Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 74

Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 74
BÆKUR Endurkoman ★★★★★ Ólafur Jóhann Ólafsson Útgefandi: Veröld Kápuhönnun: Ragnar Helgi Ólafsson Fjöldi síðna: 389 Ólafur Jóhann Ólafsson hefur varið stórum hluta ævi sinnar og starfsferils utan Íslands og þá eink­ um í Bandaríkjunum. Fyrir vikið er ekki óeðli­ legt að höfundarverk hans beri þess merki og líkast til má segja að hann sé hvað alþjóð­ legastur íslenskra samtímahöfunda. Nýjasta skáldsaga Ó l a f s Jó h a n n s , Endurkoman, er engin undantekn­ ing á þessu þar sem sögusviðið nær yfir New York og Connecticut í Banda­ ríkjunum, Allington á Englandi, Reykjavík, Snæfellsnes og Flatey svo tæpt sé á helstu viðkomustöðum. Endurkoman er líka stór og marg­ laga skáldsaga. Persónurnar eru fullmótaðar og áhugaverðar mann­ eskjur og fyrstupersónufrásögn aðalpersónunnar leiðir lesandann áfram af öryggi. Ólafur Jóhann er tæknilega fær höfundur, hinn fum­ lausi og tæknilega snjalli píanisti orðsins. Öryggið er slíkt að það er ekki laust við að á köflum væri ákveðinn léttir að sjá ásláttarvillu eða ákveðið fum í frásögninni en slíkt er ekki í boði. Öryggið og færn­ in eru allsráðandi. Í endurkomunni segir frá hinum hálfíslenska Magnúsi Colin Conyng­ ham, hámenntuðum heilasérfræð­ ingi sem rannsakar ástand sjúklinga í dái, vitund og líf þeirra sem eru fangar í eigin líkama og eiga aldrei afturkvæmt. En Magnús tekst líka á við fortíð sína og æsku, lífið í skugga móður sinnar píanistans sem aldrei náði heims­ frægð og lifir í von­ brigðum og biturð fram að endurkom­ unni. Hann tekst líka á við ástina og missinn en umfram allt þó sjálfan sig og allar þær andstæður sem búa í einum manni. Ólafur Jóhann kann þá list að flétta saman sögur og láta þær end­ uróma í heildstæðu verki. Grunnstefið endurkoma ómar í mörgum ólíkum myndum og sögum tengdra sögupersóna en í ólíkri mynd með ólíkri afstöðu hverju sinni. Hver leið varpar fram nýju sjónarhorni á spurningar sem vakna um líf okkar og það val sem við tökumst á við á hverjum degi. Lesandinn er leiddur að spurn­ ingunum og þarf sjálfur að takast á við svörin, leita og finna, skoða líf sitt og hvernig við erum fangin í aðstæðum sem við höfum sjálf skapað með okkar eigin vali. Í Endurkomunni finnum við fyrir persónur sem eru fangar í eigin líkama jafnt sem þá sem eru fangar ákvarðana sinna, æsku sinnar, for­ tíðar og væntinga. Persónurnar velja og hafna, taka ákvarðanir um líf sitt og annarra. Engu er ýtt að lesand­ anum heldur er honum boðið í ferðalag um söguheiminn og gefinn þess kostur að spegla líf sitt í bók­ menntalegum, sléttum og felldum heimi vals og ákvarðana. Ólafur Jóhann laðar þessa sögu fram áreynslulaust og af fag­ mennsku. Framvindan er fumlaus og örugg og tímalínan reikar örlítið eins og hún stjórnist á stundum fremur af líðan og tilfinningalífi aðalpersónunnar en öðru. Allt er þetta ákaflega vel gert. Það eina sem angrar þó á köflum er hversu sléttur og felldur söguheimurinn er og hversu siðmenntaðar persónurnar eru jafnt í hugsun sem og ákvörðun­ um. Þetta er saga hinna menntuðu, sjálfsöruggu og siðmenntuðu í ver­ öld fágunar, hámenningar og lista. Veröld heimsborgarans. Fyrir vikið er þessi veröld helst til fjarlæg fyrir íslenska lesendur og helst til snyrti­ leg og jafnvel dálítið gamaldags. Þannig að þrátt fyrir vel skrifaða sögu og skýrt mótaðar persónur er erfitt að finna til samkenndar. Erfitt að finna til þess sem gerir góða bók frábæra. Magnús Guðmundsson NiðURstaða: Falleg og vel skrifuð bók sem varpar fram stórum spurn- ingum og lætur lesandanum eftir að leita svara. Stórar spurningar í fágaðri veröld BÆKUR amma óþekka og tröllin í fjöllunum ★★★★★ Jenný Kolsöe Útgefandi: Bókabeitan Myndir: Bergrún Íris Sævarsdóttir Fjöldi síðna: 57 Amma óþekka er ný barna­ bók frá Bókabeitunni sem hentar sérstaklega yngri lesendum og þeim sem eru að æfa sig í lestri. Það þýðir þó ekki að orðaforðinn sé einfaldur heldur er einmitt lagt upp úr fjölbreytni í orðavali og því að kynna lesendur fyrir margslungnum og misflóknum orðum íslenskrar tungu. Þessi bók er ólík lestraræfinga­ bókum sem krakkar eiga að venjast, því þótt lögð sé áhersla á ákveðna stafi í efnisgreinum sögunnar og framburðareinkenni svo sem tvöfalda sam­ hljóða, þá er framvindan skemmtileg. Sagan segir frá Fann­ eyju Þóru sem fer í ferðalag með ömmu sinni út á land, nánar tiltekið í Trölladyngju. Þar tjalda þær stöllur, grilla pylsur og eiga saman huggulega stund í íslenskri náttúru. Amma óþekka er mynd­ listarmaður með sterkar skoðanir og greinilega flott fyrirmynd. Hún segist ætla að gera meira en milljón skissur á meðan á dvöl þeirra stendur svo hún þarf aldeilis að halda á spöð­ unum. Fanney Þóra lætur eina duga og fer svo í skoðunarferð. Á rölti sínu hittir hún trölladreng sem á ýmis­ legt sameiginlegt með stúlkunni en ekki líður á löngu þar til þau eru öll á hlaupum undan náttúruöflunum; trölladrengurinn, amma hans, Fann­ ey Þóra og amma óþekka. Líkt og fram hefur komið er bókin sniðin að þörfum þeirra sem eru að æfa sig í lestri og auka á orðaforða sinn. Hún er fyrsta bókin í nýrri röð frá Bókabeitunni sem nefnist Ljósa­ serían og hefur þetta að leiðarljósi. Leturgerð er læsileg og í stærra lagi, línubil sem andar vel og efnisgreinum er skipt niður í styttri búta svo hægt er að hvíla sig reglulega án þess að tapa þræði. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NiðURstaða: Skemmtileg bók fyrir unga lesendur sem eru að æfa sig í lestri. Stútfull af nýjum orðum og leyndum framburðaræfingum. Langmæðgur í Trölladyngju Jólasöngvum Kórs Langholts­kirkju hefur borist óvæntur liðsstyrkur því Eivør Páls­dóttir verður gestur kórsins á tvennum tónleikum af þrennum, annað kvöld, föstu­ daginn 18. desember klukkan 23, og á laugardaginn, 19. desem­ ber, klukkan 20. Aðrir einsöngvarar í ár verða Benedikt Kristjánsson, Andri Björn Róbertsson og Ólöf Kolbrún Harðar dóttir. Einsöngvari á tákn­ máli er Kolbrún Völkudóttir og einnig koma fram einsöngvarar úr Kór Langholtskirkju og Graduale­ kór Langholtskirkju. Í ár verða tónleikarnir þrennir, þeir síðustu verða á sunnudag klukkan 20. Að þessu sinni er það Árni Harðar­ son sem stjórnar, hann hleypur í skarðið fyrir Jón Stefánsson vegna veikinda þess síðarnefnda. Mikill jólaandi ríkir jafnan á Jólasöngvunum við kertaljós í Langholtskirkju. Að vanda verður boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í hléi. – gun Eivør bætist í hóp einsöngvara Jólasöngvum kórs Langholtskirkju hefur borist sérstaklega öflugur liðsstyrkur. Hinir fjölmörgu aðdáendur Eivarar gleðjast örugglega við að heyra hana taka lagið. Fréttablaðið/Hörður Eivør vErður gEstur kórsins á tvEnnum tón- LEikum, annað kvöLd og á Laugardaginn. 1 7 . d E s E m B E R 2 0 1 5 F i m m t U d a G U R58 m E N N i N G ∙ F R É t t a B L a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.