Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 31
Ég hitti gamlan félaga minn á förnum vegi, sjálfstæðismann af gamla skól-anum, og hann tók þá upp úr þurru að mæra Ísland og allt sem íslenzkt er eins og hann héldi að ég ætlaði að gera hið gagnstæða að fyrra bragði. En mér bjó ekkert slíkt í hug. Ísland er hrekk- laust samfélag, sagði hann. Ekki finnst þeim það sem misstu allt sitt í hruninu, sagði ég, heimili sín eða ævisparnað eða hvort tveggja. Þetta er verra í útlöndum, sagði hann. Já, sagði ég, að því leyti að þar hafa þeir sem tæmdu bankana sloppið við dóma, en hér eru fangelsisárin vegna hrunsins komin yfir 30, bætti ég við. Síðan eru liðnir nokkrir mánuðir. Nú er talan komin upp í 54 ár sem dreifast á 22 einstaklinga og á trúlega eftir að hækka þar eð Hæstiréttur á enn eftir að fjalla um ýmis hrunmál. Þetta gerir um 2,5 ár á mann að meðaltali. Útlendingar taka eftir þessu, t.d. framkvæmdastjóri AGS sem hældi Íslandi fyrir þetta í ræðu um daginn. Embættismaðurinn Í einkasamkvæmi ekki alls fyrir löngu hitti ég annan gamlan kunningja, hátt settan embættismann. Ég var á fundi í Valhöll, sagði hann, og þegar vara- formaður flokksins sté í ræðustól risu fundarmenn hljóðlega úr sætum sínum, hvílík stemning. Mér varð hugsað til Rúmeníu þar sem þau Nikolaí Sjáseskú og Elena kona hans fengu þessar mót- tökur hvar sem þau komu, en ég sagði ekkert. Kunningi minn hélt áfram: Ísland vantar aga. Já, sagði ég, þess vegna m.a. samþykktu kjósendur nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012, stjórnar- skrá sem kveður á um skýr valdmörk og mótvægi, jafnt vægi atkvæða, auðlindir í þjóðareigu o.fl. og bíður nú staðfestingar Alþingis. Nei, biddu fyrir þér, sagði hann, þátttakan í þjóðaratkvæðagreiðslunni var ekki nógu mikil. Lögin gera enga kröfu um tiltekna þátttöku í þjóðarat- kvæðagreiðslum, sagði ég. Stjórnlaga- ráðið var ólöglegt skv. ákvörðun Hæsta- réttar, sagði hann þá. Þið skirrizt ekki við að skýla ykkur bak við lögleysur, sagði ég. Þegar Hæstiréttur vísaði frá kæru vegna meintra tæknigalla á framkvæmd sveitarstjórnakosninganna 2012, viður- kenndi rétturinn þar með í reynd að ógilding stjórnlagaþingskosningarinnar 2010 vegna meintra tæknigalla var lög- leysa, sagði ég, eins og margir menn hafa sýnt og sannað á prenti. Enda hvarf for- sprakkinn í ógildingarmálinu skömmu síðar burt úr Hæstarétti. Listamaðurinn Í garðveizlu í hjarta Reykjavíkur vék sér að mér gamall kunningi, listamaður, vel tengdur, svo vel tengdur að hann þurfti um skeið ekki að gera boð á undan sér þegar hann átti erindi í stjórnarráðið heldur gekk hann bara beint inn á kontór ráðherrans án þess að banka. Þetta var vorið 2012. Sjálfstæðismenn á Alþingi höfðu þá brugðið fæti fyrir tillögu ríkis- stjórnarinnar um að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu um nýju stjórnarskrána samhliða forsetakjöri í júní 2012 til að spara fé og tryggja góða þátttöku. Ég stend með ykkur í stjórnarskrár- málinu, sagði kunningi minn, en þú skalt gera þér grein fyrir því, Þorvaldur minn, bætti hann við, að það verður engin þjóðaratkvæðagreiðsla haldin um málið. Mér datt sem snöggvast í hug að hann væri e.t.v. að flytja mér boð eða bergmál úr efstu lögum flokksins. Hafi svo verið mistókst ráðagerðin þar eð þjóðarat- kvæðagreiðslan var haldin 20. október þá um haustið. Forstjórinn Í samkvæmi vorið áður, það var 2011, hafði enn annar gamall kunningi minn, forstjóri, spurt mig hvort við værum viss um að við þekktum þjóðina, við í stjórnlagaráði sem höfðum þá, komin að verkinu hvert úr sinni áttinni, nýlega samþykkt frumvarp að nýrri stjórnar- skrá einum rómi með 25 atkvæðum gegn engu og afhent Alþingi. Já, ég held við þekkjum þjóðina, a.m.k. það sem hún vill og óskar sér, svaraði ég, enda er nýja stjórnarskráin í öllum aðalatriðum í samræmi við niðurstöðu þjóðfundarins 2010. Vilji þjóðarinnar lá fyrir. Útreiðartúr á tígrisdýri Í þessum samtölum var það embættis- maðurinn einn sem hampaði lögleysu Hæstaréttar og gerði lítið úr þjóð- aratkvæðagreiðslunni og þá um leið úr lýðræðinu. Sjálfstæðismenn á Alþingi ættu að hugsa sig vandlega um áður en þeir stimpla sig inn í Íslandssöguna sem óvinir lýðræðisins. Þeim var fengið gullvægt tækifæri eftir þjóðaratkvæða- greiðsluna til að segja við útvegsmenn: 83% kjósenda hafa lýst stuðningi við auðlindir í þjóðareigu og við verðum að fylgja þeim frekar en ykkur. Það er ekki of seint fyrir sjálfstæðismenn að sjá sig um hönd. Sá sem fer í útreiðartúr á tígris- dýri og situr enn á dýrinu getur stokkið af baki. Hann getur a.m.k. reynt það og – hver veit? – kannski sloppið með skrekkinn. Samtöl við sjálfstæðismenn Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Það er ekki of seint fyrir sjálf- stæðismenn að sjá sig um hönd. Sá sem fer í útreiðartúr á tígris- dýri og situr enn á dýrinu getur stokkið af baki. Hann getur a.m.k. reynt það og – hver veit? – kannski sloppið með skrekkinn. 2.190.000 kr. Kia Rio LX 1.1 Árgerð 2014, ekinn 30 þús. km, dísil, 75 hö, beinskiptur. 3.890.000 kr. Kia Carens EX 1.7 Árgerð 2014, ekinn 67 þús. km, dísil, 136 hö, sjálfskiptur. 5.990.000 kr.3.950.000 kr. Kia Sorento ClassicKia cee’d EX 1.6 Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km, dísil, 198 hö, sjálfskiptur. Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.490.000 kr. Kia Sportage EX Árgerð 2014, ekinn 105 þús. km, dísil, 136 hö, sjálfskiptur. 28.777 kr. á mánuði* 51.777 kr. á mánuði* 50.777 kr. á mánuði* 78.777 kr. á mánuði* Afbo rgun aðe ins: 58.7 77 k r./mán .* *Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%. **Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartími: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 Allt að 7 ára ábyrgð fylgir notuðum Kia**Ábyrgð fylgir! s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 31F i M M T u d a g u R 1 7 . d e s e M B e R 2 0 1 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.