Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 75
365.is Sími 1817
Það verður heldur betur hasar á sportstöðvunum okkar í desember. Stórstjörnurnar
í enska boltanum verða í bullandi yfirvinnu, karfan, fótbolti út um alla Evrópu,
handbolti, NFL og margt annað spennandi um hátíðarnar. Góða skemmtun!
Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport 2, MUTV, LFC TV og Chelsea TV. Verð: 13.990 kr. á mán.
Með Sportpakkanum
færðu endalaust tal
og 1 GB á 1.990 kr.
Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport 2, hliðarrásir, MUTV, LFC TV og Chelsea TV á 14.990 kr. á mán.
FULLT AÐ GERAST Í SPORTINU Í DESEMBER
YFIR 50 BEINARÚTSENDINGAR
ENSKI
BOLTINN
Í DESEMBER
Kristján Jónsson, lista- og leiðsögu-
maður, opnar sýningu sína Portrett
og landslag í Galleríi Gróttu á Eið-
istorgi í dag, 10. desember, klukkan
17. Allir eru velkomnir þangað.
Líkt og titillinn gefur til kynna
er viðfangsefni sýningarinnar sótt
í gamalkunnug stef myndlistararfs-
ins. Kristján kveðst með því vilja
hylla okkar ástsælu landslagsmál-
ara og um leið máta sig við þá mál-
arahefð, sem flestir þekkja en með
persónulegri nálgun. Hann ver
drjúgum hluta lífs síns úti í íslensku
landslagi því hann starfar sem leið-
sögumaður fyrir erlenda ferða-
menn.
Kristján stundaði nám í Escola
Massana listaskólanum í Barcelona
og hefur sýnt reglulega bæði hér á
landi og erlendis síðustu 20 ár.
Gallerí Grótta er á annarri hæð
á Eiðistorgi, við hlið Bókasafns-
ins. Sýningin stendur til 8. janúar og
aðgangur er ókeypis. – gun
Lifir í íslensku landslagiÁstar- og gleðisöngvar í Dóm kirkjunni
Hólmfríður er móðursystir Margrétar og þær frænkur hafa oft unnið saman áður. Mynd/Úr einkasafni
sem sjaldgæft var að konur létu eftir sér
á þessum tímum, hvað þá smábænda-
dætur úr íslenskri sveit. En hún er ekki
síður heillandi vegna þess hvernig höf-
undur fléttar saman sköpunar- og lista-
verkasögu Nínu og ævisögu hennar og
þá viðburði sem mótuðu listsköpun
hennar. Bókin er líka sérdeilis fallegur
gripur, ljósmyndir af verkum Nínu fá að
njóta sín í bland við myndir af henni á
ýmsum æviskeiðum og við vinnu sína
sem gæða textann aftur enn meira lífi.
Nína Sæmundsson hlaut gríðarlega
upphefð vegna listsköpunar sinnar úti
í hinum stóra heimi. Hún vann virtar
samkeppnir um að frumskapa stór og
afgerandi listaverk sem standa enn í dag,
en þeirra þekktast er vafalaust Afreks-
hugur, sem prýðir hið þekkta hótel Wal-
dorf Astoria þar sem sjá má myndgerða
hugmyndina um sigurgyðjuna Nike en
mynd af því verki er á forsíðu bókar-
innar. Þrátt fyrir þessa upphefð utan frá
voru Íslendingar þó ekki á því að þessi
kona hefði neitt sérstakt til brunns að
bera umfram að vera „liðtækur hagyrð-
ingur á sviði höggmyndalistar, þó hún
sé ekki stórskáld“ eins og einn gagnrýn-
andi orðaði það og greinilegt að margir
hérlendis áttu erfitt með að sjá fyrir sér
að kona gæti yfirhöfuð gert eitthvað eins
líkamlega krefjandi og að höggva í stein.
Kannski er það þess vegna sem kona
í nútímanum, sem er ekkert sérstaklega
að leggja sig eftir myndlist en þekkir
auðvitað Kjarval, Ásgrím og Einar, veit
eins lítið um Nínu S. og raun ber vitni.
Þökk sé þessari bók veit ég loksins eitt-
hvað en langar að vita svo miklu meira.
Sem betur fer stendur enn yfir sýning á
verkum Nínu í Listasafni Íslands og haf-
meyjan situr aftur á Tjörninni.
Brynhildur Björnsdóttir
Niðurstaða Nína S. er einstaklega
falleg bók og sögu þessarar listakonu á
heimsmælikvarða ættu sem flestir að
kynna sér.
Tónleikarnir eru
síðasTi viðburður
ársins vegna 200 ára afmælis
biblíufélagsins og eru
ókeypis fyrir alla.
krisTján kveðsT með því
vilja hylla okkar ásTsælu
landslagsmálara.
kristján tengir málverk sín við íslenska náttúru. Mynd/Úr einkasafni
M e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 55F i M M t u D a g u r 1 0 . D e s e M B e r 2 0 1 5