Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 12
Miði fyrir tvo á ABBA söngleikinn sem enginn má missa af Mamma Mia 12.900 kr. Miði fyrir tvo á Njálu og eitt eintak af Brennu-Njáls sögu. Njála 12.200 kr. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gjafakort fyrir tvo og ljúffeng leikhúsmáltíð Leikhúskvöld fyrir sælkera 12.500 kr. Sérstök jólatilboð sjávarútvegur Fyrsta tilraun Haf- rannsóknastofnunar til að fá mat á fjölda hvala á loðnumiðum hér við land að haustlagi sýndi mikinn fjölda hvala á loðnumiðum. Þar sem loðna fannst sást að jafnaði einnig til hvala, aðallega hnúfubaks og langreyðar, og er metinn fjöldi þeirra ríflega 12.000 dýr á leitarsvæðinu. Hvalatalningar fara yfirleitt fram að sumarlagi, þegar talið er að fjöldinn sé mestur á norðlægum fæðuslóðum eins og hér við land, en auk þess eru taln- ingar utan þess tíma erfiðar vegna veð- urs og birtuskilyrða. Lengi hefur verið vitað af talsverðum fjölda hnúfubaka hér við land að vetrarlagi og að þeir virðast fylgja loðnugöngum, en raun- verulegur fjöldi þeirra hefur hingað til verið óþekktur. Þá sýna niðurstöð- urnar einnig umtalsverðan fjölda lang- reyða á loðnumiðum, en að sumarlagi lifir sú tegund að mestu á ljósátu hér við land. Ekki var gerð tilraun til að meta nákvæmni matsins, en þó ljóst að nákvæmnin er minni en í hefð- bundnum talningum. Líklegra verður að teljast að um vanmat sé að ræða en ofmat, þar sem ekkert náðist að telja á öllu svæðinu vegna veðurs, en víða var talsverð loðna, og ekki tókst að greina alla stórhvali til tegundar. Þá er vitað að töluvert af hnúfubak heldur sig hér við land á sama tíma utan loðnu- svæðisins. Leiðangur Hafrannsóknastofnunar var farinn á tímabilinu 16. september til 4. október, en mikið sást einnig af hval í loðnuleiðangri 17. til 29. nóv- ember en þá fór ekki samhliða fram könnun á þéttleika hvala. – shá Hafrannsóknastofnun sér hvali í loðnuáti í þúsundavís Staðfestur hefur verið grunur um mikinn fjölda stórhvala við Ísland á haustin. fréttablaðið/vilhelm Hingað til hefur fjöldi hnúfubaka sem fylgir loðnugöngum hér við land verið óþekktur. Skemmtipakkinn 365.is | Sími 1817 FRÁBÆR DAGSKRÁ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Tryggðu þér áskrift á 365.is Sími: 540 2050 | pontun@penninn.is Tilboðsverð gilda frá 16. desember, til og með 20. desember. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. Vildarverð 14.122.- Almennt verð 18.829.- tyrkland „Með því að fá Tyrkland til þess að vera hliðvörð fyrir Evr- ópu  gagnvart flóttamannavand- anum, þá á Evrópusambandið á hættu að hafa að engu og nú hvetja til alvarlegra mannréttindabrota,“ hefur BBC eftir John Dalhuisen, yfir- manni mannréttindasamtakanna Amnesty International í Evrópu og Mið-Asíu. Samtökin hafa sent frá sér skýrslu um framferði Tyrklands gagnvart flóttafólki, sem streymt hefur þang- að milljónum saman undanfarin ár frá Sýrlandi og fleiri löndum. Í skýrslunni er greint frá örlögum hundraða flóttamanna, sem hafa verið handteknir í Tyrklandi, haldið þar langtímum saman í fangelsi án þess að fá að hafa nokkur samskipti við umheiminn, og í sumum til- vikum reknir aftur til ættlandsins, sem þeir voru að flýja frá. Fleiri hundruð þúsund flótta- manna hafa á síðustu misserum, og flestir á þessu ári, farið frá Tyrk- landi yfir hafið til Grikklands, oft á yfirfullum gúmmíbátum eða hrör- legum skipum, og þaðan áfram til annarra Evrópuríkja. Tugir þúsunda hafa drukknað í hafinu. Í nóvember síðastliðnum gerði Evrópusambandið samning við Tyrkland, sem felur í sér að ESB greiði Tyrkjum þrjár milljónir evra til þess að bæta aðstöðu flóttafólks í Tyrklandi. Þetta er gert í von um að flóttafólkið verði frekar um kyrrt í Tyrklandi í staðinn fyrir að halda áfram til Evrópu. Amnesty fagnar þessum fjárfram- lögum, en varar við því að meðferð flóttafólks í Tyrklandi sé engan veg- inn til fyrirmyndar. Tyrknesk stjórnvöld vísa hins vegar ásökunum Amnesty alfarið á bug. Ekki einn einasti flóttamaður hafi verið þvingaður til að fara aftur til Sýrlands. Í skýrslunni segir Amnesty reynd- ar að þau dæmi, sem fundist hafa um illa meðferð á flóttafólki og nauð- ungarflutninga úr landi, stangist á við þá almennu velvild og mannúð sem tyrknesk stjórnvöld hafi sýnt flóttafólki og hælisleitendum. Flest dæmin, sem nefnd eru,  eru hins vegar frá því í haust, eða frá svip- uðum tíma og samningaviðræður við Evrópusambandið stóðu yfir. Því segir Amnesty vart annað hægt en að draga þá ályktun að með þessu hafi Tyrkir verið að bregðast við kröfum frá Evrópusambandinu um að stöðva flóttafólkið, sem hefur streymt yfir hafið frá Tyrklandi til Grikklands. gudsteinn@frettabladid.is Tyrkir eru sagðir fara illa með flóttafólk Amnesty International sakar Evrópusambandið um fljótfærni. Samtökin segja að rifta eigi samningnum við Tyrkland frá því í nóvember. Hundruð flótta- manna hafi verið rekin aftur til Sýrlands. Yfirfullur bátur kemur að landi á grísku eyjunni lesbos, eftir siglingu frá tyrklandi. myndin er tekin í október síðastliðnum. fréttablaðið/ePa 792 þúsund manns fóru yfir hafið frá Tyrklandi til Grikk- lands á tímabilinu 1. janúar til 10. desember á þessu ári. dómsmál Lárus Welding, fyrrver- andi forstjóri Glitnis, og Jóhannes Baldursson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans, eru á meðal sakborninga í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis sem sérstakur saksóknari hefur haft til rannsóknar undanfarin ár. Þetta herma heimildir Vísis, sem greindi frá málinu í gær. Jóhannes var fyrr í mánuðinum dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti vegna BK-málsins, og þá voru bæði hann og Lárus ákærðir í Stím-málinu en dóms- uppsaga verður í því næstkomandi mánudag í Héraðsdómi Reykja- víkur. Rannsókn á meintri markaðs- misnotkun Glitnis í aðdraganda bankahrunsins 2008 er lokið. Málið snýr annars vegar að kaupum Glitnis á eigin hluta- bréfum og svo hins vegar að því með hvaða hætti bréfin voru seld frá bankanum. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, er stefnt að því að ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út í mál- inu, eða ekki, liggi fyrir á fyrstu þremur mánuðum næsta árs. – skh Lárus og Jóhannes á meðal sakborninga lárus Welding var forstjóri Glitnis hrunárið 2008. 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m t u d a g u r12 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.