Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 70
Sum lögin eru
þannig að okkur
nægir að Skilja þau með
hjartanu, einS og lagið la
Vie en roSe, eða lífið í
ljórSrauðum bjarma.
FÆRÐU Í NETTÓ
Jólabækurnar
ÞÚSUNDIR TITLA Í BOÐI
Brynhildur Guðjóns-dóttir leikkona er á leið á æfingu með hljómsveit vegna stór-tónleika til heiðurs söngkonunni Edith
Piaf þegar í hana næst – en á mið-
nætti kvöldinu áður var hún Njáll
á Bergþórshvoli í Borgarleikhúsinu.
Hún kveðst engan veginn geta gert
upp á milli þeirra, þó ólík séu og þó
vera búin að setja sig eins vel inn í
líf beggja og kona á Íslandi geti gert
í dag.
Piaf hefði orðið hundrað ára
Nú eru það tónleikarnir sem eru
umræðuefnið, enda á dagskrá nú
um helgina. Brynhildur segir þá
gríðarlega spennandi. „Jóhann G.
Jóhannsson, fyrrverandi tónlistar-
stjóri Þjóðleikhússins, er búinn að
útsetja sautján lög fyrir þann sterka
og flotta hóp sem að flutningnum
kemur,“ segir hún. „Þeir Jóel Páls-
son og Haukur Gröndal eru þarna
og spila jöfnum höndum á klarin-
ettið og saxófóninn. Svo er Eiríkur
Orri Ólafsson á trompett, Margrét
Arnardóttir á harmóníku, Bryndís
Pálsdóttir á fiðlu og Jóhann G. á fal-
legan flygil.“
Brynhildur kveðst svo verða að
keppa við öll instrúmentin til að
láta rödd sína heyrast og ekki hætta
fyrr en hún hafi lokið keppni með
sigri!
„Við erum með sautján laga lista.
Það eru lögin sem ég söng í sýningu
Þjóðleikhússins á sínum tíma, 2004,
og svo fimm ný. Lög sem hafa alltaf
verið í uppáhaldi bæði hjá mér og
Jóhanni G. Útsetningarnar hans eru
þannig að ég fæ gæsahúð þegar ég
heyri þær.“
Sögustundir verða inn á milli á
tónleikunum þar sem fjallað verð-
ur um ævi söngkonunnar. „Þetta
verður hátíðarstund í tali og tónum
til heiðurs þessari frægustu dóttur
Parísar sem hefði orðið 100 ára
laugardaginn 19. desember. Þá eru
fyrri tónleikarnir okkar og af því að
það seldist upp á þá, sem ég er mjög
þakklát fyrir, þá bættum við öðrum
tónleikum við daginn eftir, sunnu-
daginn 20. desember, klukkan 17
og enn eru nokkrir miðar til á þá
tónleika. Við viljum fylla salinn
af tónum og töfrum og verðum að
fá vini Piaf til að vinna í því með
okkur.
Við ætlum líka að heiðra Sigurð
Pálsson sem er höfundur leikritsins
en hann á 40 ára rithöfundarafmæli
um þessar mundir.“
Fer í aðra vídd við flutninginn
Söng- og leikkonan ætlar að klæð-
ast kjólunum sem hún skartaði í
sýningu Þjóðleikhússins og eflaust
sýnir hún leikræn tilþrif líka. „Það
gerist sjálfkrafa þegar ég syng þessa
tónlist,“ segir hún. „Án þess að ég
ætli að fara að verða einhver önnur
en ég er þá er einhver hjartastrengur
í þessari tónlist sem gerir að verkum
að ég fer í aðra vídd þegar ég flyt
hana. Þetta eru allt dásamleg lög.“
Tónleikar til heiðurs frægustu dóttur Parísar
brynhildur guðjónsdóttir slær upp tónleikaveislu í hörpu um helgina því franska söngkonan edith Piaf
hefði orðið 100 ára þann 19. desember. hún segist fara í aðra vídd þegar hún flytur þessa tónlist.
Brynhildur í gervi söngkonunnar Edith Piaf í sýningu Þjóðleikhússins fyrir ellefu árum. Mynd/GríMur Bjarnason
„Borg eins og París með alla sína
menningu, alla sína fegurð og það and-
rúmsloft sem hvergi þekkist nema hjá
Frökkum – það er það sem við ætlum
að stíga inn í,“ segir Brynhildur.
Mynd/GríMur Bjarnason
Brynhildur syngur jöfnum
höndum á íslensku og frönsku.
„Þeir Þórarinn Eldjárn og Krist-
ján Þórður Hrafnsson íslenskuðu
nokkra af textunum fyrir sýningu
Þjóðleikhússins og það er mjög
merkilegt. Upphaflega vissum við
ekki hvort það yrði mögulegt því
íslenskan og franskan liggja á svo
mismunandi stöðum í tempói. En
það gekk ljómandi vel og nokkur af
mínum uppáhaldslögum eru með
íslenskum textum, þýðendurnir
taka svo vel utan um þá. Það er líka
gott. Þá skilja allir með höfðinu
en sum lögin eru þannig að okkur
nægir að skilja þau með hjartanu,
eins og lagið La Vie en Rose eða Lífið
í ljósrauðum bjarma.
Þótt Piaf-tónleikarnir falli inn í
jólatónleikatímabilið segist Bryn-
hildur ekkert vera í neinni keppni.
„Við erum að bjóða upp á allt annan
hlut. Borg eins og París með alla sína
menningu, alla sína fegurð og það
andrúmsloft sem hvergi þekkist
nema hjá Frökkum – það er það sem
við ætlum að stíga inn í.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Fjölbreytt aðventu- og jólatónlist
verður flutt á hádegistónleikum
kórsins Schola cantorum í Hall-
grímskirkju á morgun, 18. des-
ember. Lög eins og Ó, helga nótt,
Wexford Carol, Nóttin var sú ágæt
ein, Það aldin út er sprungið, Lux
aurumque eftir Whitacer, Josef and
the Angel eftir Hafliða Hallgrímsson
og fleiri perlur.
Einsöngvarar úr röðum kórs-
ins verða Fjölnir Ólafsson bassi,
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir
sópran og Ragnheiður Sara Gríms-
dóttir sópran. Stjórnandi er Hörður
Áskelsson.
Mjög annasömu ári er að ljúka
hjá kórnum. Auk þess að hafa
lokið upptökum á geisladiski fyrir
erlendan markað hefur kórinn
komið fram á um tuttugu tón-
leikum, meðal annars á vikuleg-
um hádegistónleikum sínum í
Hallgrímskirkju í sumar, á Kirkju-
listahátíð í ágúst og Culture Scapes
í Sviss í nóvember.
Þetta eru síðustu aðventutón-
leikar Schola cantorum á Jólatónlist-
arhátíð Hallgrímskirkju og tilvalið
að njóta fallegrar tónlistar í hátíð-
legu umhverfi. Tónleikarnir standa
í um það bil hálfa klukkustund.
Miðasala er á midi.is og við inn-
ganginn. Miðaverð er 2.500 krónur
en námsmenn og listvinir kirkjunn-
ar greiða hálft gjald. – gun
Ó, helga nótt og fleiri perlur jólatónlistar
schola cantorum sér um hátíðastemningu á hádegistónleikunum.
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r54 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð