Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 38
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r38 s p o r T ∙ F r É T T A b L A ð I ð
sport
FóTboLTI Strákarnir okkar í karla-
landsliðinu í fótbolta bíða væntan-
lega spenntari eftir laugardeginum
næstkomandi en sjálfum aðfanga-
degi. Á laugardagseftirmiðdag
kemur í ljós hvaða þjóðum Ísland
mætir á Evrópumótinu í Frakklandi.
Dregið verður í Palais des Congrès
í 17. hverfinu í París og hefst drátt-
urinn klukkan 17.00 að íslenskum
tíma.
Fyrir þá sem ekki vita verður
Ísland í neðsta styrkleikaflokki, en
takmarkið um að hækka sig upp um
einn flokk náðist ekki þegar liðið
náði ekki að vinna neinn af síðustu
þremur leikjum sínum í riðlakeppn-
inni. Það kom þó ekki að sök þegar
kom að stóra markmiðinu sem var
að komast í fyrsta sinn á stórmót.
Ljóst er að strákanna okkar bíður
ærið verkefni, en það er þó alveg
hægt að vera heppinn með riðil. Þó
að okkar strákar séu í neðsta styrk-
leikaflokki eru þeir búnir að sýna að
íslenska liðið er mjög gott. Sigrar á
Verður laugardagurinn til lukku?
Dregið verður til riðlakeppni EM 2016 í fótbolta á laugardaginn þar sem strákarnir okkar verða í fyrsta sinn í pottinum. Mikil spenna
ríkir fyrir drættinum en Fréttablaðið setur hér upp fjórar gerðir af mögulegum riðlum sem allir hafa sínar sögur og stórstjörnur.
Erfiður
Í erfiða riðlinum má finna þrjár af
bestu þjóðum mótsins og lið sem
verður mjög erfitt að eiga við. Í
þessari útgáfu mætir Ísland heims-
meisturum, heitasta framherja heims
og fornum erkifjendum.
Þýskaland
Heimsmeistararnir
þóttu hiksta töluvert
í undankeppninni.
Það var þó ekki verra
en það að Þýskaland
vann D-riðilinn með
22 stigum og var þar á
undan Pólverjum, Írum
og Skotum. Við erum líka að tala um
heimsmeistarana! Þýskaland hefur
kannski ekki verið líkt sjálfu sér að
undanförnu en það er lið sem þú vilt
forðast að mæta á EM.
króatía
Nú gætu einhverjir
orðið reiðir því Króatar
koma inn í mótið sem
næstslakasta þjóðin
í öðrum styrkleika-
flokki. Það er samt bara
alltaf erfitt að spila við
Króatíu í íþróttum eins
og strákarnir okkar fengu að kynnast
í umspilinu fyrir HM 2014. Þetta er
frábært lið sem hafnaði í öðru sæti
síns riðils á eftir Ítalíu. Króatar eru með
stútfullt lið af hæfileikum og reynslu í
góðri blöndu.
Pólland
Strákarnir sáu með
berum augum hversu
gott pólska liðið er og
er skrítið að hugsa til
þess að það sé í þriðja
styrkleikaflokki. Pólland
hafnaði í öðru sæti á
eftir Þýskalandi í undan-
keppninni en spennan í kringum liðið
í heimalandinu er mikil. Það er með
mikla hlaupagetu, sterka vörn og mikla
sprengju fram á við.
Léttur
Augljóslega er enginn auðveldur
riðill á EM og dettur engum í hug að
Ísland geti talið nokkurn leik léttan.
Sumir mótherjar eru þó auðveldari
en aðrir og í þessum riðli gæti Ísland
fengið nóg af stigum.
Portúgal
Portúgal er eins manns
lið. Reyndar er þessi eini
maður, Cristiano Ron-
aldo, alveg ævintýrlega
góður. Það veit í raun
enginn hvar portúgalska
liðið stendur þessa
dagana. Það vann sinn
riðil í undankeppninni mjög auðveld-
lega en var nú ekki í þeim erfiðasta.
Auðvelt er líka að hugsa til HM þar
sem liðið hrundi út með stæl. En
kannski er upprisan á leiðinni.
rússland
Rússar skriðu inn á
mótið í öðru sæti
G-riðils undankeppn-
innar, tveimur stigum
á undan Svíum sem
voru ekki góðir.
Rússneska liðið er í
smá krísu. Það vantar
stjörnur en er vissulega með fína
liðsheild. Liðið spilar hægt og er
varnarsinnað og er lið sem myndi
henta okkar strákum alveg frá-
bærlega.
Ungverjaland
Þetta er ein af fáum
þjóðum á EM sem við
megum einfaldlega
kalla eftir sigri á. Ung-
verjar höfnuðu í þriðja
sæti F-riðils með aðeins
16 stig og voru þar á
undan Finnlandi. Þeir
unnu svo Noreg í umspilinu sem telst
ekki mikið afrek í fótboltanum í dag.
Það verður mikil stemning í kringum
ungverska liðið á HM en Ísland er
betra fótboltalið. Svo einfalt er það.
Leiðinlegur
Þótt enginn riðill eða dvölin í Frakk-
landi verði yfir höfuð leiðinleg getur
Ísland lent í riðli með þjóðum sem
eru afskaplega góðar í fótbolta en
bjóða upp á minni stjörnuljóma og
færri sögur til að japla á.
sPánn
Það verður alltaf nóg
að frétta af liðunum
úr fyrsta styrkleika-
flokki og hér erum við
að tala um meistara
síðustu tveggja Evrópu-
móta. Aftur á móti er
spænska landsliðið
þekkt fyrir að gefa lítið af sér og
farnar eru úr liðinu stjörnur á borð
við Xavi og Fernando Torres. Svo
fengi íslenska liðið ekkert að vera
með boltann og myndi tapa, 0-1.
aUstUrríki
Austurríki er eitt af
liðunum sem gætu
slegið í gegn í Frakklandi
á sama tíma og stjörnu-
ljóminn yfir því er ekki
mikill. Austurríska liðið
er hægt og sígandi orðið
algjörlega frábært og
stútaði G-riðli undankeppninnar með
níu sigrum í tíu leikjum. Liðið spilar
frábæran fótbolta með hraða og bein-
skeytta leikmenn á borð við Marko
ArnautoviĆ hjá Stoke sem skoraði tvö á
móti City um síðustu helgi.
tékkland
Íslenska liðið mætti
Tékklandi tvívegis í
undankeppninni og
þess vegna væri ekkert
gaman að mæta því
aftur. Eins og við
fengum að kynnast er
tékkneska liðið mjög
gott enda vann það riðilinn okkar. Það
vantar þó stjörnurnar í Tékkland sem
er með frábæra liðsheild og frábæran
þjálfara sem á eftir að fleyta því langt.
Skemmtilegur
Skemmtilegi riðilinn er reyndar
mjög erfiður líka en hann er
fullur af sögum og fréttum sem
myndu svala fótboltaþorsta
landsmanna. Þar mætir Lars
Lagerbäck samlöndum sínum.
england
Íslendingar vilja
mæta enska lið-
inu og sjá strákana
okkar berjast við
stjörnurnar
í ensku úr-
valsdeild-
inni. Þetta
hefur verið draumur
okkar lengi og við eigum
skilið að mæta Englandi.
Svo gætum við líka alveg
unnið.
ítalía
Ítalska liðið er á
mikilli uppleið eftir
að hafa fallið úr
leik í riðlakeppni HM
2014. Ítalir unnu sinn
riðil í undankeppninni
án þess að tapa leik
og hafa náð vopnum
sínum undir stjórn Antonio Conte.
Það yrði frábært að mæta þessum
fjórföldu heimsmeisturum og svo
er alltaf smá möguleiki á að spila
við Mario Balotelli.
svíÞjóð
Það færi allt á hliðina
bæði á Íslandi og í Sví-
þjóð ef Lars Lagerbäck
myndi mæta samlönd-
um sínum og sínum
gömlu lærisveinum.
Þvílíkur leikur fyrir báðar
þjóðir og svo er auð-
vitað eins og einn Zlatan Ibrahimovic
í liði Svíþjóðar. Maðurinn sem Lars rak
heim úr keppnisferð eins og frægt
er orðið. Leikirnir yrðu ekkert mikið
skemmtilegri en þetta.
tólfan á eftir að fjölmenna til Frakklands, sama hvernig riðillinn verður. Fréttablaðið/Vilhelm
thomas
MÜller
Cristiano
ronaldo
david silva Wayne
rooney
luka
Modric
artyom
dzyuba
david alaba giorgio
Chiellini
robert
lewandoski
gabor
kiraly Petr Čech
Zlatan
ibrahimović
Tómas Þór
Þórðarson
tom@frettabladid.is
✿ Þessir mótherjar gætu komið úr kúlunum í parís á laugardaginn
Tyrkjum, Tékkum og tveir á stjörn-
um prýddu liði Hollands sönnuðu
það í undankeppninni.
Riðlarnir geta orðið allavega.
Ísland getur lent í algjörum dauða-
riðli með stórþjóðum á borð við
Þýskaland, Ítalíu og Pólland en líka
verið í mjög svo árennilegum riðli
með þjóðum á borð við Portúgal,
Rússland og Ungverjaland. Svo geta
riðlarnir orðnir mjög erfiðir en að
sama skapi mjög skemmtilegir.
Íslenska fótboltaáhugamenn
dreymir ekkert heitar en að mæta
Englandi í mótsleik. Í hvert skipti
sem dregið er í hvaða undankeppni
sem er bíðum við eftir að mæta
stjörnunum úr ensku úrvalsdeild-
inni en aldrei koma þær. Við erum
nú þegar búin að missa af Steven
Gerrard, Frank Lampard, Rio Ferd-
inand, John Terry, Ashley Cole, Paul
Scholes og David Beckham svo örfá
en góð dæmi séu tekin.
Til að hita aðeins upp fyrir drátt-
inn á laugardaginn setur Frétta-
blaðið hér upp fjóra mögulega riðla
sem eru miserfiðir og mis „skemmti-
legir“ þó auðvitað verði alltaf gaman
að fara í fyrsta sinn á stórmót. Við
minnum á að allt er þetta til gamans
gert.