Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 41

Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 41
Kjóladagatal Hulda jónsdóttir ákvað 1. desember að klæðast nýjum kjól á hverjum degi til jóla. Bls. 4 góMSÆtt Kókosbollur og þrist er tilvalið að nota í bæði eftirrétti og bakstur. Kókosbollur hafa verið afskap­lega vinsælt sælgæti frá því elstu menn muna og þá sér­ staklega Völukókosbollurnar, að sögn Kolbrúnar Karlsdóttur, eins eigenda sælgætisgerðarinnar Kól­ us. Hún segir þær til margs annars nytsamlegar en bara til að borða þær eintómar sem sælgæti því þær nýtast í svo marga rétti. „Kókosboll­ urnar eru úr ekta eggjahvítum, þær eru þeyttar upp með sykri þannig að úr verður marengs. Kókosboll­ urnar er hægt að frysta og því hægt að nota þær eftir hendinni.“ Kolbrún lumar á mörgum góðum uppskriftum sem innihalda kókos­ bollur og gefur lesendum hér nokkrar gómsætar en einfaldar upp­ skriftir, bæði að eftirréttum og að gómsæti með kaffinu. KaffiMeðlÆti 4 Jonagold epli, afhýdd og söxuð niður Smjörklípa 1 dl matarolía 16–18 TUC kexkökur eða annað sam- bærilegt Kókosbollur til að þekja yfirborð mótsins 1–2 bollar dökkt súkkulaði, saxað Smávegis smjör og matarolía er sett á pönnu. Söxuð eplin eru sett varlega á pönnuna og þeim leyft að mýkjast aðeins. Þau eru svo sett í eldfast mót. Kexið er mulið og dreift yfir eplin. Súkkulaðinu er einnig dreift yfir. Kókosbollur eru skornar eftir endi­ löngu og þeim raðað í mótið með eggjahvítuna upp. Mótið er svo sett inn í heitan ofn og látið vera þar til marengsinn er orðinn ljósbrúnn. Dásamlegt með kaffinu með þeyttum rjóma eða ís. Auðvelt er að breyta þessum rétti í eftirrétt en þá er sama upp­ skrift notuð nema kexinu er sleppt og fleiri ávextir eru settir í staðinn, til dæmis bláber og jarðarber. „Það er fínt að nota klementínur um jólin og á sumrin nota ég að sjálfsögðu eigin bláber,“ segir Kolbrún. eftirréttur „Þennan eftirrétt er afskaplega auðvelt og fljótlegt að gera en hann er afskaplega góður og fallegur útlits.“ Kókosbollur (hálf á mann) Rjómi, þeyttur Ávextir og ber að eigin vali Súkkulaðistangir Kókosbollurnar eru skornar í tvennt. Þeytta rjómanum er sprautað í hring ofan á marengsinn þannig að hreiður myndist. Ávextir og ber eru sett ofan í hreiðrið og súkkulaði­ stöngunum stungið í kókosbolluna. ÞriStur á KöKur og íS Þristur er framleiddur af Kólus eins og kókosbollurnar og er hann í upp­ áhaldi hjá mörgum. „Það er sniðugt að eiga alltaf Þrist í skápnum – ef það er þá ekki búið að borða hann,“ segir Kolbrún og hlær. „Hann er svo svakalega góður í bakstur, til dæmis er gott að setja hann í hina vinsælu lakkrístoppa í staðinn fyrir lakkrísinn. Svo er auðvelt að gera bestu íssósu í heimi eða krem ofan á kökur með því að bræða Þrist með smá rjómalögg í potti og hella yfir kökuna eða ísinn.“ dáSaMlegt í KöKur og eftirrétti KóluS KYNNir Kókosbollur og Þristur eru ekki aðeins gott sælgæti eitt og sér heldur er tilvalið að nota hvort tveggja í bakstur, eftirrétti og fleira. Lógó með adressulínu Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt) GLÆSILEGT ÚRVAL AF SPARIKJÓLUM OG JÖKKUM 30% AFSLÁTTUR AF SPARISKÓM! 10% afsláttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.