Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 70

Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 70
Sum lögin eru þannig að okkur nægir að Skilja þau með hjartanu, einS og lagið la Vie en roSe, eða lífið í ljórSrauðum bjarma. FÆRÐU Í NETTÓ Jólabækurnar ÞÚSUNDIR TITLA Í BOÐI Brynhildur Guðjóns-dóttir leikkona er á leið á æfingu með hljómsveit vegna stór-tónleika til heiðurs söngkonunni Edith Piaf þegar í hana næst – en á mið- nætti kvöldinu áður var hún Njáll á Bergþórshvoli í Borgarleikhúsinu. Hún kveðst engan veginn geta gert upp á milli þeirra, þó ólík séu og þó vera búin að setja sig eins vel inn í líf beggja og kona á Íslandi geti gert í dag. Piaf hefði orðið hundrað ára Nú eru það tónleikarnir sem eru umræðuefnið, enda á dagskrá nú um helgina. Brynhildur segir þá gríðarlega spennandi. „Jóhann G. Jóhannsson, fyrrverandi tónlistar- stjóri Þjóðleikhússins, er búinn að útsetja sautján lög fyrir þann sterka og flotta hóp sem að flutningnum kemur,“ segir hún. „Þeir Jóel Páls- son og Haukur Gröndal eru þarna og spila jöfnum höndum á klarin- ettið og saxófóninn. Svo er Eiríkur Orri Ólafsson á trompett, Margrét Arnardóttir á harmóníku, Bryndís Pálsdóttir á fiðlu og Jóhann G. á fal- legan flygil.“ Brynhildur kveðst svo verða að keppa við öll instrúmentin til að láta rödd sína heyrast og ekki hætta fyrr en hún hafi lokið keppni með sigri! „Við erum með sautján laga lista. Það eru lögin sem ég söng í sýningu Þjóðleikhússins á sínum tíma, 2004, og svo fimm ný. Lög sem hafa alltaf verið í uppáhaldi bæði hjá mér og Jóhanni G. Útsetningarnar hans eru þannig að ég fæ gæsahúð þegar ég heyri þær.“ Sögustundir verða inn á milli á tónleikunum þar sem fjallað verð- ur um ævi söngkonunnar. „Þetta verður hátíðarstund í tali og tónum til heiðurs þessari frægustu dóttur Parísar sem hefði orðið 100 ára laugardaginn 19. desember. Þá eru fyrri tónleikarnir okkar og af því að það seldist upp á þá, sem ég er mjög þakklát fyrir, þá bættum við öðrum tónleikum við daginn eftir, sunnu- daginn 20. desember, klukkan 17 og enn eru nokkrir miðar til á þá tónleika. Við viljum fylla salinn af tónum og töfrum og verðum að fá vini Piaf til að vinna í því með okkur. Við ætlum líka að heiðra Sigurð Pálsson sem er höfundur leikritsins en hann á 40 ára rithöfundarafmæli um þessar mundir.“ Fer í aðra vídd við flutninginn Söng- og leikkonan ætlar að klæð- ast kjólunum sem hún skartaði í sýningu Þjóðleikhússins og eflaust sýnir hún leikræn tilþrif líka. „Það gerist sjálfkrafa þegar ég syng þessa tónlist,“ segir hún. „Án þess að ég ætli að fara að verða einhver önnur en ég er þá er einhver hjartastrengur í þessari tónlist sem gerir að verkum að ég fer í aðra vídd þegar ég flyt hana. Þetta eru allt dásamleg lög.“ Tónleikar til heiðurs frægustu dóttur Parísar brynhildur guðjónsdóttir slær upp tónleikaveislu í hörpu um helgina því franska söngkonan edith Piaf hefði orðið 100 ára þann 19. desember. hún segist fara í aðra vídd þegar hún flytur þessa tónlist. Brynhildur í gervi söngkonunnar Edith Piaf í sýningu Þjóðleikhússins fyrir ellefu árum. Mynd/GríMur Bjarnason „Borg eins og París með alla sína menningu, alla sína fegurð og það and- rúmsloft sem hvergi þekkist nema hjá Frökkum – það er það sem við ætlum að stíga inn í,“ segir Brynhildur. Mynd/GríMur Bjarnason Brynhildur syngur jöfnum höndum á íslensku og frönsku. „Þeir Þórarinn Eldjárn og Krist- ján Þórður Hrafnsson íslenskuðu nokkra af textunum fyrir sýningu Þjóðleikhússins og það er mjög merkilegt. Upphaflega vissum við ekki hvort það yrði mögulegt því íslenskan og franskan liggja á svo mismunandi stöðum í tempói. En það gekk ljómandi vel og nokkur af mínum uppáhaldslögum eru með íslenskum textum, þýðendurnir taka svo vel utan um þá. Það er líka gott. Þá skilja allir með höfðinu en sum lögin eru þannig að okkur nægir að skilja þau með hjartanu, eins og lagið La Vie en Rose eða Lífið í ljósrauðum bjarma. Þótt Piaf-tónleikarnir falli inn í jólatónleikatímabilið segist Bryn- hildur ekkert vera í neinni keppni. „Við erum að bjóða upp á allt annan hlut. Borg eins og París með alla sína menningu, alla sína fegurð og það andrúmsloft sem hvergi þekkist nema hjá Frökkum – það er það sem við ætlum að stíga inn í.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Fjölbreytt aðventu- og jólatónlist verður flutt á hádegistónleikum kórsins Schola cantorum í Hall- grímskirkju á morgun, 18. des- ember. Lög eins og Ó, helga nótt, Wexford Carol, Nóttin var sú ágæt ein, Það aldin út er sprungið, Lux aurumque eftir Whitacer, Josef and the Angel eftir Hafliða Hallgrímsson og fleiri perlur. Einsöngvarar úr röðum kórs- ins verða Fjölnir Ólafsson bassi, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran og Ragnheiður Sara Gríms- dóttir sópran. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Mjög annasömu ári er að ljúka hjá kórnum. Auk þess að hafa lokið upptökum á geisladiski fyrir erlendan markað hefur kórinn komið fram á um tuttugu tón- leikum, meðal annars á vikuleg- um hádegistónleikum sínum í Hallgrímskirkju í sumar, á Kirkju- listahátíð í ágúst og Culture Scapes í Sviss í nóvember. Þetta eru síðustu aðventutón- leikar Schola cantorum á Jólatónlist- arhátíð Hallgrímskirkju og tilvalið að njóta fallegrar tónlistar í hátíð- legu umhverfi. Tónleikarnir standa í um það bil hálfa klukkustund. Miðasala er á midi.is og við inn- ganginn. Miðaverð er 2.500 krónur en námsmenn og listvinir kirkjunn- ar greiða hálft gjald. – gun Ó, helga nótt og fleiri perlur jólatónlistar schola cantorum sér um hátíðastemningu á hádegistónleikunum. 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r54 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.