Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 82
Hvernig nærðu
Nú þegar jólahátíðin fer að bresta á er mikilvægt að vera
með á hreinu hvernig á að ljósmynda matinn sinn svo
að vel fari. Fréttablaðið tók saman ráð sem eru skotheld
þegar það kemur að því að ná hinni fullkomnu mynd.
Skipulögð óreiða
Of fullkominn diskur
er alltaf ótrúverðugur og
allt of augljóst að raðað hafi
verið á diskinn einungis fyrir
ljósmyndina. Leyfðu krumpuðu
servéttunni, brauðmylsnunni
og sósuskvettunum að
njóta sín.
Því óhollara,
því betra
Myndir af óhollum mat
eru alltaf vinsælar enda
er óhollur matur eitt-
hvað sem allir elska.
Filterinn er
ekki vinur þinn
Ekki velja einhvern þungan
„filter“ til þess að reyna að láta
matinn þinn líta út fyrir að vera
girnilegri en hann er. Leiktu þér
frekar með birtustigið og aðrar
stillingar inni í Instagram-
forritinu.
Fleiri en einn diskur
á sömu mynd
Það raða ekki allir eins á diskinn
sinn og það getur verið gaman
að sjá nokkrar mismunandi
útfærslur. Það er áhugavert að
vinna með tvo eða fleiri
diska á mynd.
Nóg um að velja
Taktu margar myndir til
þess að geta valið um þá
flottustu. Leiktu þér með
fjarlægðina, sjónarhornið og
fleira til þess að ná hinni
fullkomnu mynd.
Kassamerkin eru hættu-
legur leikur
Aðeins í brýnustu nauðsyn er vel
séð að nota kassamerki. Að nota
kassamerki til þess að lýsa öllu sem
er á myndinni er ekki lengur málið. Ef
fjölskyldan tekur sig saman og notar
eitt kassamerki á myndirnar í jóla-
boðinu þá er það ekkert nema
skemmtilegt.
flottustumyndunum
af jólamatnum?
Auðveldara er að vinna
með bjarta liti
Jólamaturinn á það til að vera
brúnn eða fölbleikur á litinn og
það getur verið erfitt að gera gott úr
því. Þá getur verið mikilvægt að vera
með flott meðlæti í fallegum litum.
Þá ber helst að nefna fallegt Wal-
dorf-salat, sætar kartöflur eða
fagurgrænt salat.
1 7 . d e S e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r66 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
diskurinn skiptir máli
Það er ekki bara maturinn
sem er inni á myndinni heldur
líka diskurinn og hnífapörin. Allt
saman skiptir þetta máli þegar
hin fullkomna Instagram-mynd
er annars vegar. Mínímalískir
stórir diskar og kringlóttar
skálar myndast alltaf
vel.
Lífið
Taktu myndina
ofan frá
Myndin kemur mun betur
út enda besta sjónarhornið.
Matarmyndir teknar frá hlið eru
sjaldan góðar og oftast ekki
girnilegar. Ofan frá færðu
líka bestu myndina af því
hvað er nákvæmlega á
disknum.
birtan skiptir máli
Líklega eitt mikilvægasta at-
riðið á þessum lista. Flassið er
mikill óvinur matarmyndanna.
Notaðu birtuna inni á heimilinu
og kertaljós. Þannig færðu
fallega, mjúka og hátíðlega
mynd til þess að deila með
vinunum.