Fréttablaðið - 10.12.2015, Síða 80
10. desember 2015
Leiðsögn
Hvað? Leiðsögn um GraN
Hvenær? 12.15
Hvar? Listasafn Akureyrar
Í dag verður boðið upp á síðustu
leiðsögn um sýninguna GraN 2015.
Sýningunni lýkur næstkomandi
sunnudag, 13. desember, og er því
jafnframt um síðustu leiðsögn ársins
að ræða í Listasafninu. Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi Lista-
safnsins, tekur á móti gestum og fræðir
þá um sýninguna og einstaka verk.
Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Hvað? Jólatónar á aðventu í Neskirkju
Hvenær? 20.30
Hvar? Neskirkja
Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju
og Drengjakór Reykjavíkur taka þátt í
tónleikunum og flytja fyrir gesti tón-
list tengda jólum, allt frá þekktum
jólasálmum eins og „Nóttin var sú
ágæt ein“ yfir í verkin „O Magnum
Mysterium“ eftir Morten Lauridsen
og „Where riches is everlastingly“
eftir Bob Chilcott. Allir velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Hvað? Borgardætur
Hvenær? 21.00
Hvar? Café Rosenberg
Borgardætur halda sína árlegu jólatón-
leika á Rosenberg í kvöld. Á efnisskrá
eru jólalög úr ýmsum áttum, gaman-
mál og sprell. Miðasala á midi.is.
Hvað? Jólasöngvar og biblíusögur
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
Hvenær? 20.00
Hvar? Sólon
Bjarni Karlsson segir ástarsögu
jólanna með myndlýsingum lista-
konunnar Fridu Adriönu Martins
og útskýrir hvernig trúin á Jesú gefur
fólki von á Sólon í kvöld. Glaðsveitin
Hjalti Jón Sverrisson og Hrafnkell Már
Einarsson leika lög og sálma fyrir gesti
og gangandi. Allir velkomnir.
Hvað? Kirkjan ómar öll
Hvenær? 20.00
Hvar? Fella-og Hólakirkja
Breiðfirðingakórinn verður með
jólatónleika í kvöld, þar sem flutt
verða fjölbreytt jólalög. Stjórnandi
kórsins er Julian Hewlett, einsöngvari
Íris Sveinsdóttir sópran og Guð-
ríður St. Sigurðardóttir leikur á píanó.
Aðgangseyrir er 3.000 krónur.
Hvað? Náttmál/Umbra
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi
Fimm tónlistarkonur, sem skipa tón-
listarhópinn Umbru, ætla að flytja
íslensk og ensk þjóðlög og jólalög.
Umbra er skipuð þeim Alexöndru
Kjeld, Arngerði Maríu Árnadóttur,
Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur,
Kristínu Þóru Haraldsdóttur og Lilju
Dögg Gunnarsdóttur. Tónleikarnir
nefnast Náttmál, þarna mun tregafullt
andrúmsloft ríkja enda snúast text-
arnir flestir um dekkri og angurværari
hliðar mannlegrar tilvistar.
Bókmenntir
Hvað? Einar Már og Sjón lesa upp á
Kjarvalsstöðum
Hvenær? 12.15
Hvar? Kjarvalsstaðir
Skáldin Einar Már Guðmundsson
og Sjón lesa upp úr nýjum bókum
sínum á kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum
í dag. Einar Már les upp úr bókinni
Hundadagar sem hlaut á dögunum
tilnefningu til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Bókin fjallar m.a. um
Jörund hundadagakonung, Jón Stein-
grímsson eldklerk og fleira fólk fyrri
alda. Allir velkomnir.
Fyrirlestrar og fundir
Hvað? Fyrirlestraröð Miðaldastofu
Hvenær? 16.30
Hvar? Askja
Í dag verða fluttir tveir fyrirlestrar í
fyrirlestraröð Miðaldastofu HÍ um
Sturlungaöld og verður þar fjallað
um handrit og húsakynni á Sturl-
ungaöld. Guðrún Harðardóttir og
Guðvarður Már Gunnlaugsson taka
til máls. Fyrirlestrarnir eru öllum
opnir, og aðgangur ókeypis.
Hvað? Konur og margþætt mismunun.
Opinn fundur mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar
Hvenær? 12.00
Hvar? Iðnó
Í dag stendur mannréttindaráð fyrir
opnum fundi í Iðnó á alþjóðlegum
degi mannréttinda. Mun Sóley Tómas-
dóttir, Sigrún Daníelsdóttir, Þórunn
H. Sveinbjörnsdóttir, Embla Guðrúnar
Ágústsdóttir og Andrea Gutierrez taka
til máls. Magnús Már Guðmundsson
er fundarstjóri. Allir velkomnir.
Hvað? Opið hús og félagsfundur Rauða
krossins í Reykjavík
Hvenær? 17.30
Hvar? Efstaleiti 9
Hús og félagsfundur í nýjum húsa-
kynnum Rauða krossins í dag, en
skrifstofan og sjálfboðaliðamiðstöðin
var nýverið flutt í Efstaleiti 9. Drög að
nýrri stefnu verða kynnt á fundinum
auk þess sem kynning stjórnar fer
fram frá 17.45 til 18.15. Í framhaldi
verður boðið upp á létt og jólalegt
söngatriði.
Hvað? Morgunverðarfundur: Karlar á
Stígamótum
Hvenær? 8.00
Hvar? Stígamót
Síðasti fundur fyrirlestraraðar Stíga-
móta fyrir jól fer fram í dag og verður
sjónum beint að karlkyns brota-
þolum. Hallgrímur Helgason flytur
erindi og les upp úr bók sinni. Einnig
verður nýr fræðslubæklingur kynntur.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Uppistand
Hvað? Jólauppistand
Hvenær? 21.30
Hvar? Bar 11
Ari Eldjárn, Andri Ívars, Darren
Foreman og Sigurður Anton munu
standa grínvaktina á jólauppistandi
Uppistand.is sem fram fer á Bar 11 í
kvöld. Aðgangseyrir 1.000 krónur.
Hvað? Pétur Jóhann óheflaður
Hvenær? 22.00
Hvar? Tjarnarbíó
Sýningin er tveggja klukkustunda
uppistandssýning samin af Pétri
Jóhanni sjálfum. Miðasala á midi.is.
Skák
Hvað? Jólaskákmót Stofunnar og
Hróksins
Hvenær? 20.00
Hvar? Stofan
Jólaskákmót Stofunnar & Hróksins fer
fram í kvöld. Tefldar verða 8 umferðir
með 5 mínútna umhugsunartíma.
Allir velkomnir.
KRAMPUS 5:45, 8, 10:45
HUNGER GAMES 4 8, 10:10
THE NIGHT BEFORE 8, 10:10
GÓÐA RISAEÐLAN 5:15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
bio. siSAM
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
AKUREYRIKEFLAVÍK
ÁLFABAKKA
IN THE HEART OF THE SEA 2D KL. 8 - 10:40
SURVIVOR KL. 8
GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 3D KL. 5:50
THE GOOD DINOSAUR ENSKT TAL 2D KL. 5:50
SOLACE KL. 10:10
IN THE HEART OF THE SEA 2D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IN THE HEART OF THE SEA 2D VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40
IN THE HEART OF THE SEA 3D ÓTEXTUÐ KL. 9
SURVIVOR KL. 8 - 10:10
GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 2D KL. 5:50
GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 3D KL. 6:30
THE GOOD DINOSAUR ENSKT TAL 2D KL. 5:50 - 8
SOLACE KL. 8 - 10:40
PAN ÍSLTAL 2D KL. 5:30
EVEREST 2D KL. 10:10
IN THE HEART OF THE SEA 2D KL. 5:30 - 8 - 10:35
GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 2D KL. 5:40
SOLACE KL. 5:40 - 8
SPECTRE KL. 6 - 8 - 9
THE LAST WITCH HUNTER KL. 10:20
IN THE HEART OF THE SEA 2D KL. 5:20 - 8 - 10:40
SURVIVOR KL. 8
GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 2D KL. 5:50
SPECTRE KL. 5:20 - 8:30 - 10:20
IN THE HEART OF THE SEA 2D KL. 8 - 10:40
KRAMPUS KL. 8
HUNGER GAMES 2D KL. 10:20
EGILSHÖLL
DAILY MIRROR
THE TIMES
COLIN FARRELLANTHONY HOPKINS
Frá þeim sömu og færðu okkur
THE WRAP
THE PLAYLIST
LOS ANGELES TIMES
THE NEW YORK TIMES
CHRIS HEMSWORTH FER FYRIR ÚRVALSLIÐI
LEIKARA Í ÞESSARI MÖGNUÐU MYND
SAGAN UM MOBY DICK BYGGIR Á RAUNVERULEGUM
ATBURÐUM – ÞETTA ER SÚ SAGA.
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM
RON HOWARD
Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is
Tom Hanks magnaður
í kaldastríðstrylli
Steven Spilebergs
Sparrows / Þrestir ENG SUB 20:00
Glænýja Testamentið 22:00
Macbeth 22:00
Virgin mountain ENG SUB 22:00
The Program 18:00
Dheepan 17:45
Rams / Hrútar ENG SUB 18:00
45 years 20:00
Valley of Love 20:00
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Ari Eldjárn er með jólauppistand.Borgardætur eru mættar á Cafe Rósenberg. Sóley Tómasdóttir verður í Iðnó í dag.
1 0 . d e S e m B e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r60 m e n n I n G ∙ F r É T T A B L A ð I ð