Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 6
Mótmælt í Albaníu
Albanskir háskólanemar hrópa slagorð gegn stjórnvöldum og halda á lofti mótmælaspjöldum fyrir framan
stjórnarráðshúsið í Tírana í Albaníu í gær. Mótmælt er nýrri löggjöf sem dregur úr framlögum til ríkishá-
skóla á sama tíma og einkaskólar fá aukinn opinberan stuðning. Á spjaldinu sem hér er haldið á lofti stendur:
„Óska mér ekki annars fyrir jólin en ókeypis menntunar af hálfu hins opinbera.“ Fréttablaðið/EPa
samgöngur Jákvæð áhrif hrað-
lestar milli Keflavíkurflugvallar og
Vatnsmýrar á umhverfi og samfélag
verða talsverð, segir í skýrslu Flug-
lestarinnar þróunarfélags ehf. sem
vinnur að verkefninu.
Fram kemur að hraðlestin sem
knúin verði með rafmagni fái það
frá HS Orku. „Nákvæmt mat á félags-
legum og umhverfislegum áhrifum
verður gert sem hluti af undirbún-
ingi lestarinnar,“ segir í skýrslunni.
Jákvæð umhverfisáhrif felist í tals-
vert skertum útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda með minnkandi akstri
bíla sem nota jarðefniseldsneyti.
Við hönnun verði meðal annars
litið til loftgæða, hávaða og titrings,
landslags og sjónrænna áhrifa.
Þá verði lagt mat á félagsleg
áhrif á borð við ferðamynstur, úti-
vist, ferðaþjónustu, landnotkun og
skipulagsmál.
„Félagslegur ávinningur af lest-
inni hefur verið reiknaður út, með
tilliti til umhverfisráhrifa og ágóða
notenda og aukins öryggis í umferð-
inni,“ segir í skýrslunni. Miðgildi úr
spám geri ráð fyrir að á þrjátíu árum
verði ávinningurinn fyrir notendur,
samfélagið og almenning um 368
milljónir evra – sem svarar til um
52 milljarða króna.
„Spáin lítur eingöngu til notenda,
félagslegs ávinnings varðandi örygg-
ismál og umhverfisáhrif og taps á
skatttekjum af jarðefnaeldsneyti
vegna minnkandi bílaumferðar,“
segir í skýrslunni sem unnin er af
RRV Consulting.
Efasemdir hafa komið fram um
hraðlestarverkefnið á samfélags-
miðlum á undanförnum dögum.
Til dæmis frá Stefáni Jóni Hafstein,
starfsmanni Þróunarsamvinnu-
stofnunar, sem kveðst fara oft um
Keflavíkurflugvöll.
Stefán bendir meðal annars á
þægindi einkabíla og segir þá og
rútur auk þess væntanlega almennt
verða orðnar rafknúnar þegar lestin
eigi að fara af stað árið 2024.
„Vatnsmýrin er í fæstum tilvikum
endastöð íslenskra og erlendra
ferðamanna heldur lykkja á leið
þeirra,“ segir Stefán í ítarlegri færslu
um málið á síðu sinni á Facebook.
Stefán leggur til aðra lausn. „Með
því að kaupa fjölda rafknúinna létt-
vagna og gera sérstaka akrein fyrir
þá 30 kílómetra leið millli KEF og
Hafnarfjarðar og þaðan með ólíkum
leiðum á ýmsa staði strax árið 2016-
17 má koma upp víðtæku umhverf-
isvænu og frekar ódýru dreifikerfi
um allt höfuðborgarsvæðið á einu
bretti. Bingó.“ gar@frettabladid.is
Samfélagið sagt græða
52 milljarða á hraðlest
Áætlað er að ágóði fyrir samfélagið af rekstri hraðlestar til Keflavíkurflugvallar
verði 52 milljarðar króna á þrjátíu árum. Hagnaður er sagður felast í ávinningi
farþega, auknu umferðaröryggi og jákvæðum umhverfisáhrifum. Margir efast.
Þannig sér björn reynisson fyrir sér hraðlestarstöð í reykjavík í útskriftarverkefni
sínu sem arkitekt vorið 2014. Mynd/björn rEynisson
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
72
59
3
Kanarí
Tenerife
Frá kr.
74.900
Kanarí &
Tenerife
Los Tilos
Frá kr. 74.900
Netverð á mann frá
kr. 74.900 m.v. 3 fullorðna
í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 79.900 m.v. 2 fullorðna
í íbúð.
4. janúar í 9 nætur.
Tamaimo Tropical
m/allt innifalið!
Frá kr. 113.900
Netverð á mann frá
kr. 118.900 m.v.
3 fullorðna í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 113.900 m.v.
2 fullorðna í stúdíó.
5. janúar í 8 nætur.
Jacaranda
m/hálft fæði innifalið!
Frá kr. 122.900
Netverð á mann frá
kr. 122.900 m.v.
2 fullorðna í herbergi.
5. janúar í 8 nætur.
Parquesol
Frá kr. 80.900
Netverð á mann frá
kr. 80.900 m.v. 4 fullorðna
í smáhýsi.
Netverð á mann frá
kr. 104.900 m.v.
2 fullorðna í smáhýsi.
4. janúar í 9 nætur.
Roque Nublo
Frá kr. 76.900
Netverð á mann frá
kr. 76.900 m.v. 3 fullorðna
í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 79.900 m.v. 2 fullorðna
í íbúð.
4. janúar í 9 nætur.
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T u d a g u r6 F r é T T I r ∙ F r é T T a b L a ð I ð