Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 29
Kiribati heitir eyjaklasi í miðju Kyrrahafi þar sem búa 100.000 manns.
Landið er ekki nema 800 fer-
kílómetrar að flatarmáli svo að
þéttleiki byggðar þar er meiri en
í kraðakinu í Tókíó. Eyjarnar 32
dreifast yfir hafsvæði á stærð við
Indland. Kiribati varð sjálfstætt
ríki 1979, en hafði áður verið
brezk nýlenda. Flestar eyjarnar
eru á hæð við venjulegan strætis-
vagn. Hækkandi sjávarborð af
völdum hlýnandi loftslags hefur
keyrt fjölda heimila í kaf, spillt
vatnsbólum og heilsu fólksins og
fjárhag. Fólkið á sér enga undan-
komuleið nema úr landi.
Fimm hættur
Hlýnun loftslags er staðreynd.
Erlendir jarðvísindamenn taka
Sólheimajökul gjarnan sem dæmi
um bráðnandi jökla. Síðustu
15-20 ár hefur jökulbrúnin færzt
innar um allt að 50 metra á ári.
Heimamenn þurfa með reglulegu
millibili að færa bílastæðin handa
ferðamönnum nær jöklinum.
Alþjóðabankinn telur hlýnun
loftslags hafa fimm hættur í för
með sér: Þurrka, flóð, storma,
hækkandi sjávarborð og aukna
óvissu í landbúnaði. Malaví,
bláfátækt land með 16 milljónir
íbúa í sunnanverði Afríku, er í
mestri hættu vegna þurrka, segir
bankinn, en mörg önnur lönd eru
einnig í mikilli hættu. Bangladess
með 160 milljónir íbúa er í mestri
hættu vegna flóða og einnig Kína
og Indland þar sem þriðjungur
íbúa heimsins býr. Filippseyjar
með 102 milljónir íbúa eru í
mestri hættu vegna storma og
Súdan með sínar 40 milljónir
íbúa vegna óvissu um afdrif land-
búnaðar. Öllum lágvöxnum
eylöndum eins og Kiribati stafar
bráð hætta af hækkandi sjávar-
borði sem hótar að keyra þau í
kaf. Alþjóðabankinn og Samein-
uðu þjóðirnar hafa hjálpað til við
að kortleggja vandann og lagt á
ráðin um lausnir. Jafnvel Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn (AGS)
teygir sig út fyrir sinn venjulega
verkahring og lætur málið til sín
taka enda getur hlýnun lofts-
lags, takist ekki að halda henni
í skefjum, haft alvarlegar efna-
hagsafleiðingar fyrir aðildarlönd
sjóðsins og kallað á hjálp þaðan.
Hvað er til ráða?
Vandinn snýst einkum um kol-
Sökkvandi lönd
tvísýring og aðrar lofttegundir
sem draga til sín útfjólubláa geisla
og læsa þannig hita inni í gufu-
hvolfinu og hækka með því móti
hitastigið líkt og í gróðurhúsum.
Þess vegna er hlýnun loftslags í
daglegu tali kennd við gróður-
húsaáhrif. Til að stöðva þessa
þróun eða snúa henni við þarf
að draga úr losun koltvísýrings
og annarra efna út í andrúms-
loftið, einkum með því að draga
úr olíunotkun og kolabrennslu
og einnig gróðureyðingu þar eð
gróður dregur í sig koltvísýring og
dregur um leið úr losun hans út
í andrúmsloftið. Þannig er hægt
að þynna gashjúpinn sem hefur
hækkað hitann á jörðu niðri.
Vandinn er kunnuglegur og
lausnirnar líka. Hlýnun loftslags
er eins og önnur umhverfismeng-
un af manna völdum, m.a. ofveiði,
og kallar á svipuð viðbrögð.
Loftið sem við öndum að okkur
er sameign. Menn sjá sér ekki að
fyrra bragði hag í að halda loftinu
hreinu og á réttu hitastigi þar eð
þá munu aðrir ganga á lagið. Þess
vegna þarf löggjöf og raunar sam-
starf á heimsvísu því að mengun
og loftslag virða ekki landamæri.
Hægt er að setja lögboðið þak
– kvóta! – á mengun til að halda
henni í skefjum og úthluta kvót-
anum án endurgjalds. Hagkvæm-
ara er þó og réttlátara að reyna að
meta til fjár verðmætin sem í húfi
eru og fara markaðsleið að settu
marki með því að gera mönnum
skylt að greiða fyrir hvort heldur
veiðiréttinn eða réttinn til að
blása koltvísýringi út í andrúms-
loftið. Þetta er leiðin sem veiði-
gjaldsmenn hér heima hafa lagt
fram til lausnar ofveiðivandanum
á Íslandsmiðum í bráðum hálfa
öld og kveðið er á um í nýju
stjórnarskránni sem samþykkt
var með yfirgnæfandi meiri hluta
atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 2012. Þetta er einnig leiðin
sem AGS og Alþjóðabankinn
mæla með á loftslagsráðstefnunni
í París sem lýkur á morgun. Sé
þessi leið farin er hentugt að fella
mengunargjöld inn í orkuverð
líkt og ESB-lönd hafa lengi gert,
en Bandaríkjamenn hafa hikað
við að gera. Hugsunin er þessi:
Þeir sem menga andrúmsloftið
á kostnað annarra þurfa að bæta
ráð sitt og bæta skaðann. Sumir
sjá rautt og kjósa heldur að heilu
löndin sökkvi í sæ, en vonandi fá
þeir ekki að ráða för í þetta sinn.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Loftið sem við öndum að
okkur er sameign. Menn sjá
sér ekki að fyrra bragði hag
í að halda loftinu hreinu og
á réttu hitastigi þar eð þá
munu aðrir ganga á lagið.
Þess vegna þarf löggjöf og
raunar samstarf á heimsvísu
því að mengun og loftslag
virða ekki landamæri.
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Ómissandi
á jólunum
Sérvalin blanda af
bestu kaffiuppskerum
ársins.
kaffitar.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 29F i M M T u d a g u R 1 0 . d e s e M B e R 2 0 1 5