Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 38
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r38 s p o r T ∙ F r É T T A b L A ð I ð sport FóTboLTI Strákarnir okkar í karla- landsliðinu í fótbolta bíða væntan- lega spenntari eftir laugardeginum næstkomandi en sjálfum aðfanga- degi. Á laugardagseftirmiðdag kemur í ljós hvaða þjóðum Ísland mætir á Evrópumótinu í Frakklandi. Dregið verður í Palais des Congrès í 17. hverfinu í París og hefst drátt- urinn klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Fyrir þá sem ekki vita verður Ísland í neðsta styrkleikaflokki, en takmarkið um að hækka sig upp um einn flokk náðist ekki þegar liðið náði ekki að vinna neinn af síðustu þremur leikjum sínum í riðlakeppn- inni. Það kom þó ekki að sök þegar kom að stóra markmiðinu sem var að komast í fyrsta sinn á stórmót. Ljóst er að strákanna okkar bíður ærið verkefni, en það er þó alveg hægt að vera heppinn með riðil. Þó að okkar strákar séu í neðsta styrk- leikaflokki eru þeir búnir að sýna að íslenska liðið er mjög gott. Sigrar á Verður laugardagurinn til lukku? Dregið verður til riðlakeppni EM 2016 í fótbolta á laugardaginn þar sem strákarnir okkar verða í fyrsta sinn í pottinum. Mikil spenna ríkir fyrir drættinum en Fréttablaðið setur hér upp fjórar gerðir af mögulegum riðlum sem allir hafa sínar sögur og stórstjörnur. Erfiður Í erfiða riðlinum má finna þrjár af bestu þjóðum mótsins og lið sem verður mjög erfitt að eiga við. Í þessari útgáfu mætir Ísland heims- meisturum, heitasta framherja heims og fornum erkifjendum. Þýskaland Heimsmeistararnir þóttu hiksta töluvert í undankeppninni. Það var þó ekki verra en það að Þýskaland vann D-riðilinn með 22 stigum og var þar á undan Pólverjum, Írum og Skotum. Við erum líka að tala um heimsmeistarana! Þýskaland hefur kannski ekki verið líkt sjálfu sér að undanförnu en það er lið sem þú vilt forðast að mæta á EM. króatía Nú gætu einhverjir orðið reiðir því Króatar koma inn í mótið sem næstslakasta þjóðin í öðrum styrkleika- flokki. Það er samt bara alltaf erfitt að spila við Króatíu í íþróttum eins og strákarnir okkar fengu að kynnast í umspilinu fyrir HM 2014. Þetta er frábært lið sem hafnaði í öðru sæti síns riðils á eftir Ítalíu. Króatar eru með stútfullt lið af hæfileikum og reynslu í góðri blöndu. Pólland Strákarnir sáu með berum augum hversu gott pólska liðið er og er skrítið að hugsa til þess að það sé í þriðja styrkleikaflokki. Pólland hafnaði í öðru sæti á eftir Þýskalandi í undan- keppninni en spennan í kringum liðið í heimalandinu er mikil. Það er með mikla hlaupagetu, sterka vörn og mikla sprengju fram á við. Léttur Augljóslega er enginn auðveldur riðill á EM og dettur engum í hug að Ísland geti talið nokkurn leik léttan. Sumir mótherjar eru þó auðveldari en aðrir og í þessum riðli gæti Ísland fengið nóg af stigum. Portúgal Portúgal er eins manns lið. Reyndar er þessi eini maður, Cristiano Ron- aldo, alveg ævintýrlega góður. Það veit í raun enginn hvar portúgalska liðið stendur þessa dagana. Það vann sinn riðil í undankeppninni mjög auðveld- lega en var nú ekki í þeim erfiðasta. Auðvelt er líka að hugsa til HM þar sem liðið hrundi út með stæl. En kannski er upprisan á leiðinni. rússland Rússar skriðu inn á mótið í öðru sæti G-riðils undankeppn- innar, tveimur stigum á undan Svíum sem voru ekki góðir. Rússneska liðið er í smá krísu. Það vantar stjörnur en er vissulega með fína liðsheild. Liðið spilar hægt og er varnarsinnað og er lið sem myndi henta okkar strákum alveg frá- bærlega. Ungverjaland Þetta er ein af fáum þjóðum á EM sem við megum einfaldlega kalla eftir sigri á. Ung- verjar höfnuðu í þriðja sæti F-riðils með aðeins 16 stig og voru þar á undan Finnlandi. Þeir unnu svo Noreg í umspilinu sem telst ekki mikið afrek í fótboltanum í dag. Það verður mikil stemning í kringum ungverska liðið á HM en Ísland er betra fótboltalið. Svo einfalt er það. Leiðinlegur Þótt enginn riðill eða dvölin í Frakk- landi verði yfir höfuð leiðinleg getur Ísland lent í riðli með þjóðum sem eru afskaplega góðar í fótbolta en bjóða upp á minni stjörnuljóma og færri sögur til að japla á. sPánn Það verður alltaf nóg að frétta af liðunum úr fyrsta styrkleika- flokki og hér erum við að tala um meistara síðustu tveggja Evrópu- móta. Aftur á móti er spænska landsliðið þekkt fyrir að gefa lítið af sér og farnar eru úr liðinu stjörnur á borð við Xavi og Fernando Torres. Svo fengi íslenska liðið ekkert að vera með boltann og myndi tapa, 0-1. aUstUrríki Austurríki er eitt af liðunum sem gætu slegið í gegn í Frakklandi á sama tíma og stjörnu- ljóminn yfir því er ekki mikill. Austurríska liðið er hægt og sígandi orðið algjörlega frábært og stútaði G-riðli undankeppninnar með níu sigrum í tíu leikjum. Liðið spilar frábæran fótbolta með hraða og bein- skeytta leikmenn á borð við Marko ArnautoviĆ hjá Stoke sem skoraði tvö á móti City um síðustu helgi. tékkland Íslenska liðið mætti Tékklandi tvívegis í undankeppninni og þess vegna væri ekkert gaman að mæta því aftur. Eins og við fengum að kynnast er tékkneska liðið mjög gott enda vann það riðilinn okkar. Það vantar þó stjörnurnar í Tékkland sem er með frábæra liðsheild og frábæran þjálfara sem á eftir að fleyta því langt. Skemmtilegur Skemmtilegi riðilinn er reyndar mjög erfiður líka en hann er fullur af sögum og fréttum sem myndu svala fótboltaþorsta landsmanna. Þar mætir Lars Lagerbäck samlöndum sínum. england Íslendingar vilja mæta enska lið- inu og sjá strákana okkar berjast við stjörnurnar í ensku úr- valsdeild- inni. Þetta hefur verið draumur okkar lengi og við eigum skilið að mæta Englandi. Svo gætum við líka alveg unnið. ítalía Ítalska liðið er á mikilli uppleið eftir að hafa fallið úr leik í riðlakeppni HM 2014. Ítalir unnu sinn riðil í undankeppninni án þess að tapa leik og hafa náð vopnum sínum undir stjórn Antonio Conte. Það yrði frábært að mæta þessum fjórföldu heimsmeisturum og svo er alltaf smá möguleiki á að spila við Mario Balotelli. svíÞjóð Það færi allt á hliðina bæði á Íslandi og í Sví- þjóð ef Lars Lagerbäck myndi mæta samlönd- um sínum og sínum gömlu lærisveinum. Þvílíkur leikur fyrir báðar þjóðir og svo er auð- vitað eins og einn Zlatan Ibrahimovic í liði Svíþjóðar. Maðurinn sem Lars rak heim úr keppnisferð eins og frægt er orðið. Leikirnir yrðu ekkert mikið skemmtilegri en þetta. tólfan á eftir að fjölmenna til Frakklands, sama hvernig riðillinn verður. Fréttablaðið/Vilhelm thomas MÜller Cristiano ronaldo david silva Wayne rooney luka Modric artyom dzyuba david alaba giorgio Chiellini robert lewandoski gabor kiraly Petr Čech Zlatan ibrahimović Tómas Þór Þórðarson tom@frettabladid.is ✿ Þessir mótherjar gætu komið úr kúlunum í parís á laugardaginn Tyrkjum, Tékkum og tveir á stjörn- um prýddu liði Hollands sönnuðu það í undankeppninni. Riðlarnir geta orðið allavega. Ísland getur lent í algjörum dauða- riðli með stórþjóðum á borð við Þýskaland, Ítalíu og Pólland en líka verið í mjög svo árennilegum riðli með þjóðum á borð við Portúgal, Rússland og Ungverjaland. Svo geta riðlarnir orðnir mjög erfiðir en að sama skapi mjög skemmtilegir. Íslenska fótboltaáhugamenn dreymir ekkert heitar en að mæta Englandi í mótsleik. Í hvert skipti sem dregið er í hvaða undankeppni sem er bíðum við eftir að mæta stjörnunum úr ensku úrvalsdeild- inni en aldrei koma þær. Við erum nú þegar búin að missa af Steven Gerrard, Frank Lampard, Rio Ferd- inand, John Terry, Ashley Cole, Paul Scholes og David Beckham svo örfá en góð dæmi séu tekin. Til að hita aðeins upp fyrir drátt- inn á laugardaginn setur Frétta- blaðið hér upp fjóra mögulega riðla sem eru miserfiðir og mis „skemmti- legir“ þó auðvitað verði alltaf gaman að fara í fyrsta sinn á stórmót. Við minnum á að allt er þetta til gamans gert.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.