Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 26
Leggja til að
fækka ríkisstofnunum
úr í 188 70
Ísland er örríki í alþjóðlegum saman-
burði. Kostnaður af því að halda úti
stofnanakerfi sem jafnast á við mun
fjölmennari þjóðir er gríðarlegur,
því leggur Viðskiptaráð Íslands til
að fækka ríkisstofnunum úr 188 í 70.
Þetta kemur fram í nýrri skoðun Við-
skiptaráðs, Sníðum stakk eftir vexti, 30
tillögur að fækkun ríkisstofnana.
„Það sem við erum að benda á er að
í fámennari ríkjum er kostnaðurinn
meiri við flókið stofnanakerfi,“ segir
Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræð-
ingur Viðskiptaráðs.
„Við erum ekki að leggja til að
kjarnastarfsemi þessara stofnana
verði minnkuð, við erum að leggja
til að draga úr kostnaði meðal
annars vegna stjórnunarkostnaðar
og stofnþjónustu. Sá kostnaður
dregur úr getu þessara stofnana til
að sinna hlutverkum sínum með
fullnægjandi hætti,“ segir Björn
Brynjúlfur.
Viðskiptaráð telur að engin efnis-
leg rök standi í vegi fyrir einföldun
stofnanakerfisins, reynsla af sam-
einingum hafi verið jákvæð. Eftir
sameiningu lögregluembætta í upp-
hafi árs 2007 hafi þjónustan batnað;
hlutfall upplýstra mála jókst um 29
prósent, eignaspjöllum fækkaði um
40 prósent og ánægja með störf lög-
reglunnar jókst um fimm prósent.
Hinar þrjátíu tillögur Viðskipta-
ráðsins skiptast í fjórar tegundir fækk-
ana: samrekstur, faglega sameiningu,
hreina sameiningu og aflagningu
starfsemi. Fækka mætti um 68 stofn-
anir með samrekstri, þá væru stofn-
anir reknar í sameiningu án þess að
starfsstöðvum fækkaði. Ráðið bendir
til dæmis á að hægt væri að reka öll
söfn á vegum hins opinbera undir
safnastofnun.
Björn Brynjúlfur telur að tvímæla-
laust sé vilji til að fækka stofnunum.
„Margir hafa talað fyrir því að fækka
stofnunum og við viljum vekja athygli á
þessu til að því verði fylgt eftir. Viljinn er
ekki nóg, það þurfa aðgerðir að fylgja.“
Viðskiptaráð leggur til aflagningu
fimm ríkisstofnana, Íbúðalánasjóðs,
Umboðsmanns skuldara, ÁTVR, Þró-
unarsamvinnustofnunar Íslands og
Bankasýslu ríkisins. Að mati ráðsins
eru stofnanirnar óþarfar. Verkefni
þeirra ætti ýmist að leggja niður alfar-
ið eða færa til annarra stofnana eða
einkaaðila.
Björn Brynjúlfur telur að ekki sé
of djúpt tekið í árinni með þessum
tillögum, þær byggi flestallar á ítar-
legum greiningum sem hafa verið
unnar áður. „Við teljum að þær séu
raunhæfar. Við teljum að Ísland sem
ríki ætti að leitast við að reka sem allra
fæstar stofnanir. Vegna kostnaðar og
smæðar. Örstofnanir eru illa til þess
fallnar að sinna hlutverkum sínum
með fullnægjandi hætti.“
Ráðið telur einnig að af nægu sé að
taka þegar kemur að sameiningum
á sveitarstjórnarstiginu. Það séu
meðal annars tækifæri til samrekstrar
þegar kemur að leik- og grunnskóla-
kerfinu. „Mikilvægast af öllu er að
fækka sveitar félögunum sjálfum. Þau
eru núna 74 og það er í algjöru ósam-
ræmi við önnur Norðurlönd og það
sem við þekkjum í öðrum ríkjum, og
það er afar óhagkvæmt fyrirkomu-
lag. Sveitarfélögum fækkaði umtals-
vert í kringum síðustu aldamót, en
undanfarin ár hefur mjög hægt á
þeirri þróun. Þess vegna hvetjum við
til þess að lagasetningu sé beitt til að
tryggja frekari sameiningar, til dæmis
með ákvæði um lágmarksfjölda íbúa
í sveitarfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur.
Meðal stofnana sem Viðskiptaráð Íslands vill leggja niður er Íbúðalánasjóður.
Fréttablaðið/gVa
l Stofnanir sem starfa
innan sama mála-
flokks sameinist
l Umhverfis- og auð-
lindastjórnun ríkisins
verði á einum stað
l Stofnanir með skörun
í starfsemi sameinist
l Fjölmiðlan. og Póst- og
fjarskiptastofnun sam-
einist Samk.eftirliti
l Stofnanir með óþarfa
starfsemi verði lagðar
niður
l Umboðsmaður
skuldara verði lagður
niður
✿ Hægt er að fækka ríkisstofnunum um alls 118✿ Dæmi um hreinar sameiningar ✿ Dæmi um samrekstur
68
27
18
5
118
Lýsing Dæmitegund Fjöldi stofnana
Fagleg
sameining
Hrein
sameining
Aflagning
Samtals
Heimild: Viðskiptaráð Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Landbúnaðarháskóli
Íslands
Listasafn
Einars Jónssonar
Tilraunastöð
Háskólans á Keldum
Náttúruminjasafn
Íslands
Stofnun
Árna Magnússonar
Listasafn Íslands
Háskólinn á Akureyri
Þjóðminjasafn Íslands
Safnastofnun
Háskólinn á Hólum
Hljóðbókasafn Íslands
Náttúrurannsóknarst.
v. Mývatn
Kvikmyndasafn Íslands
Landsbókasafn Íslands
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar Þjóðskjalasafn Íslands
Viðskiptaráð Íslands birtir í dag þrjátíu tillögur til að fækka ríkisstofnunum. Það
er mat ráðsins að allt of margar stofnanir séu reknar á Íslandi í samanburði við
önnur lönd. Viðskiptaráð vill leggja niður fimm ríkisstofnanir og breyta öðrum.
Margir hafa talað
fyrir því að fækka
stofnunum og við viljum
vekja athygli á þessu til að
því verði fylgt eftir.
Björn Brynjúlfur Björnsson,
hagfræðingur Viðskiptaráðs
Olíuvinnslufyrirtækið Fáfnir Off-
shore tapaði 3,5 milljónum norskra
króna á síðasta ári, jafnvirði 50
milljóna íslenskra króna miðað við
núverandi gengi.
Í ársreikningnum kemur fram að
síðasta ár hafi verið fyrsta rekstrarár
Fáfnis sem hafi hafið rekstur í maí.
Um haustið fékk félagið afhent dýrasta
skip Íslandssögunnar, þjónustuskipið
Polarsyssel, sem bókfært er á 334 millj-
ónir norskra króna, um 5 milljarða
íslenskra króna. Verkefnum fyrir olíu-
vinnsluskip hefur fækkað verulega
frá því að olíuverð tók að falla í fyrra-
sumar. Verð á tunnu af Brent-hráolíu
stendur nú í 38 dollurum á tunnu en
var ríflega 110 sumarið 2014, um það
leyti sem Fáfnir hóf rekstur.
Fáfni tókst engu að síður að
tryggja að Polarsyssel fengi við-
bótarsamning við sýslumanninn á
Svalbarða. Skipið mun nú þjónusta
sýslumannsembættið níu mánuði á
ári í stað sex mánaða áður. Með við-
bótinni er áætlað að tekjur Fáfnis af
leigu Polarsyssel nemi um 840 millj-
ónum íslenskra króna á ári. Tekjur
Fáfnis á síðasta ári námu hálfum
milljarði króna.
Fáfnir er með annað enn stærra
og dýrara olíuþjónustuskip í smíð-
um en afhendingu þess hefur verið
frestað nokkrum sinnum vegna
erfiðra markaðsaðstæðna, nú síðast
fram til ársins 2017.
Eignir Fáfnis voru bókfærðar
á tæpa 5,8 milljarða króna um
síðustu áramót, skuldir á 2,9 millj-
arða. Þá hafa hluthafar Fáfnis lagt
2,9 milljarða króna af eigin fé inn í
félagið. – ih
Fáfnir Offshore tapar 50 milljónum
Polarsyssel er í útleigu hjá sýslumann-
inum á Svalbarða níu mánuði á ári.
Samkvæmt greiningaraðilum Econ-
omist Intelligence Unit (EIU) er minni
hagvöxtur í Kína stærsta ógnin sem
alþjóðahagkerfið horfir á móti á nýju
ári.
Í nýrri skýrslu EIU segir að kínverska
hagkerfið sjái fram á mikla erfiðleika
á næsta ári, bæði vegna sveiflna á inn-
lendum hlutabréfamarkaði, minni
útflutnings og minna fjármagnsút-
streymis.
Slæm efnahagsskilyrði í Kína á árinu
2015 höfðu gríðarleg áhrif á alþjóða-
markaði. Hrun varð á kínverskum
hlutabréfamarkaði um miðjan júní.
Þriðjungur af virði A-hlutabréfa á
Shanghai-hlutabréfamarkaðnum
hvarf á einum mánuði í kjölfarið.
Mikil eftirköst urðu 27. júlí og 24. ágúst.
Dow Jones-vísitalan í Bandaríkjunum
hrundi um þúsund stig þann 24. ágúst
sem er stærsta hrun í sögu vísitölunnar.
Hagvöxtur í Kína hefur dregist
saman frá árinu 2011, eftir að hafa
mælst 10,6 prósent árið 2010. Spáð
er að hann muni mælast 6,9 prósent í
lok þessa árs. Í skýrslunni er því spáð
að hagvöxtur í Kína gæti lækkað í 4,9
prósent í lok áratugarins. – sg
Þróunin í Kína hræðir
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
4,9%
gæti orðið samdráttur hag-
vaxtar í Kína í ár.
ViðsKipti
l Stofnanir reknar í
sameiningu án þess að
starfsstöðvum fækki
l Rekstrareiningum á
framhaldsskólastigi
verði fækkað
1 7 . D E S E M b E r 2 0 1 5 F I M M T U D A G U r26 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
Sam-
rekstur