Fréttablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 41
Kjóladagatal
Hulda jónsdóttir ákvað
1. desember að klæðast
nýjum kjól á hverjum degi
til jóla.
Bls. 4
góMSÆtt Kókosbollur og þrist er tilvalið að nota í bæði eftirrétti og bakstur.
Kókosbollur hafa verið afskaplega vinsælt sælgæti frá því elstu menn muna og þá sér
staklega Völukókosbollurnar, að
sögn Kolbrúnar Karlsdóttur, eins
eigenda sælgætisgerðarinnar Kól
us. Hún segir þær til margs annars
nytsamlegar en bara til að borða
þær eintómar sem sælgæti því þær
nýtast í svo marga rétti. „Kókosboll
urnar eru úr ekta eggjahvítum, þær
eru þeyttar upp með sykri þannig
að úr verður marengs. Kókosboll
urnar er hægt að frysta og því hægt
að nota þær eftir hendinni.“
Kolbrún lumar á mörgum góðum
uppskriftum sem innihalda kókos
bollur og gefur lesendum hér
nokkrar gómsætar en einfaldar upp
skriftir, bæði að eftirréttum og að
gómsæti með kaffinu.
KaffiMeðlÆti
4 Jonagold epli, afhýdd og söxuð niður
Smjörklípa
1 dl matarolía
16–18 TUC kexkökur eða annað sam-
bærilegt
Kókosbollur til að þekja yfirborð
mótsins
1–2 bollar dökkt súkkulaði, saxað
Smávegis smjör og matarolía er sett
á pönnu. Söxuð eplin eru sett varlega
á pönnuna og þeim leyft að mýkjast
aðeins. Þau eru svo sett í eldfast mót.
Kexið er mulið og dreift yfir eplin.
Súkkulaðinu er einnig dreift yfir.
Kókosbollur eru skornar eftir endi
löngu og þeim raðað í mótið með
eggjahvítuna upp. Mótið er svo sett
inn í heitan ofn og látið vera þar
til marengsinn er orðinn ljósbrúnn.
Dásamlegt með kaffinu með þeyttum
rjóma eða ís.
Auðvelt er að breyta þessum
rétti í eftirrétt en þá er sama upp
skrift notuð nema kexinu er sleppt
og fleiri ávextir eru settir í staðinn,
til dæmis bláber og jarðarber. „Það
er fínt að nota klementínur um jólin
og á sumrin nota ég að sjálfsögðu
eigin bláber,“ segir Kolbrún.
eftirréttur
„Þennan eftirrétt er afskaplega auðvelt
og fljótlegt að gera en hann er afskaplega
góður og fallegur útlits.“
Kókosbollur (hálf á mann)
Rjómi, þeyttur
Ávextir og ber að eigin vali
Súkkulaðistangir
Kókosbollurnar eru skornar í tvennt.
Þeytta rjómanum er sprautað í
hring ofan á marengsinn þannig að
hreiður myndist. Ávextir og ber eru
sett ofan í hreiðrið og súkkulaði
stöngunum stungið í kókosbolluna.
ÞriStur á KöKur og íS
Þristur er framleiddur af Kólus eins
og kókosbollurnar og er hann í upp
áhaldi hjá mörgum. „Það er sniðugt
að eiga alltaf Þrist í skápnum – ef
það er þá ekki búið að borða hann,“
segir Kolbrún og hlær. „Hann er
svo svakalega góður í bakstur, til
dæmis er gott að setja hann í hina
vinsælu lakkrístoppa í staðinn fyrir
lakkrísinn. Svo er auðvelt að gera
bestu íssósu í heimi eða krem ofan
á kökur með því að bræða Þrist
með smá rjómalögg í potti og hella
yfir kökuna eða ísinn.“
dáSaMlegt í KöKur
og eftirrétti
KóluS KYNNir Kókosbollur og Þristur eru ekki aðeins gott sælgæti eitt og
sér heldur er tilvalið að nota hvort tveggja í bakstur, eftirrétti og fleira.
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
GLÆSILEGT ÚRVAL AF
SPARIKJÓLUM OG JÖKKUM
30% AFSLÁTTUR
AF SPARISKÓM!
10%
afsláttur