Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 64
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. „Við ætlum að gefa hefti með völdum textum úr mörgum bókum Halldórs Kiljan sem eiga að höfða til barna og henta til flutnings. Það er gert í til- efni þess að í dag eru 60 ár frá því hann veitti Nóbelsverðlaunum viðtöku,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður Gljúfrasteins, sem stendur fyrir viðburði í Varmár skóla í Mosfellsbæ í dag klukkan 13, ásamt Röddum, samtaka um vand- aðan upplestur og framsögn. Þar mun Kristín Helga Gunnarsdóttir, formaður Rithöfundasambandsins, afhenda gjöfina formlega og krakkarnir í skólanum leika og syngja. Baldur Sigurðsson, dósent á mennta- vísindasviði Háskóla Íslands, valdi efnið upphaflega árið 2002, ásamt Ingibjörgu Einarsdóttur, að sögn Guðnýjar Dóru. Nú yfirfór hann það og gaf því nafnið Þegar lífið knýr dyra – um börn á þröskuldi fullorðinsára í verkum Halldórs Laxness. Heftið er upp á 60 síður í PDF-formi og Guðný Dóra kveðst senda það í tölvu- pósti í alla skóla landsins. „Það er gaman fyrir okkur á Gljúfrasteini að vita til þess að nú getum við náð til allra barna á landinu og haft áhrif til framtíðar,“ segir hún og tekur fram að efnið sé aðgengilegt á heimasíðu safnsins. gun@frettabladid.is Gjöf til barna landsins Í tilefni af 60 ára afmæli Nóbelsverðlauna Halldórs Laxness verður úrval texta  skáldsins formlega afhent í Varmárskóla í Mosfellsbæ í dag með viðhöfn. Úr heftinu Þegar lífið knýr dyra Ætli lóan mundi þekkja aftur íslenskan dreng eða íslenska stúlku ef þau færu út í heim að leita hennar og fyndu hana í staðnum þar sem hún á heima þegar hún er ekki hjá okkur? Við vitum það ekki. Kanski. Það hefur ekki verið reynt. En ég held það nú samt. (Gjörningabók. Lóan, 1958) „Gjöfin nær til alls landsins og hefur áhrif til framtíðar,“ segir Guðný Dóra, forstöðumaður Gljúfrasteins. Fréttablaðið/SteFán Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Guðmundur Þorvar Jónasson kaupmaður og matreiðslumaður, Samtúni 4, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 6. desember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 13.00. Sigrún Sigvaldadóttir Margrét Rún Guðmundsdóttir Anton Þ. Guðmundsson Ester Sigurbergsdóttir Þorvar Bjarmi Harðarson Bjarki Oddsteinsson Eyþór Antonsson Sara Rún Antonsdóttir Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þóra Viktorsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt laugardagsins 5. desember. Jarðarför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 13.00. Halldór Úlfarsson Fríða Rögnvaldsdóttir Þóra Úlfarsdóttir Ásgeir Magnússon Ásdís Halldórsdóttir Guðmundur Finnbogason Úlfar Þór Halldórsson Arna Dögg Gunnlaugsdóttir Magnús Ásgeirsson Þóra Björg Ásgeirsdóttir Erla Ásgeirsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Logi Sævar Jóhannsson Suðurgötu 38, Akranesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut, 2. desember. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 14. desember kl. 13.00. Jóhanna M. Vestmann Gísli Gíslason Guðný Ruth Þorfinnsdóttir Einar Gíslason Jóhann Gíslason Sólrún K. Kristinsdóttir Aðalbjörn Kristinsson Laufey Logadóttir og afabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Björgvins Þorvaldssonar Greniteigi 2, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir góða umönnun. Kristján Björgvinsson Elínborg Sigurðardóttir Sigrún Björgvinsdóttir Smári Friðriksson Björgvin Björgvinsson Linda Rós Björgvinsdóttir Benedikt Viggósson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Hjördísar Halldórsdóttur Bólstaðarhlíð 45. Steinunn Björnsdóttir Eiríkur Björnsson Matthildur B. Stefánsdóttir Birgir Björnsson Björk Alfreðsdóttir Anna Björnsdóttir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Guðrún Ása Gústafsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Reykjanesbæ, þann 29. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum vináttu og hlýhug í okkar garð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilanna Garðvangs og Hrafnistu. Eðvarð Felixson Eðvarð Þór Eðvarðsson Anna Lilja Lárusdóttir Rúnar Ingi, Ólöf Edda og Eðvarð Már Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Björns Magnússonar vélfræðings, fer fram mánudaginn 14. desember frá Digraneskirkju kl. 13.00. Astrid Sigrún Kaaber Heiðrún Björnsdóttir Magnús Björn Björnsson Guðrún D. Guðmannsdóttir Ragnar H. Björnsson Mona Janz Björnsson Sigrún Birna Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Örlygs Ívarssonar tæknifræðings, Kvistagerði 6, Akureyri. Bryndís Þorvaldsdóttir Ormarr Örlygsson Valgerður Vilhelmsdóttir Þorvaldur Örlygsson Ólöf Mjöll Ellertsdóttir Harpa María Örlygsdóttir Andri Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir afi og langafi, Sigurður Ívar Sigurðsson vélfræðingur, Skipalóni 12, lést á Sólvangi 22. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 11. desember kl. 13.00. Guðrún Emilsdóttir Guðfinna Guðmundsdóttir Björn Bárðarson Emil Lárus Sigurðsson Ellý Erlingsdóttir Kristján Sigurðsson Berta Faber barnabörn og langafabarn. 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r44 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.