Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 2
Veður
Í dag nálgast lægð landið úr suðri með
austan og norðaustan hvassviðri eða
stormi, en hvassast verður um landið
norðvestanvert. Snjókoma á Vestfjörðum
og á annesjum norðvestanlands, slydda
eða rigning á Norðaustur- og Austurlandi,
en rigning syðra. Vægt frost víða fyrir
norðan en hiti að 7 stigum sunnan til.
Sjá SÍðu 52
Leikið á lagernum
Bernharður Wilkinson stýrði Sinfóníuhljómsveit Íslands er hún lék lög af nýútkominni jólaplötu Sinfóníunnar, Jólalög, í IKEA í Kauptúni. Gestir
verslunarinnar fengu því að njóta tónanna þegar þeir áttu leið hjá og ekki annað að sjá en þeir hafi fallið vel í kramið. Fréttablaðið/anton brink
Laust er fyrir nemendur á vorönn 2016 við
Hússtjórnarskóla Reykjavíkur.
Námið er ein önn, og hefst snemma í janúar.
Umsóknir sendist á netfangið husrvik@centrum.is eða
í gegnum heimasíðu skólans husstjornarskolinn.is
Ath. Mistök voru á heimasíðu skólans þar sem lokað var fyrir umsóknir.
Skólameistari
Skr
áni
ng
fyri
r vo
rön
n
201
6 st
end
ur y
fir.
Eins og sést á hjólförunum virða ekki alveg allir akstursbann á ísilögðu Hvaleyrar-
vatni. Fréttablaðið/GVa
Íþróttir „Við erum litnir hornauga
og flokkaðir sem minnihlutahópur,“
segir vélhjólamaðurinn Svavar Frið-
rik Smárason í bréfi þar sem hann
óskar eftir leyfi bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði til ísaksturs á Hvaleyrar-
vatni.
Svavar rekur í bréfinu að um
fimmtán manns séu í hópi vél-
hjólamanna sem stundi íscross,
það er akstur á ís. Leyfi sem þeir hafi
fengið árið 2001 til aksturs á Hval-
eyrarvatni hafi verið afturkallað í
desember 2008. Segir hann það vera
dapurlegt að hópurinn hafi mætt
miklu mótlæti hjá bæjaryfirvöldum.
„Lögreglan kemur iðulega og
rekur okkur í burt án þess að gefa
skýringar,“ skrifar Svavar sem
kveður lögregluna vísa á bæjaryfir-
völd. „Samkvæmt því sem ég kemst
næst er hávaðamengun orsök þeirra
kvartana sem borist hafa,“ heldur
Svavar áfram. Þess vegna hafi bær-
inn bannað ísaksturinn.
„Svæðið við Hvaleyrarvatn er úti-
vistarsvæði og opið öllum og fáum
við í flestum tilfellum jákvæð við-
brögð almennings,“ segir Svavar
og vitnar síðan til lagaákvæðis um
almenna umferð um vötn: „Öllum
er heimil för, þar með talið á farar-
tækjum, um vötn, einnig á ísi, með
þeim takmörkunum sem lög kveða
á um, þó þannig að það valdi ekki
truflun á veiðum manna.“
Þannig segir Svavar bæjaryfir-
völd „eiga í miklum erfiðleikum“
með að banna ísaksturinn. Hval-
eyrarvatn sé ekki í byggð og aðeins
sé um að ræða þrjár til fimm vikur á
ári. Miklu betra væri að leyfa þetta á
einum stað þar sem hægt sé að hafa
eftirlit í stað þess að menn séu að
stelast til að fá útrás.
„Þetta myndi skapa betri sam-
skipti á milli hjólamanna og ann-
arra hópa en í dag upplifum við
okkur alls staðar sem afgangs stærð
og erum því síður móttækilegir
fyrir vinsamlegum samskiptum
þar sem það skiptir ekki miklu máli
hvar við erum, alls staðar er amast
við okkur,“ segir Svavar í bréfinu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð
Hafnarfjarðar tók bréf Svavars fyrir
í gær og áréttaði að allur ísakstur
hefði verið óheimill á Hvaleyrar-
vatni frá árinu 2006.
gar@frettabladid.is
Ískrossmenn ósáttir að
fá ekki Hvaleyrarvatn
Vélhjólamenn sem stunda akstur á ísilögðum vötnum segjast vera afgangsstærð
og eru ósáttir við að fá ekki að stunda íþrótt sína á Hvaleyrarvatni. Þeir telji
bann sem Hafnarfjarðarbær setti á vera lögleysu. Bærinn áréttar að bannið gildi.
Þetta eru fáir dagar
á ári og engar
skemmdir fyrir utan
óánægju einhverra einstak-
linga.
Svavar Friðrik Smárason í bréfi til Hafnar-
fjarðarbæjar
FornleiFar Lindarvatn ehf. hefur
samið við fornleifafræðinginn Völu
Garðarsdóttur um að stýra forn-
leifauppgreftri á Landssímareitnum
svokallaða. Þá hefur einnig fengist
leyfi til að reisa hús yfir uppgröftinn
og mun hann hefjast á næstunni í
samráði við Minjastofnun.
Fyrirhugað er að reisa um 160 her-
bergja hótel, sem rekið verður af Ice-
landair Hotels, á reitnum og stendur
Lindarvatn að þeim framkvæmdum.
Áður en ráðist verður í þær verður
fyrst grafið eftir fornleifum og minj-
arnar sem á reitnum gætu fundist
rannsakaðar. Grafið verður upp í
tveimur áföngum, fyrst sunnan og
vestan við Landssímahúsið, síðan
verður grafið nær Vallarstræti.
„Lindarvatn ehf. vill standa sem
best að framkvæmdunum á svæðinu,
enda er það í hjarta borgarinnar,“
segir í tilkynningu fyrirtækisins. – þea
Grafa eftir
fornleifum á reit
Landssímans
lögreglumál Heimilisofbeldi er
að jafnaði tilkynnt til lögreglu
tvisvar á dag. Fram til 14. desem-
ber höfðu 766 tilvik verið tilkynnt
til lögreglunnar um land allt. 519
þeirra voru af hendi maka eða
fyrrverandi maka.
Þetta kemur fram í afbrota-
tíðindum ríkislögreglustjóra fyrir
nóvembermánuð. Farið hefur
verið eftir nýjum verklagsreglum
lögreglunnar um meðferð og
skráningu heimilisofbeldis í eitt
ár. Áður fyrr var heimilisofbeldi
ekki sérstaklega skráð og umfang
þess því illa kortlagt.
„Þetta nýja verklag hefur ótví-
rætt sannað gildi sitt og hjálpað
mörgum. Þetta er aukin vinna og
mikið álag á starfsfólk en algjör-
lega þess virði,“ segir Alda Hrönn
Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur
hjá lögreglustjóranum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Markmið hinnar nýju verklags-
reglu lögreglunnar var að ná utan
um brot sem sjaldan eru tilkynnt
en hafa tilhneigingu til að vera
ítrekuð og að stigmagnast. – snæ
Flest málin
eru vegna
ofbeldis af
hálfu maka
23%
tilvika heimilisofbeldis
gerast aðfaranótt sunnudags
eða á sunnudegi en tíundi
partur á sér stað á miðviku-
degi. Tólf prósent tilvikanna
eru vegna ofbeldis barns
gagnvart foreldri.
1 7 . d e S e m b e r 2 0 1 5 F i m m t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð