla“, 1918-19.
„Haustið 1919 tók Samvinnuskólinn til starfa sem tveggja
vetra skóli“, segir Jónas ennfremur í þessari sömu grein.
„Voru nemendur misjafnt undirbúnir og luku þeir sér af
á einum vetri, sem meiri höfðu skólagönguna. Litið var
um húsrúm í bænum og erfitt um kennsluherbergi. Iðn-
skólinn átti þá hús sitt við Lækjargötu, en kennsla iðnnema
fór aðallega fram á kvöldin, en nokkur húsakostur auður
fyrri hluta dags. Leituðu forráðamenn Samvinnuskólans
til eigenda Iðnskólans og fengu þar leigðar tvær kennslu-
stofur fyrri hluta dags. En engin aðstaða var þar fyrir
nemendur Samvinnuskólans á öðrum tímum, þvi að þá
þurftu eigendur hússins að hafa af því full afnot til sinna
þarfa. Þróun samvinnumálanna var svo hraðfara, að búið
var að ákveða skólastofnun, án þess að í fyrstu hefði verið
hægt að tryggja ákveðið húsnæði."
Síðan segir Jónas frá því, að samvinnumenn hafi um
þessar mundir haldið kaffikvöld í Reykjavík nokkuð reglu-
lega. Á einum slíkum fundi var rætt um húsnæðismál Sam-
vinnuskólans. Kom þá fram, að á Akureyri myndi til sölu
vel viðað hús, sem hentað gæti til flutnings suður og
orðið framtíðarhúsnæði fyrir skólann. „Menn urðu hrifn-
20