Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 8
Fólk Á meðan flestir þræða verslan
ir í leit að jólagjöfum og baka eina
til tvær smákökusortir á aðvent
unni býr Ingibjörg Sveinsdóttir
til heilt þorp af piparkökuhúsum.
Piparkökuhúsin eru löngu orðin
fastur liður aðventunnar, bæði hjá
henni og þeim sem fá húsin að gjöf.
„Ég byrjaði að gera piparkökuhús
fyrir 33 árum, þegar börnin mín
voru lítil. Þá gerði ég nú bara eitt,“
segir Ingibjörg hlæjandi en síðustu
ár hefur hún gert tuttugu hús fyrir
hver jól. „Núna eru þau aðeins tólf
því ég var svo lengi á Spáni. Maður
inn minn spurði hvort ég vildi ekki
bara sleppa þessu í ár því tíminn
var naumur. En þá koma engin jól,
svaraði ég honum.“
Það tekur tíma sinn að búa til tólf
piparkökuhús frá grunni. Ingibjörg
hóf verkið 24. nóvember og lauk því
í fyrrakvöld. Suma daga var hún að
frá morgni til kvölds. Fyrst þarf að
búa til gríðarlega mikið magn af
deigi, fletja, skera út, baka og kæla.
Og það er bara byrjunin. Næst þarf
að bræða sykur, setja húsin saman
og skreyta.
„Ég litaflokka M&M. Það gengur
ekki að vera með heitan sykur á hús
unum og þurfa að leita að réttum
litum. Svo brýt ég niður saltstangir
fyrir grindverkið og bý til gardínur í
glugganna úr blúndukartoni.“
Þrátt fyrir þennan fjölda húsa
heldur Ingibjörg ekki einu einasta
fyrir sig enda er eftirspurnin mikil.
Börnin hennar fá hús á sitt heimili
og svo er mikil eftirspurn allt í
kringum hana.
„Börnin fá eitt hús á sitt heimili,
ég hef gefið þau sem happdrættis
vinning og svo fá börn og barna
börn nágranna og vinkvenna hús.
Stundum hef ég ætlað að halda
einu húsi en ég enda alltaf á að gefa
það. Enda er þetta aðallega og ein
göngu gert til að gleðja og það er svo
gaman að gleðja börn.“
Ingibjörg þiggur enga hjálp við
húsasmíðina. „Maðurinn minn
bauð fram hjálp um daginn og ætl
aði að raða M&M á þakið. En hann
sneri því vitlaust – emmið þarf
að snúa upp – og svo urðu óvenju
mikil afföll þannig að hann var
rekinn úr starfinu,“ segir Ingibjörg
hlæjandi og neitar því að það verði
tómlegt þegar piparkökuhúsin
verða sótt á næstu dögum. „Ég þarf
að byrja á því að þrífa sykurinn af
eldhúsgólfinu og svo mun ég bara
hafa það huggulegt.“
erlabjorg@frettabladid.is
Rak bóndann vegna
affalla á skreytingum
Ingibjörg Sveinsdóttir notar aðventuna til að búa til piparkökuhús handa fjöl-
skyldu og vinum. Eldhúsið var undirlagt í heilan mánuð og allur hennar tími
fór í húsagerðina en samt heldur hún ekki einu einasta fyrir sig.
Stundum hefur Ingibjörg þurft að raða húsunum á stofugólfið og þá hefur henni dottið í hug að búa til þorp með bílum og
dúkkum. „Kannski á næsta ári,“ segir hún. FréttablaðIð/VIlhelm
Maðurinn minn
bauð fram hjálp um
daginn og ætlaði að raða
M&M á þakið. En hann sneri
því vitlaust – emmið þarf að
snúa upp – og svo urðu
óvenju mikil afföll þannig að
hann var rekinn úr starfinu.
Ingibjörg Sveinsdóttir
piparkökuhúsagerðarmeistari
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
LÚXUS
BÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
BMW X1 xDrive 25d
Nýskr. 08/2013, ekinn 30 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 7.350.000
DESEMBERVERÐ!
6.590 þús.
RANGE ROVER SPORT TDV6
Nýskr. 04/2011, ekinn 58 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 10.780 þús.
BMW X3 xDrive 20d
Nýskr. 12/2014, ekinn 5 þús km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður kr. 9.290.000
DESEMBERVERÐ kr. 7.990 þús.
RANGE ROVER VOGUE
Nýskr. 09/2008, ekinn 90 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.490 þús.
RANGE ROVER VOGUE
Nýskr. 08/2007, ekinn 110 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.850 þús.
BMW X5 xDrive 3.0i
Nýskr. 05/2006, ekinn 127 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.690 þús.
BMW X6 xDrive 40d
Nýskr. 01/2013, ekinn 33 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 13.900 þús.
Rnr. 131467
Rnr. 142774
Rnr. 131638
Rnr. 320399
Rnr. 191495
Rnr. 282516
Rnr. 320275
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
viðskipti AGC ehf. hefur stefnt Thor
sil, Reykjanesbæ og Reykjaneshöfn á
ný vegna lóðar sem fyrirtækið telur sig
hafa fengið loforð um að fá að leigja í
Helguvík. Þar hugðist fyrirtækið reisa
lífalkóhól og glýkólverksmiðju. Reykja
nesbær hefur úthlutað lóðinni til kísil
verksmiðju fyrir Thorsil.
Í stefnunni er vísað til tölvupósts
sem Pétur Jóhannsson, þáverandi
hafnarstjóri, sendi í ágúst árið 2011
þar sem fram kemur að Reykjanes
höfn sé reiðubúin að láta Thorsil
fá lóðina. Á þeim grunni hafi fyrir
tækið hafið vinnu við umhverfismat.
Í apríl 2014 gerði Reykjaneshöfn hins
vegar samning við Thorsil um leigu á
umræddri lóð.
Ráðgert er að verksmiðja Thorsil
taki til starfa árið 2018 og hefur fyrir
tækið tryggt sér orku frá HS Orku og
Landsvirkjun. Greiðslu Thorsil á gatna
gerðargjöldum hefur margsinnis verið
frestað, nú síðast fram til mars á næsta
ári. Fyrri stefnu í málinu var vísað frá í
Héraðsdómi Reykjaness þar sem ekki
var krafist að úthlutun Reykjaneshafn
ar til Thorsil yrði hnekkt. Hæstiréttur
Íslands staðfesti frávísunina. Því hefur
verið bætt við nýju stefnuna að sögn
Jóns Jónssonar, lögmanns AGC. – ih
AGC stefnir Thorsil og Reykjanesbæ á ný
aGC telur sig hafa fengið loforð um lóð við helguvík sem thorsil fékk úthlutað.
FréttablaðIð/GVa
Eftir frávísun málarekst-
urs bæði fyrir héraði og í
Hæstarétti hefur AGC ehf.
gert umbætur á málatilbún-
aði sínum og stefnt á ný.
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F i m m t U d A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð