Fréttablaðið - 10.12.2015, Page 16
Á sama tíma og ráðamenn 195
þjóða sitja á rökstólum á Loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
París eru vandamálin sem við er að
glíma þegar farin að hafa mikil áhrif
á daglegt líf fólks um allan heim.
Ekki síst á það við um Kínverja
– fjölmennustu þjóð heims. Hag-
vöxtur í landinu, næststærsta hag-
kerfi heims, hefur verið ógnvænlega
hár í aldarfjórðung og uppbygging
iðnaðar og orkuvera er farin að taka
sinn toll.
Jafnvel bannað að grilla
Yfirvöld í höfuðborg Kína þar sem
um 20 milljónir manna búa, Peking,
sendu í fyrsta skipti í vikunni út
rauða aðvörun – hæsta viðbúnaðar-
stig af fjórum – sem þýðir að meng-
un innan borgarmarkanna muni
haldast langt yfir hættumörkum í
þrjá sólarhringa eða lengur. Þetta
þýðir að leik- og grunnskólum,
auk fjölda fyrirtækja hefur verið
lokað tímabundið – helmingurinn
af fimm milljónum ökutækja er
kyrrsettur annan hvern dag. Það er
meira að segja bannað að grilla sér
mat úti við, en viðbúnaðarstigið er
sett á nú í fyrsta sinn þrátt fyrir að
mengunin hafi oft verið verið verri,
og síðast í fyrri viku.
Horfir á mengunina veltast
áfram
„Margt leggst á eitt við að magna
upp mengunina í og kringum
borgina. Gríðarleg iðnaðarstarf-
semi, mengun frá bílum, bruni á
lággæða kolum til að kynda hús-
næði, og þá einkum í úthverfum
og aðliggjandi sveitum, loftstillur
og fleira,“ segir Stefán Úlfarsson,
sjálfstætt starfandi hagfræðingur
sem hefur búið í miðborg Peking
síðastliðin fjögur ár ásamt fjöl-
skyldu sinni; kínverskri eiginkonu
sinni Ping og dótturinni Árnýju.
Ping starfar sem blaðamaður á
kínverskum fréttamiðli en Árný
gengur í skóla í borginni.
„Mestalla þessa viku er fjöldi
örsmárra mengunaragna í loftinu
tíu til tuttugu sinnum meiri en
talið er óhætt. Ég geri ráð fyrir að
þeir sem eru veikir fyrir finni strax
fyrir beinum áhrifum í formi ert-
ingar í hálsi, öndunarerfiðleika og
slíks. Beinu áhrifin fyrir aðra eru
kannski fyrst og fremst á hugsun-
ina. Þar sem mengunin er þykkust
sér maður hana veltast áfram og
sveipa umhverfið öskugrárri slikju.
Þegar maður sér þetta veit maður
að eitthvað er að,“ segir Stefán og
bætir við að Ping þurfi að mæta
til vinnu á hverjum degi – ólíkt
mörgum sem ekki treysta sér til
vinnu. Sjálfur hefur hann aðstöðu
til að vinna heima. Skólinn hennar
Árnýjar leyfir foreldrum að ráða
því sjálf hvort þau senda börn sín
í skólann meðan ástandið er hvað
verst. Þau ákváðu að láta hana ekki
fara í skólann og verður hún því lík-
lega heima alla þessa viku, að sögn
Stefáns.
„Ég skýst út áður en konan fer
í vinnuna á morgnana og kaupi í
matinn og svoleiðis. Síðan höldum
við Árný okkur inni allan daginn.
Gluggarnir eru lokaðir og loft-
hreinsibúnaðurinn á fullu. Þann-
ig lágmörkum við mengunina
sem við öndum að okkur. Konan
er búin nánast eins og reykkafari
þegar hún fer í vinnuna með stóra
grisju fyrir andliti. Kennararnir
senda okkur upplýsingar á netinu
um þau verkefni sem ætlast er til að
börnin vinni heima,“ segir Stefán.
Enginn sjáanlegur árangur
Þar sem ástandið í borginni hefur
oft verið svipað og í þessari viku eða
jafnvel verra, án þess að gripið hafi
verið til jafn harkalegra aðgerða og
nú, liggur beint við að spyrja: Hvers
vegna núna?
„Ég held að ástæðan felist í því
að fólk er að verða meðvitaðra um
umfang vandans. Margir óttast,
held ég, að geta ekki lengur búið
fjölskyldu sinni öruggt heimili í
Peking. Stjórnvöld vilja sýna að
þau eru að gera eitthvað í mál-
inu. Almenningur hefur lagt á sig
æ meira umstang síðustu ár út af
mengun; birgt sig upp af grisjum,
dregið úr notkun einkabíls, komið
sér upp lofthreinsibúnaði heima
og jafnvel flutt á brott. Það hefur
hins vegar verið erfiðara að átta sig
á því hvað stjórnvöld eru að gera. Í
ríkisfjölmiðlunum gefa þau vissu-
lega til kynna að þau séu meðvituð
um vandann og vinni eftir áætlun
að lausn hans. Gefnar eru út reglu-
gerðir og tilskipanir. Samt er eng-
inn sjáanlegur árangur. Mengunin
virðist ekki vera á förum. Kannski
er farið að líta á lausn vandans sem
mikilvægan mælikvarða á lögmæti
stjórnvalda,“ segir Stefán.
Í samhengi við orð Stefáns má
rifja það upp að kínversk yfirvöld
hafa leynt og ljóst reynt að leyna
vandamálinu sem loftmengunin
er. Fyrir rúmu ári bönnuðu yfir-
völd að upplýsingar um loftmeng-
Hundruð þúsunda greinast með krabbamein vegna loftmengunar
Fjölmiðlar í Kína og á Vesturlöndum hafa nefnt ógnvænlegar tölur um dauðsföll í Kína vegna loftmengunar. Á
einum stað er giskað á að það séu örlög þriggja milljóna manna á ári. China Daily segir frá því að 700.000 Kínverjar
muni greinast með lungnakrabbamein árið 2015, og er loftmengun hluti skýringarinnar.
Íhuga að flýja mengunarmökkinn
Stefán Úlfarsson býr í Peking ásamt eiginkonu og dóttur. Þar ríkir ófremdarástand dögum saman vegna loftmengunar.
Svo alvarlegt er ástandið að fólk flytur frá borginni. Stefán segir það orðið koma til greina að flýja ástandið.
Stefán, Ping og Árný litla hafa búið í Peking í nokkur ár en núna telja þau að vart verði unað við mengunina í borginni lengur.
fréttablaðið/StEfÁn
un í Peking væru birtar, en þá stóð
fundur 21 leiðtoga aðildarríkja Við-
skipta- og samvinnustofnunar Asíu
og Kyrrahafsríkja yfir. Í fréttum frá
þessum tíma sagði frá því að stjórn-
völd gæfu út sínar eigin upplýsingar
um mengun, en Stefán segir að
íbúar borgarinnar reiði sig á tölur
um loftgæði sem bandaríska sendi-
ráðið í Peking gefur út og birtir
bæði á vefnum og á Twitter. Þessar
mælingar sendiráðsins hafa verið
þyrnir í augum yfirvalda og hugðust
þau koma í veg fyrir birtingu þeirra
þegar leiðtogafundurinn stóð yfir í
fyrra.
Íhuga að flytja frá Peking
Að lokum segir Stefán: „Við erum
heppnari en margir aðrir, að hafa
val um það hvort við búum áfram
í Peking eða flytjum á brott. Fyrir
einu til tveimur árum hefði mér ef
til vill þótt fjarstæðukennt að fara
bara út af menguninni. Í dag finnst
mér það alls ekki svo vitlaus hug-
mynd.“
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
VILDARVERÐ FRÁ:149.-
Verð: 199.-
Sími: 540 2050 | pontun@penninn.is
GOTT ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM GJAFAPOKUM!
vildar-
afsláttur
25%
Tilboðsverð gilda frá 10. desember, til og með 14. desember. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.
✿ Loftgæði í Peking 2008-2015
Góð
Sæmileg
Óholl fyrir
viðkvæma
Óholl
Mjög óholl
Hættu-
ástand
2%
18%
13%
14%
4%
49%
Fyrir einu til tveimur árum hefði
mér ef til vill þótt fjarstæðukennt
að fara bara út af menguninni. Í dag finnst
mér það alls ekki svo vitlaus hugmynd.
Stefán Úlfarsson, hagfræðingur
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r16 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð