Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 30
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Svo ber til um þessar mundir á Íslandi að veikum börnum fátæks fólks er vísað úr landi. En þess ber að geta að börnin eru útlendingar. Útlendingastofnun hafnaði beiðni um dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Í lögum um útlendinga segir í grein 12f að heimilt sé að veita útlendingi dvalarleyfi ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess. Heil- brigðisástæður falla undir það skv. lagagreininni og sérstaklega ef börn eiga í hlut. Segir þá að hafa skuli það að leiðarljósi sem barni er fyrir bestu. Til viðbótar er barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna orðinn að sérstökum lögum á Íslandi. Í 22. grein samningsins er mælt fyrir um að stjórnvöld tryggi barni sem leitað hefur eftir aðstoð sem flóttamaður viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð og í 24. grein viðurkenna stjórnvöld skyldu sína til þess að tryggja barni bestu aðstöðu til læknisþjónustu. Aðstæður þarf að meta og Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, gerði það og sagði svo nei, ég get ekki annað. Líklega ná þessi lög ekki til Albana. Undanfarin tvö ár hafa fjölmargir Albanar sótt um hæli en enginn fengið. Ráðherra Ólöf Nordal fer með yfirstjórn mála samkvæmt útlendingalögum. Hún getur sett nánari reglur um heimild útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér á landi, þar á meðal um frekari skilyrði fyrir dvalar- og búsetuleyfi. Eftir þessum reglum vinnur kærunefnd úrskurðarmála. Þangað geta hælisleitendur skotið máli sínu ef Útlendingastofnun synjar erindi þeirra. Ráðherra ræður því hverjir sitja í úrskurðarnefndinni. Ráðherra ræður líka miklu um þær forsendur og reglur sem nefndin hefur í sínu starfi. Innanríkisráðherra Ólöf Nordal sagði, með sting í hjarta, um mál albönsku barnanna og fjölskyldna þeirra: Ég hef ekkert vald í málinu. Pílatus þvoði hendur sínar líka. „Nú sér Pílatus, að hann fær ekki að gjört, en ólætin aukast. Hann tók vatn, þvoði hendur sínar frammi fyrir fólkinu og mælti: „Sýkn er ég af blóði þessa manns!““ Dætur Pílatusar Ávinningur- inn af því að moka ofan í kílómetra langan skurð eru 25 hektarar votlendis. Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaður Full af frábærum uppskriftum! Berglind Sigmars - Heilsuréttir ölskyldunnar og GOTT, veitingastaður HOLLAR OG HEILLANDI bokafelagid.is Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis dró í gær til baka þá tillögu að fella niður 59 prósenta toll á innfluttu kartöflusnakki. Í yfirlýsingu frá Félagi atvinnurekenda segir að ástæðan sé þrýstingur frá innlendum snakkframleiðendum. Í yfirlýsingunni segir Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri félagsins, að ofurtollurinn hafi verið réttlættur með því að hann sé hluti af tollvernd fyrir landbúnaðinn. „Staðreyndin er hins vegar sú að engar íslenskar kartöflur eru notaðar í framleiðslu tveggja iðnfyrirtækja, sem fram- leiða snakk. Þau framleiða úr innfluttu hráefni, sem ber litla sem enga tolla. Snakktollurinn er þannig verndar- tollur fyrir iðnað, dulbúinn sem tollvernd fyrir land- búnað,“ segir Ólafur. Ríkisstjórnin hefur lyft grettistaki í þessum efnum. Um síðustu áramót voru vörugjöld afnumin og bil á milli virðisaukaskattþrepa minnkað. Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra hefur auk þess kynnt áform um að afnema einhliða tolla af fötum og skóm um áramót og tolla af öðrum vörum, að matvöru undanskilinni, fyrir árið 2017. Ráðherra skipaði starfshóp til að fjalla um endur- skoðun tollskrárinnar. Þar kom meðal annars fram að viðskipti milli þjóða hafa almennt áhrif á heildarábata þeirra. Við aukinn innflutning eykst neytendaábati þar sem innlent vöruúrval verður meira og verðlag lækkar í ljósi aukinnar samkeppni. „Tollar hafa hamlandi áhrif á viðskipti og draga úr alþjóðaviðskiptum þegar á heildina er litið. Þegar tollur er lagður á innflutta vöru hækkar verðið sem innlendir neytendur þurfa að greiða fyrir vöruna sem aftur minnkar eftirspurn eftir henni,“ segir í skýrslu starfshópsins. Í athugun Félags atvinnurekenda kemur fram að niður- felling ofurtollsins á kartöflusnakk myndi spara neyt- endum 162 milljónir króna á ári, miðað við innflutnings- tölur frá nóvember 2014 til október 2015. Í viðtali á Bylgjunni fyrir skömmu upplýsti þingmaður Framsóknar, Willum Þór Þórsson, sem á sæti í efna- hags- og viðskiptanefnd, að nefndin hefði fengið mikil viðbrögð frá innlendum snakkframleiðendum, sem flyttu inn hráefni í framleiðslu sína sem bæru tolla. Nefndin þyrfti því að skoða „víðtækari hagsmuni“. Alls starfa 20 manns við snakkframleiðslu á Íslandi. Fallast má á að hægt sé að rökstyðja þörf á því að halda verndarhendi yfir ákveðnum hluta íslenskrar landbún- aðarframleiðslu, þó það sé sannarlega ekki óumdeilt. Hins vegar er erfitt að koma auga á að nokkur rök séu fyrir því að leggja háa verndartolla á afurðir sem ekki eru framleiddar hér nema í litlu magni. Miðað við orð þingmannsins verður ekki annað séð en þeir víðtæku hagsmunir sem taka á tillit til með því að leggja áfram tæplega 60 prósenta toll á kartöflusnakk séu hagsmunir örfárra og geti seint talist víðtækir. Burtséð frá því hversu lítið mál í stóra samhenginu tollar á kartöflu- snakk er, þá verður að spyrja hvort framkvæmdin sé fagleg. Þetta hljómar mun frekar sem einhver álfasaga. Trúir þú á álfasögur? Hins vegar er erfitt að koma auga á að nokkur rök séu fyrir því að leggja háa verndartolla á afurðir sem ekki eru fram- leiddar hér á landi nema í litlu magni. Hús í stað holu Stjórnarandstæðingar fóru mikinn í annarri umræðu um fjárlög næsta árs. Þar fór fremst í flokki Bjarkey Olsen Gunnars­ dóttir, þingmaður VG, sem lét gamminn geisa í tæpa fimm klukkutíma. Bjarkey var þó ekki eini þingmaðurinn úr VG sem sagði stjórnarmeirihlutanum til syndanna. Það gerði leiðtogi lífs hennar, Katrín Jakobsdóttir, líka þegar hún hvatti stjórnarmeiri­ hlutann til að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að fjármagna Hús íslenskra fræða. Hætt var við byggingu hússins í hruninu, fyrir sjö árum, eftir að grunnurinn hafði verið grafinn. Sagðist Katrín í gær vera orðin langeyg eftir því að sjá þar Hús íslenskra fræða í stað Holu íslenskra fræða. Píratar og einkavæðingin Eftir að tilkynnt var að íslenska ríkið myndi taka yfir Íslands­ banka af kröfuhöfum Glitnis varð ljóst að einkavæða þarf bankana. Með ríkið sem eiganda að Lands­ banka og Íslandsbanka blasir við fákeppni á markaðnum. Könnun Gallup fyrir Pírata bendir hins vegar til þess að almenningur treysti ekki Framsóknarflokkn­ um og Sjálfstæðisflokknum við einkavæðinguna. Enda hræða sporin frá árunum 2002­2003. Það myndi gleðja frjálslynd hjörtu að sjá Pírata kóróna yfirburðastöðu sína á meðal almennings, með því að leggja fram trúverðuga áætlun um sölu bankanna. jonhakon@frettabladid.is 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r30 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.