Fréttablaðið - 17.12.2015, Síða 31
Ég hitti gamlan félaga minn á förnum vegi, sjálfstæðismann af gamla skól-anum, og hann tók þá upp úr þurru
að mæra Ísland og allt sem íslenzkt er
eins og hann héldi að ég ætlaði að gera
hið gagnstæða að fyrra bragði. En mér
bjó ekkert slíkt í hug. Ísland er hrekk-
laust samfélag, sagði hann. Ekki finnst
þeim það sem misstu allt sitt í hruninu,
sagði ég, heimili sín eða ævisparnað eða
hvort tveggja. Þetta er verra í útlöndum,
sagði hann. Já, sagði ég, að því leyti að þar
hafa þeir sem tæmdu bankana sloppið
við dóma, en hér eru fangelsisárin vegna
hrunsins komin yfir 30, bætti ég við.
Síðan eru liðnir nokkrir mánuðir. Nú
er talan komin upp í 54 ár sem dreifast
á 22 einstaklinga og á trúlega eftir að
hækka þar eð Hæstiréttur á enn eftir að
fjalla um ýmis hrunmál. Þetta gerir um
2,5 ár á mann að meðaltali. Útlendingar
taka eftir þessu, t.d. framkvæmdastjóri
AGS sem hældi Íslandi fyrir þetta í ræðu
um daginn.
Embættismaðurinn
Í einkasamkvæmi ekki alls fyrir löngu
hitti ég annan gamlan kunningja, hátt
settan embættismann. Ég var á fundi
í Valhöll, sagði hann, og þegar vara-
formaður flokksins sté í ræðustól risu
fundarmenn hljóðlega úr sætum sínum,
hvílík stemning. Mér varð hugsað til
Rúmeníu þar sem þau Nikolaí Sjáseskú
og Elena kona hans fengu þessar mót-
tökur hvar sem þau komu, en ég sagði
ekkert.
Kunningi minn hélt áfram: Ísland
vantar aga. Já, sagði ég, þess vegna m.a.
samþykktu kjósendur nýja stjórnarskrá
í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012, stjórnar-
skrá sem kveður á um skýr valdmörk og
mótvægi, jafnt vægi atkvæða, auðlindir í
þjóðareigu o.fl. og bíður nú staðfestingar
Alþingis. Nei, biddu fyrir þér, sagði hann,
þátttakan í þjóðaratkvæðagreiðslunni
var ekki nógu mikil. Lögin gera enga
kröfu um tiltekna þátttöku í þjóðarat-
kvæðagreiðslum, sagði ég. Stjórnlaga-
ráðið var ólöglegt skv. ákvörðun Hæsta-
réttar, sagði hann þá. Þið skirrizt ekki við
að skýla ykkur bak við lögleysur, sagði
ég. Þegar Hæstiréttur vísaði frá kæru
vegna meintra tæknigalla á framkvæmd
sveitarstjórnakosninganna 2012, viður-
kenndi rétturinn þar með í reynd að
ógilding stjórnlagaþingskosningarinnar
2010 vegna meintra tæknigalla var lög-
leysa, sagði ég, eins og margir menn hafa
sýnt og sannað á prenti. Enda hvarf for-
sprakkinn í ógildingarmálinu skömmu
síðar burt úr Hæstarétti.
Listamaðurinn
Í garðveizlu í hjarta Reykjavíkur vék sér
að mér gamall kunningi, listamaður, vel
tengdur, svo vel tengdur að hann þurfti
um skeið ekki að gera boð á undan sér
þegar hann átti erindi í stjórnarráðið
heldur gekk hann bara beint inn á kontór
ráðherrans án þess að banka. Þetta var
vorið 2012. Sjálfstæðismenn á Alþingi
höfðu þá brugðið fæti fyrir tillögu ríkis-
stjórnarinnar um að halda þjóðarat-
kvæðagreiðslu um nýju stjórnarskrána
samhliða forsetakjöri í júní 2012 til að
spara fé og tryggja góða þátttöku.
Ég stend með ykkur í stjórnarskrár-
málinu, sagði kunningi minn, en þú skalt
gera þér grein fyrir því, Þorvaldur minn,
bætti hann við, að það verður engin
þjóðaratkvæðagreiðsla haldin um málið.
Mér datt sem snöggvast í hug að hann
væri e.t.v. að flytja mér boð eða bergmál
úr efstu lögum flokksins. Hafi svo verið
mistókst ráðagerðin þar eð þjóðarat-
kvæðagreiðslan var haldin 20. október
þá um haustið.
Forstjórinn
Í samkvæmi vorið áður, það var 2011,
hafði enn annar gamall kunningi minn,
forstjóri, spurt mig hvort við værum
viss um að við þekktum þjóðina, við í
stjórnlagaráði sem höfðum þá, komin
að verkinu hvert úr sinni áttinni, nýlega
samþykkt frumvarp að nýrri stjórnar-
skrá einum rómi með 25 atkvæðum
gegn engu og afhent Alþingi. Já, ég held
við þekkjum þjóðina, a.m.k. það sem
hún vill og óskar sér, svaraði ég, enda er
nýja stjórnarskráin í öllum aðalatriðum í
samræmi við niðurstöðu þjóðfundarins
2010. Vilji þjóðarinnar lá fyrir.
Útreiðartúr á tígrisdýri
Í þessum samtölum var það embættis-
maðurinn einn sem hampaði lögleysu
Hæstaréttar og gerði lítið úr þjóð-
aratkvæðagreiðslunni og þá um leið úr
lýðræðinu. Sjálfstæðismenn á Alþingi
ættu að hugsa sig vandlega um áður
en þeir stimpla sig inn í Íslandssöguna
sem óvinir lýðræðisins. Þeim var fengið
gullvægt tækifæri eftir þjóðaratkvæða-
greiðsluna til að segja við útvegsmenn:
83% kjósenda hafa lýst stuðningi við
auðlindir í þjóðareigu og við verðum að
fylgja þeim frekar en ykkur. Það er ekki
of seint fyrir sjálfstæðismenn að sjá sig
um hönd. Sá sem fer í útreiðartúr á tígris-
dýri og situr enn á dýrinu getur stokkið
af baki. Hann getur a.m.k. reynt það
og – hver veit? – kannski sloppið með
skrekkinn.
Samtöl við sjálfstæðismenn
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Það er ekki of seint fyrir sjálf-
stæðismenn að sjá sig um hönd.
Sá sem fer í útreiðartúr á tígris-
dýri og situr enn á dýrinu getur
stokkið af baki. Hann getur
a.m.k. reynt það og – hver veit? –
kannski sloppið með skrekkinn.
2.190.000 kr.
Kia Rio LX 1.1
Árgerð 2014, ekinn 30 þús. km,
dísil, 75 hö, beinskiptur.
3.890.000 kr.
Kia Carens EX 1.7
Árgerð 2014, ekinn 67 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
5.990.000 kr.3.950.000 kr.
Kia Sorento ClassicKia cee’d EX 1.6
Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km,
dísil, 198 hö, sjálfskiptur.
Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km,
dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.490.000 kr.
Kia Sportage EX
Árgerð 2014, ekinn 105 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
28.777 kr. á mánuði*
51.777 kr. á mánuði*
50.777 kr. á mánuði*
78.777 kr. á mánuði*
Afbo
rgun
aðe
ins:
58.7
77 k
r./mán
.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%.
**Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartími:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia**Ábyrgð fylgir!
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 31F i M M T u d a g u R 1 7 . d e s e M B e R 2 0 1 5