Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 16
Á sama tíma og ráðamenn 195 þjóða sitja á rökstólum á Loftslags- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París eru vandamálin sem við er að glíma þegar farin að hafa mikil áhrif á daglegt líf fólks um allan heim. Ekki síst á það við um Kínverja – fjölmennustu þjóð heims. Hag- vöxtur í landinu, næststærsta hag- kerfi heims, hefur verið ógnvænlega hár í aldarfjórðung og uppbygging iðnaðar og orkuvera er farin að taka sinn toll. Jafnvel bannað að grilla Yfirvöld í höfuðborg Kína þar sem um 20 milljónir manna búa, Peking, sendu í fyrsta skipti í vikunni út rauða aðvörun – hæsta viðbúnaðar- stig af fjórum – sem þýðir að meng- un innan borgarmarkanna muni haldast langt yfir hættumörkum í þrjá sólarhringa eða lengur. Þetta þýðir að leik- og grunnskólum, auk fjölda fyrirtækja hefur verið lokað tímabundið – helmingurinn af fimm milljónum ökutækja er kyrrsettur annan hvern dag. Það er meira að segja bannað að grilla sér mat úti við, en viðbúnaðarstigið er sett á nú í fyrsta sinn þrátt fyrir að mengunin hafi oft verið verið verri, og síðast í fyrri viku. Horfir á mengunina veltast áfram „Margt leggst á eitt við að magna upp mengunina í og kringum borgina. Gríðarleg iðnaðarstarf- semi, mengun frá bílum, bruni á lággæða kolum til að kynda hús- næði, og þá einkum í úthverfum og aðliggjandi sveitum, loftstillur og fleira,“ segir Stefán Úlfarsson, sjálfstætt starfandi hagfræðingur sem hefur búið í miðborg Peking síðastliðin fjögur ár ásamt fjöl- skyldu sinni; kínverskri eiginkonu sinni Ping og dótturinni Árnýju. Ping starfar sem blaðamaður á kínverskum fréttamiðli en Árný gengur í skóla í borginni. „Mestalla þessa viku er fjöldi örsmárra mengunaragna í loftinu tíu til tuttugu sinnum meiri en talið er óhætt. Ég geri ráð fyrir að þeir sem eru veikir fyrir finni strax fyrir beinum áhrifum í formi ert- ingar í hálsi, öndunarerfiðleika og slíks. Beinu áhrifin fyrir aðra eru kannski fyrst og fremst á hugsun- ina. Þar sem mengunin er þykkust sér maður hana veltast áfram og sveipa umhverfið öskugrárri slikju. Þegar maður sér þetta veit maður að eitthvað er að,“ segir Stefán og bætir við að Ping þurfi að mæta til vinnu á hverjum degi – ólíkt mörgum sem ekki treysta sér til vinnu. Sjálfur hefur hann aðstöðu til að vinna heima. Skólinn hennar Árnýjar leyfir foreldrum að ráða því sjálf hvort þau senda börn sín í skólann meðan ástandið er hvað verst. Þau ákváðu að láta hana ekki fara í skólann og verður hún því lík- lega heima alla þessa viku, að sögn Stefáns. „Ég skýst út áður en konan fer í vinnuna á morgnana og kaupi í matinn og svoleiðis. Síðan höldum við Árný okkur inni allan daginn. Gluggarnir eru lokaðir og loft- hreinsibúnaðurinn á fullu. Þann- ig lágmörkum við mengunina sem við öndum að okkur. Konan er búin nánast eins og reykkafari þegar hún fer í vinnuna með stóra grisju fyrir andliti. Kennararnir senda okkur upplýsingar á netinu um þau verkefni sem ætlast er til að börnin vinni heima,“ segir Stefán. Enginn sjáanlegur árangur Þar sem ástandið í borginni hefur oft verið svipað og í þessari viku eða jafnvel verra, án þess að gripið hafi verið til jafn harkalegra aðgerða og nú, liggur beint við að spyrja: Hvers vegna núna? „Ég held að ástæðan felist í því að fólk er að verða meðvitaðra um umfang vandans. Margir óttast, held ég, að geta ekki lengur búið fjölskyldu sinni öruggt heimili í Peking. Stjórnvöld vilja sýna að þau eru að gera eitthvað í mál- inu. Almenningur hefur lagt á sig æ meira umstang síðustu ár út af mengun; birgt sig upp af grisjum, dregið úr notkun einkabíls, komið sér upp lofthreinsibúnaði heima og jafnvel flutt á brott. Það hefur hins vegar verið erfiðara að átta sig á því hvað stjórnvöld eru að gera. Í ríkisfjölmiðlunum gefa þau vissu- lega til kynna að þau séu meðvituð um vandann og vinni eftir áætlun að lausn hans. Gefnar eru út reglu- gerðir og tilskipanir. Samt er eng- inn sjáanlegur árangur. Mengunin virðist ekki vera á förum. Kannski er farið að líta á lausn vandans sem mikilvægan mælikvarða á lögmæti stjórnvalda,“ segir Stefán. Í samhengi við orð Stefáns má rifja það upp að kínversk yfirvöld hafa leynt og ljóst reynt að leyna vandamálinu sem loftmengunin er. Fyrir rúmu ári bönnuðu yfir- völd að upplýsingar um loftmeng- Hundruð þúsunda greinast með krabbamein vegna loftmengunar Fjölmiðlar í Kína og á Vesturlöndum hafa nefnt ógnvænlegar tölur um dauðsföll í Kína vegna loftmengunar. Á einum stað er giskað á að það séu örlög þriggja milljóna manna á ári. China Daily segir frá því að 700.000 Kínverjar muni greinast með lungnakrabbamein árið 2015, og er loftmengun hluti skýringarinnar. Íhuga að flýja mengunarmökkinn Stefán Úlfarsson býr í Peking ásamt eiginkonu og dóttur. Þar ríkir ófremdarástand dögum saman vegna loftmengunar. Svo alvarlegt er ástandið að fólk flytur frá borginni. Stefán segir það orðið koma til greina að flýja ástandið. Stefán, Ping og Árný litla hafa búið í Peking í nokkur ár en núna telja þau að vart verði unað við mengunina í borginni lengur. fréttablaðið/StEfÁn un í Peking væru birtar, en þá stóð fundur 21 leiðtoga aðildarríkja Við- skipta- og samvinnustofnunar Asíu og Kyrrahafsríkja yfir. Í fréttum frá þessum tíma sagði frá því að stjórn- völd gæfu út sínar eigin upplýsingar um mengun, en Stefán segir að íbúar borgarinnar reiði sig á tölur um loftgæði sem bandaríska sendi- ráðið í Peking gefur út og birtir bæði á vefnum og á Twitter. Þessar mælingar sendiráðsins hafa verið þyrnir í augum yfirvalda og hugðust þau koma í veg fyrir birtingu þeirra þegar leiðtogafundurinn stóð yfir í fyrra. Íhuga að flytja frá Peking Að lokum segir Stefán: „Við erum heppnari en margir aðrir, að hafa val um það hvort við búum áfram í Peking eða flytjum á brott. Fyrir einu til tveimur árum hefði mér ef til vill þótt fjarstæðukennt að fara bara út af menguninni. Í dag finnst mér það alls ekki svo vitlaus hug- mynd.“ Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is VILDARVERÐ FRÁ:149.- Verð: 199.- Sími: 540 2050 | pontun@penninn.is GOTT ÚRVAL AF VÖNDUÐUM GJAFAPOKUM! vildar- afsláttur 25% Tilboðsverð gilda frá 10. desember, til og með 14. desember. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. ✿ Loftgæði í Peking 2008-2015 Góð Sæmileg Óholl fyrir viðkvæma Óholl Mjög óholl Hættu- ástand 2% 18% 13% 14% 4% 49% Fyrir einu til tveimur árum hefði mér ef til vill þótt fjarstæðukennt að fara bara út af menguninni. Í dag finnst mér það alls ekki svo vitlaus hugmynd. Stefán Úlfarsson, hagfræðingur 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r16 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.