Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 54
Fólk| tíska
sunna Ólafsdóttir félagsráðgjafi segist vera löngu hætt að elta tískustrauma en
leggur fremur áherslu á að
skapa sinn eigin stíl. Hún
fór að hanna skart fyrir
tveimur árum þegar
hún var í námi og
var það hennar leið
til að slaka á. „Ég
eignaðist sauma
vél fyrr á árinu og
þegar ég loksins
þorði að snerta
hana þá hef ég
eiginlega ekki
getað stoppað.
Mér finnst þetta
alveg fáránlega
gaman og fæ þarna
útrás fyrir sköp
unarkraftinn.“ Hönnun
Sunnu má sá sjá á Face
booksíðunni SUNNU.
Hvernig klæðir þú þig hvers-
dags? Um þessar mundir klæðist
ég mikið í vestum yfir allt sem
ég er að hanna og búa til en þau
eru stór og djúsí. Annars klæði
ég mig yfirleitt eftir skapi en ekki
eftir veðri.
Hvernig klæðir þú þig spari?
Mjög mismunandi, en svartur
kjóll og litríkt hippaskart finnst
mér geta bæði verið hversdags
og spari. Annars á ég nokkra
glimmerjakka sem ég nota extra
spari.
Hverjar eru þrjár mest notuðu
flíkurnar í skápnum? Svartur kjóll
frá Volcano, Júniformkápan mín
og svört leðurstígvel. Reyndar er
ég líka með æði fyrir Ugg silfur
bomsunum mínum núna.
Hvað veitir þér mestan innblást-
ur? Lífið.
Hvar kaupir þú fötin þín? Ég
starfaði sem flugfreyja hjá Icel
andair til margra ára og þá versl
aði ég nær eingöngu erlendis en
ég hætti í fluginu fyrir rúmum
tveimur árum og síðan hef ég
að mestu verslað hér heima. Ég
hugsa að ég hafi verslað mest hjá
Farmers Market, Evuklæðum og
Júniform.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Ég
elska hippablómaskóna mína frá
Bossanova.
Bestu kaupin? Svört hermanna
stígvél sem ég keypti í GS skóm
fyrir mörgum árum hafa staðist
vel tímans tönn. Mér finnst þau
alltaf jafn töff og passa við allt.
Hef farið nokkrum sinnum með
þau til skósmiðs til að láta sóla
þau og ég á eflaust aldrei eftir að
tíma að henda þeim.
Verstu kaupin? Það hlýtur að
vera appelsínuguli kjóllinn sem
ég brölti með heim frá San Franc
isco eitt sumarið. Mér fannst
hann ómótstæðilegur þegar ég
mátaði hann en þegar heim var
komið leit ég út eins og einn
af meðlimum Hare Krishna í
honum. Sá appelsínuguli fór því
beina leið í Rauðakrossgám. Ég
hef einstaka sinnum keypt mér
skó sem bara er hægt að sitja í
sökum óeðlilegrar hælastærðar
en vonandi er ég komin yfir það,
frekar ópraktískt.
Hverju verður bætt við fata-
skápinn fyrir veturinn? Mig langar
í risastóra Rússahúfu, helst
silfurref.
Hvers konar fylgihluti notarðu?
Ég nota gróft skart og yfirleitt
sem ég bý til sjálf úr náttúru
perlum og steinum. Grófir silfur
hringir finnst mér alltaf fallegir
og er Brynjuhringurinn minn
Embracing faith mikið notaður.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ég
bara veit það ekki. Það er hell
ingur af flottum konum í kringum
mig á öllum aldri en ég vil fyrst
og fremst vera mín eigin fyrir
mynd.
Blanda af Hippa,
skVísu og kósístíl
spuRt & sVaRaÐ Svört hermannastígvél eru bestu kaup Sunnu Ólafsdóttur
en appelsínugulur kjóll þau verstu. Hana langar í Rússahúfu fyrir veturinn.
oft í sVÖRtu „Ég er gjörn á að klæðast svörtu þó ég reyni að poppa upp svarta litinn með einhverju litríku,“ segir Sunna sem er
nýfarin að hanna föt. MYND/GVA
Sjáið myndirnar á facebook.com/Parisartizkan
Vetrardagar
20% afsláttar af öllum fatnaði.
Fallegur og vandaður fatnaður,
tilvalin í jólapakkan.
Verið velkomnar.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Facebook.com/commaIceland
comma, Smáralind
#commaIceland
*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 31. desember halda þessum kjörum í eitt ár.
Fáðu þér áskrift í
síma 1817 eða á 365.is
FÁÐU STÖÐ 3
Á BETRA VERÐI
Í VETUR
STÖÐ 3
+ENDALAUST TAL
+1 GB Í GSM
1.990 kr.
til 31. desember*