Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 30
Það er orðið lýðum ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem
nemur kjörtímabilinu. Ástæðan
er margþætt og það á við hér eins
og segir í Geirmundarsögu Heljar
skinns að: „það renna margir
orsakalækir að einum ósi örlaga.“
Rýnum nú í þau spjöld í sögu
ríkisstjórnarinnar sem gera það að
verkum að það er búið að skammta
henni þá daga sem hún mun telja.
Að svelta heilbrigðiskerfið er ekki
bara ljótt heldur vond pólitík
Í málflutningi sínum fyrir síðustu
alþingiskosningar gagnrýndu
núverandi stjórnarflokkar ríkis
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir
að hola að innan heilbrigðiskerfið
og hétu því að styðja það betur ef
þeir kæmust á valdastóla. Þetta
gladdi þá okkar sem eru nægilega
vitgrannir til þess að hlusta á það
sem stjórnmálamenn segja fyrir
kosningar. Nú æxluðust mál þann
ig að afturendar hinna loforða
glöðu hafa vermt valdastóla í tvö
og hálft ár en heilbrigðiskerfið er
í engu minna rusli en áður og það
horfir ekki til bóta nema síður sé.
Það uppkast að fjármálafrum
varpi ársins 2016 sem nú liggur
fyrir Alþingi gerir ráð fyrir því að
fjárframlög til Landspítalans verði
óbreytt þótt það sé ljóst að það
muni kosta fjórum milljörðum
meira þá en nú að halda uppi sömu
þjónustu og hefur verið veitt í ár.
Það á sem sagt ekki einu sinni að
halda í horfinu, hvað þá að gera
betur.
Þetta er sama ríkisstjórnin og
segist vilja reisa nýtt hús yfir Land
spítalann fyrir hundrað milljarða
króna og segir gjarnan, upp fyrir
haus í sínum dæmigerða ruglingi,
að hún vilji reisa nýjan Landspítala
þótt spítalinn sé miklu meira og
allt annað en hús þótt hann þurfi
svo sannarlega á húsi að halda.
Húsið er nefnilega ekki bara lof
orð sem verður erfitt að efna, það
er líka skjól sem ríkisstjórnin felur
sig á bak við þegar henni er bent á
að það sé ýmislegt sem vanti upp á
Landspítala.
Einnota ríkisstjórn
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
Ég vil láta
fjárlaganefnd
vita að ef hún
breytir ekki frumvarpinu á
þann veg að mun meira fari
til Landspítalans munum
við nokkrir félagar safna
100.000 undirskriftum undir
plagg sem hvetur landsmenn
til þess að kjósa aldrei aftur
þá stjórnmálaflokka sem
standa að þessari ríkisstjórn.
Gáttaflökt er algengast þeirra
hjartsláttaróreglna sem koma þol
endum í hendur heilbrigðiskerfis
ins. Um það bil 25% Íslendinga fá
kast af gáttaflökti einhvern tíma á
ævinni og þar af fær stór hundraðs
hluti endurtekin köst eða óreglan
verður viðvarandi. Einn af fylgi
fiskum gáttaflökts er heilablóðfall
og er gáttaflöktið ábyrgt fyrir í það
minnsta 30% þeirra. Þess vegna eru
þolendur settir á blóðþynningu til
þess að fyrirbyggja heilablóðföll og
þegar þeir fá kast eru þeir svæfðir
og þeim veitt rafstuð til þess að
reyna að koma þeim í réttan takt,
sem er kallaður sínus og það veit
sá einn sem í flökti hefur lent hvað
sínusinn er mikil blessun.
Nýverið hafa læknar á Land
spítalanum, undir forystu Sig
fúsar Gissurarsonar sem er ungur
snillingur, farið að gera flókna
brennsluaðgerð til þess að
fyrirbyggja köst hjá þeim sem hafa
fengið þau. Hann segir mér að á
landi hér sé þörf á um það bil 150
slíkum aðgerðum á ári, en hann fær
ekki leyfi til þess að gera nema 60.
Það er sem sagt biðlisti fyrir þessar
brennsluaðgerðir sem lengist um
eitthvað minna en 90 á ári vegna
þess að einhverjir á listanum deyja
af sjúkdómnum eða öðru.
Hver aðgerð kostar um 700.000
krónur þannig að hann fær 42
milljónir á ári en þyrfti 105 millj
ónir til þess að sinna þörfinni.
Afleiðingin af þessum 63 milljóna
króna sparnaði er kostnaður sem
er vafalítið margföld sú upphæð
í lyfjum þeirra sem ekki þyrftu
þau eftir aðgerð og í kostnaði við
rafvendingarnar, að maður tali nú
ekki um ávinninginn af vellíðan og
starfsgetu þeirra sem eru allt í einu
komnir í viðvarandi sínus.
Sú staðreynd að ákvörðunin um
að það megi ekki gera nema 60
brennsluaðgerðir á ári var tekin af
skriffinni einhvers staðar í stofnun
sem heitir Sjúkratryggingar Íslands
breytir ekki því að það er á ábyrgð
kjörinna fulltrúa fólksins í landinu
að framselja valdið til þess að taka
svona ákvarðanir. Þetta er ákvörð
un sem endanlega kostar þjóð
stórfé og einstaklinga þjáningu og
jafnvel varanlega fötlun eða lífið.
Það væri sjálfsögð betrumbót á
heilbrigðiskerfinu að leyfa Sigfúsi
að mæta þörfinni fyrir brennslu
aðgerðir að fullu þótt henni fylgi
skammtímakostnaður.
Eitt slíkt dæmi
Þegar maður er ríkisstjórn sem
hefur lokkað að sér kjósendur með
því að lofa því að bæta heilbrigðis
kerfið þá endurreisir maður Land
spítalann með því að sjá honum
fyrir þeim tækjum sem nútíma
læknisfræði kallar á og því fagfólki
sem þarf til að hlúa að sjúkum og
meiddum meðan maður safnar liði
til þess að reisa nýtt hús. Það eru
nefnilega margar leiðir aðrar en að
reisa hús til þess að bæta heilbrigð
iskerfið og spara með því þegar til
langs tíma er horft.
Eftir alla þá umræðu sem hefur átt
sér stað og þann einróma vilja sem
fólkið í landinu hefur tjáð að Land
spítalinn fái meira er sú ríkisstjórn
dauðadæmd sem stendur bísperrt
fyrir framan fólkið og segir Land
spítalinn, ekki meir, ekki meir. Þetta
er sama ríkisstjórnin og leggur til í
uppkasti að fjárlögum að fjárfram
lög til kirkjunnar verði aukin.
Þegar ég benti lækni nokkrum
vini mínum á hvað það væri skringi
legt að þjóð sem ekki hefði efni á að
sinna brýnum vandamálum heil
brigðiskerfisins yki útgjöld til einn
ar tegundar annarslífstrúar svaraði
hann að kannski stafaði það af því
að hæstvirtur fjármálaráðherra hafi
raunverulegt innsæi inn í vandamál
heilbrigðiskerfisins en í stað þess að
leysa þau ætli hann að sjá til þess
að þeir sem látist af þeirra völdum
verði jarðsungnir með stæl og komi
ekki til með að skorta góðar jarðar
farir.
Mér fannst þetta bara svona rétt
mátulega fyndinn fimmaura brand
ari en engu fáránlegri en efni máls
ins, sem er aukið fé til kirkjunnar
en raunverulega minna til Lands
spítalans.
Hvers konar áhættu er þessi
ríkisstjórn reiðubúin að taka?
Þetta fjársvelti Landspítalans og heil
brigðiskerfisins í heild sinni er svartur
blettur á íslenskri menningu. Fjár
festing okkar í heilbrigðiskerfinu er
langt undir OECD meðaltali. Það er
ekki bara ríkisstjórnum um að kenna
heldur allri þjóðinni vegna þess að við
kusum fólk til þess að stjórna landinu
sem ákvað að svona ætti þetta að vera.
Þetta á ekki bara við um núverandi
ríkisstjórn því ástandið var jafnvel
verra undir þeirri síðustu. Hvernig
stendur á því að við sem þjóð sætt
um okkur við að hlúa svona illa að
sjúkum og meiddum samborgurum
okkar? Við þeirri spurningu veit ég
ekkert annað svar en að það hlýtur að
vera eitthvað mikið að höfuðskelja
innihaldinu okkar.
Hvaða úrræði hafa þá staðið
stjórnvöldum til boða til þess að
hysja heilbrigðiskerfið upp á ásætt
anlegan stað? Það er ekki of mælt
að ætla að það þyrfti um það bil 150
milljarða króna til þess. Og hvaðan
ættu þeir svo sem að koma? Í leit að
svari við þeirri spurningu beinist
athyglin að þrotabúum þeirra banka
sem settu samfélagið á hliðina. Fyrr
á árinu gáfu Sigmundur og Bjarni
það í skyn að ríkið myndi sækja allt
að 850 milljarða króna í þrotabúin
en þegar upp er staðið virðist það
ætla að verða um 300 milljarðar.
Ekki hafa fengist haldgóðar skýr
ingar á því hvers vegna þeir sætta
sig við svo skarðan hlut en eitt er
víst að 500 milljarðarnir sem á milli
ber hefðu gert gott betur en að laga
íslenskt heilbrigðiskerfi.
Það lítur helst út fyrir að nægju
semi flokksforingjanna tveggja eigi
rætur sínar í því að þeir hafi ekki
viljað taka þá áhættu að styggja
aðra kröfuhafa í þrotabúin með því
að taka meira. Það er dapurlegt að
sitja uppi með kornunga leiðtoga
sem ættu aldur síns vegna að vera
hungraðir, kraftmiklir og hugrakkir
en þora ekki að taka það sem við
þurfum og eigum skilið. Það er eins
og þeir geri sér ekki grein fyrir því
að það er miklu meiri áhætta tekin
með því sækja ekki nægilegt fé í þá
einu sjóði sem eru okkur aðgengi
legir til þess að bylta íslensku heil
brigðiskerfi inn í nútímann. En þeir
eru sem sagt reiðubúnari til þess
að taka þá áhættu sem felst í því að
láta þjóðina búa við stórgallað heil
brigðiskerfi og úrelt.
Og Sigmundur og Bjarni standa
hoknir í hnjánum fyrir framan
kröfuhafana sem eru fulltrúar hins
erlenda auðvalds, og eru hreyknir
yfir því að þeir kvörtuðu ekki undan
dílnum sem þeir fengu og virðast
ekki gera sér grein fyrir því að það
voru ekki bara kröfuhafarnir sem
glötuðu allri virðingu fyrir þeim
þegar buxurnar þeirra fóru að
blotna heldur hið alþjóðlega sam
félag allt og ekki síst íslensk þjóð.
Að kunna ekki að skammast sín
Það var formaður fjárlaganefndar
sem lét hafa það eftir sér um daginn
að Páll Matthíasson, forstjóri Land
spítalans, hefði beitt nefndina and
legu ofbeldi þegar hann reyndi að
útskýra fyrir henni fjárþörf spítal
ans. Þar gætti svolítils misskilnings
af hennar hálfu því þótt það hafi
brunnið á hörundi nefndarmanna
að heyra lýst þeirri þörf sjúklinga
sem þeir ætluðu ekki að mæta þá
er ekki um ofbeldi að ræða af Páls
hálfu heldur lýsingu á raunveru
leika. Það má hins vegar deila um
það hvað væri viðeigandi nafn á
þann gjörning nefndarinnar sem
fólst í því að daufheyrast við baráttu
Páls fyrir því að spítalinn fengi í það
minnsta að halda í horfinu.
Í stað þess að skammast sín ákvað
formaðurinn að veitast að Páli og
kalla hófstillta baráttu hans fyrir
hagsmunum þeirra sem minnst
mega sín í íslensku samfélagi and
legt ofbeldi. Nefndin virðist gleyma
því að Páll er ekki að tala um göt í
gegnum fjöll eða sendiráð í Tókíó
heldur sjúkdóma fólksins í land
inu, sársauka, kvíða, angist og líf og
dauða og síðan sjúkdóma, sársauka,
kvíða, angist og líf og dauða foreldra
og barna fólksins. Og nefndin dauf
heyrist við því af botnlausum hroka
og grimmd.
Við þetta verður ekki búið af því
að í þessu landi býr gott fólk sem
þykir vænt hverju um annað þótt á
því finnist kannski einstaka undan
tekningar í ríkisstjórnum og þing
nefndum. Þess vegna vil ég láta fjár
laganefnd vita að ef hún breytir ekki
frumvarpinu á þann veg að mun
meira fari til Landspítalans munum
við nokkrir félagar safna 100.000
undirskriftum undir plagg sem
hvetur landsmenn til þess að kjósa
aldrei aftur þá stjórnmálaflokka
sem standa að þessari ríkisstjórn
vegna þess kulda og afskiptaleysis
sem hún sýnir sjúkum og meiddum
í okkar samfélagi. Söfnunin verður
létt verk og löðurmannlegt. Þjóð
inni ofbýður.
FréttAblAðið/GVA
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r30 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð