Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 76
Suffragette Dramamynd Aðalhlutverk: Carey Mulligan, Anne-Marie Duff, Helena Bonham Carter Frumsýnd: 18. desember IMDb 6,9/10 Rotten Tomatoes 72% Star WarS: epiSode Vii – the force aWakenS Hasar-, ævintýra- og fantasíumynd Aðalhlutverk: Harrison Ford, Mark Hamill, Carrie Fisher, Adam Driver, Daisy Ridley, John Boyega, Oscar Isaac, Lupita Nyong'o, Andy Serkis, Domhnall Gleeson, Max von Sydow Frumsýnd: 17. desember IMDb 9,2/10 Rotten Tomatoes 99% Smáfólkið Gaman- og teiknimynd Aðalhlutverk: Noah Schnapp, Bill Melendez, Hadley Belle Miller Frumsýnd: 26. desember IMDb 7,8/10 Rotten Tomatoes 86% Frumsýningar S íðastliðinn laugardag voru hin árlegu Evrópsku kvikmyndaverðlaun veitt í Berlín í 28. sinn, en verð-laununum er ætlað að vekja athygli á evrópskri kvikmyndagerð. Að þessu sinni áttu Íslendingar fulltrúa á meðal tilnefndra í flokknum besta myndin en þar var kvikmyndin Hrútar í leikstjórn Gríms Hákonarsonar tilnefnd. Hrútar voru á meðal sex tilnefndra mynda í flokknum. Hrútar hirtu þó ekki verðlaunin heldur var það kvikmyndin Youth í leikstjórn hins ítalska Paolo Sorrentino. Sorrentino hlaut einning verð- laun sem besti leikstjórinn en alls vann Youth til þrennra verðlauna á hátíðinni þar sem aðalleikari myndarinnar, Michael Caine, var að auki valinn besti leikarinn. Síðasta mynd leikstjórans, The Great Beauty, kom út árið 2013 og vann meðal annars til Óskarsverð- launa, Golden Globe- og BAFTA- verðlauna sem besta myndin á erlendu tungumáli. Youth verður framlag Ítalíu til Óskarsverðlaun- anna sem kvikmynd á erlendu tungumáli á þessu ári, rétt eins og Hrútar verða framlag Íslands. Líkt og áður sagði skartar Youth breska stórleikaranum Michael Caine í aðalhlutverki en hann kannast sjálfsagt flestir við enda hefur hann leikið í fjölda kvik- mynda á ferlinum og er annar tveggja leikara sem á ferlinum hafa verið tilnefndir til Óskars- verðlauna á hverjum einasta áratug frá 1960 til 2000. Hinn er bandaríski leikarinn Jack Nicholson. Árið 2000 var Caine sæmdur riddartign fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum en ótrúlegt en satt aldrei farið heim með verð- laun af Evrópsku kvikmynda- verðlaunahátíðinni og sagði það því hafa verið kærkomið þegar hann hlaut sérstök heið- ursverðlaun á laugardaginn. Líkt og áður sagði fékk Caine einnig verðlaun sem besti leikar- inn fyrir hlutverk sitt í Youth og var léttur í lund líkt og hann gjarnan er þegar hann steig á svið og tók við seinni verðlaununum Hin bresku Caine og Rampling heiðruð Bresku leikararnir michael caine og charlotte rampling fóru bæði heim með sérstök heiðursverðlaun af evr- ópsku kvikmyndaverðlaununum um helgina. einnig voru þau bæði valin leikarar ársins. og gerði grín að því að hann hefði aldrei unnið til verðlauna í Evrópu en nú hefði hann fengið tvenn á einu kvöldi. Á blaðamannafundi eftir verð- launaveitinguna sló Caine á létta strengi, fór yfir ferilinn og ráð- lagði sér yngri leikurum að leita ekki ráða hjá öðrum leikurum, þá sérstaklega ef þeir væru eldri. Sjálfum hefði honum verið sagt þegar hann var ungur leikari og leitaði ráða að hann myndi aldrei slá í gegn og ætti að gefa drauminn upp á bátinn. Var það sérstaklega vegna hreims Caine sem honum var sagt að ekkert yrði úr honum á hvíta tjaldinu. En viti menn, Caine náði heldur betur að afsanna það og er einmitt þekktur fyrir sinn greinilega cockney-hreim. B r e s k a l e i k- konan Charlotte Rampling fékk verðlaun sem leikkona ársins fyrir hlutverk sitt í myndinni 45 Years í leik- stjórn And- rew Haigh en einnig var hún heiðruð fyrir ævistarf sitt og var líkt og Caine sæl með verðlaunin og heiðurinn. Ev r ó p s ku k v i k- m y n d a v e r ð l a u n i n verða næst veitt þann 16. desem ber í borg- inni Wrocław í Pól- landi. gydaloa@frettabladid.is Charlotte Rampling og Michael Caine voru að vonum ánægð. Skíða- og snjóbrettapakkar 25% afsláttur • Svigskíði • Fjallaskíði • Gönguskíði • SnjóbrettiTökum notaðan skíða- og brettabúnað upp í nýjan lÍs en ku ALPARNIR s SWALLOW 250 Kuldaþol: -8 þyngd: 1,7 kg. 11.995 kr. 9.596 kr. MONTANA, 3000mm vatnsheld 2. manna 16.995 kr. 12.796 kr. 3. manna 19.995 kr. 15.996 kr. 4. manna 26.995 kr. 21.596 kr. 30% SNJÓBRETTAPAKKAR Góðar fermingargjafir alparnir.is FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727 P P Góð gæði Betra verð 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r60 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð bíó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.