Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 4
Ég vil ekki vera í
heilbrigðiskerfi þar
sem heilbrigðisstéttin er full
angistar því þá fyrst byrja
mistökin.
Einar Gautur
Steingrímsson,
verjandi Ástu
Það sem við viljum
að komi út úr
þessu er að það verði
fundin ákveðin leið,
hvernig eigi að taka á svona
alvarlegum
atvikum í
heilbrigðis-
þjónustu.
Ólafur Skúlason,
formaður Félags
hjúkrunarfræðinga
Farsímatrygging
Hversu leiðinlegt væri ef eitthvað
helltist yr nýja símann þinn?
Söluaðilar: Nova og Síminn
Viss ehf · Ármúla 7 · sími 445 4500 · www.viss.is
efnahagsmál Greiningardeild Arion
banka spáir 30 prósenta verðhækkun
að nafnvirði á íbúðarhúsnæði fram til
ársins 2018. Verðhækkanir hafa verið
umfram verðlag í fjögur ár. Hins vegar
sjá greiningaraðilar ekki teikn á lofti
um bólumyndun. Eftirspurn á leigu
markaði er að dvína og fleiri eru að
kaupa eigið húsnæði. Þetta var meðal
þess sem kom fram á morgunfundi
Arion banka um húsnæðismarkaðinn
í gær.
Fram til 2018 spáir greiningardeild
in 14,7 prósenta raunverðshækkun á
íbúðarhúsnæði. Fram kom á fund
inum að síðustu tíu ár hefur hús
næðismarkaðurinn ekki verið í jafn
vægi á Íslandi. Spáð er áframhaldandi
hækkunum á húsnæðisverði fram til
ársins 2016 en svo muni hægja á verð
hækkunum þegar nýbyggingar bætast
í framboðið árin 2017 og 2018. Ýmsir
óvissuþættir, meðal annars áhrif hús
næðisfrumvarpa og önnur opinber
inngrip, ferðamenn og fleira, geta haft
áhrif á húsnæðismarkaðinn.
Fram kom í ávarpi Konráðs S. Guð
jónssonar, sérfræðings hjá greiningar
deildinni, á fundinum að augljós bóla
hefði verið á húsnæðismarkaði frá
árinu 2004 fram til hrunsins árið 2008.
Hins vegar séu ekki teikn á lofti um
bólumyndun nú. Kaupmáttur ráðstöf
unartekna hafi hækkað í svipuðum
takti og fasteignaverð síðustu ár.
Hlutfall heimila á leigumarkaði
heldur áfram að lækka. Leigjendum
á almennum markaði fjölgar lítillega,
en leigjendum með sérstök úrræði
fækkar. Kaupsamningar eru aftur
orðnir fleiri en leigusamningar, í fyrsta
sinn síðan 2007. Stærsti hópurinn á
Íslandi er eigendur með húsnæðis
lán, 62 prósent, leigumarkaðurinn er
22 prósent en 16 prósent búa í skuld
lausri eign.
Greiningardeildin spáir því að fólk
eigi frekar eftir að flytjast af leigu
markaði næstu árin miðað við horfur
í hagkerfinu. Talið er að fjárfestingar
áætlanir í íbúðum á höfuðborgar
svæðinu á næstu árum muni duga
til að mæta þörfinni fram til ársins
2018. – sg
Segja ekki teikn á lofti um bólumyndun á húsnæðismarkaði
Dómsmál Héraðsdómur Reykja
víkur telur að hrapað hafi verið að
niðurstöðu um meginorsök and
láts Guðmundar Más Bjarnasonar
í máli ríkissaksóknara gegn hjúkr
unarfræðingnum Ástu Kristínu
Andrésdóttur og Landspítalanum.
Dómurinn sýknaði Ástu Kristínu,
og þar með Landspítalann, af öllum
kröfum ákæruvaldsins í gærmorgun.
Ásta var ákærð fyrir manndráp
af gáleysi og fyrir brot á hjúkr
unarlögum. Ákæran sneri að því
að Ástu hefði láðst að tæma loft úr
belg barka raufarrennu þegar hún
tók sjúkling úr öndunarvél þann
3. október 2012 og setti talventil í
barkaraufarrennuna.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að aðrir þættir en uppblásinn
belgur kunni að skýra andlát sjúk
lingsins og taldi dómurinn ekki ólík
legt að belgurinn hefði verið blásinn
út við endurlífgun sjúklingsins. Af
þeim ástæðum var talið ósannað
að Ástu hefði láðst að tæma loft úr
belgnum og að andlát sjúklingsins
yrði rakið til þess.
Þegar dómurinn var kveðinn upp
klöppuðu viðstaddir og grétu af gleði
í senn. Ásta sagði í samtali við Stöð
2 í gær að henni væri mjög létt. „Ég
er glöð að sjá í dómnum að þeir sáu
það sem ég upplifði, að þeir trúðu
mér. Ég vonaðist alltaf eftir þessari
niðurstöðu […] Það er gott að þetta
er búið.“
Móðir Ástu tók í sama streng.
„Mér stórlétti bara og ég get ekki
sagt hvernig mér leið því ég veit
ekki hvernig mér líður ennþá. En
feginleikinn og gleðin yfir þessum
sýknudómi er það besta sem ég veit
í dag,“ sagði Sigrún Sveinsdóttir, fyrr
verandi sjúkraliði og móðir Ástu, við
Stöð 2 í gær.
Grátið og klappað við dómsuppsögu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðing af ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Hún segist
alltaf hafa vonast eftir þeirri niðurstöðu. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir rannsóknarnefnd vegna alvarlegra atvika.
Stjórnendur Landspítalans voru viðstaddir dómsuppkvaðningu og fögnuðu með
Ástu þegar niðurstaðan lá fyrir. FréttabLaðið/SteFÁn
Það er mjög góð
niðurstaða að
stúlkan skyldi sleppa því
hún átti enga sök á þessu.
Ingveldur Sigurðardóttir,
ekkja hins látna
Ég er glöð að sjá í
dómnum að þeir
sáu það sem ég upplifði, að
þeir trúðu mér. Ég vonaðist
alltaf eftir þessari niður-
stöðu.
Ásta Kristín Andrésdóttir,
hjúkrunarfræðingur
Það hefði aldrei átt
að ákæra í þessu
máli og ég er gríðarlega
ánægð með niðurstöðuna.
Dómurinn kemur mér ekki á
óvart.
Kristín Edwald,
verjandi Landspítalans
Menn sjá sér ávinning í að efla starfsmenntun. FréttabLaðið/HaG
BanDaríkin „Ég mun aldrei hætta
í þessari kosningabaráttu,“ sagði
Donald Trump, sem sækist eftir
útnefningu Repúblikanaflokks Banda
ríkjanna til forsetaframboðs, í samtali
við The Washington Post í gær.
Mikið hefur verið deilt á Trump
síðustu daga í kjölfar ummæla hans
um að banna skyldi öllum músl
imum að koma til Bandaríkjanna,
hvort sem þeir væru hryðjuverka
menn, flóttamenn eða Bandaríkja
menn á leið heim úr fríi erlendis.
Aðrir frambjóðendur repúblik
ana kölluðu hugmyndina ótæka
og sögðu hana þvert á það sem
flokkurinn stendur fyrir. Þá sagði
talsmaður forsetaembættis Banda
ríkjanna hugmynd Trumps sjálf
krafa dæma hann úr leik sem trú
verðugan kost í forsetaembættið.
Hörð viðbrögð samflokksmanna
hans urðu til þess að hann benti á
skoðanakönnun USA Today þar
sem fram kom að nærri sjötíu pró
sent fylgismanna hans myndu kjósa
Trump jafnvel þótt hann yrði ekki
frambjóðandi repúblikana heldur
færi fram sem sjálfstæður fram
bjóðandi utan flokka.
Trump hefur mælst með mest
fylgi allra repúblikana allt frá því
í júlí og stendur fylgi hans nú í
tæpum þrjátíu prósentum. – þea
Trump lofar að fara hvergi
Donald trump vill banna öllum múslimum að koma til bandaríkjanna.
FréttabLaðið/ePa
Sömuleiðis sagðist ekkja Guð
mundar, Ingveldur Sigurðardóttir,
glöð yfir niðurstöðunni. „Ég hef
aldrei sakast við hana enda hef ég
enga ástæðu til þess,“ sagði hún.
Þá sagði Kristín Edwald, verjandi
Landspítalans, að dómurinn kæmi
henni ekki á óvart. Finnst henni að
aldrei hefði átt að ákæra í málinu.
Í kjölfar dómsuppkvaðningar
kallaði Ólafur Skúlason, formaður
félags hjúkrunarfræðinga, eftir rann
sóknarnefnd alvarlegra atvika í heil
brigðisþjónustu í samtali við Vísi.
„Reglurnar og lögin eru hreinlega
ekki nógu skýr til að segja til um í
hvaða farveg þessi mál eigi að fara.
Við köllum eftir því að það verði
skipuð einhvers konar rannsóknar
nefnd á svona alvarlegum atvikum
í heilbrigðisþjónustu,“ sagði Ólafur.
Hann bætti því við að þora yrði að
segja frá mistökum ef fólk ætti að
læra af þeim. Hann sagði að ef starfs
menn ættu á hættu að verða ákærðir
væri hann hræddur um að tíðni
atvikaskráninga myndi lækka.
thorgnyr@frettabladid.is
1 0 . D e s e m B e r 2 0 1 5 f i m m T U D a g U r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð