Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 86
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U rL í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð70
og flugi
Fræga fólkið er augljóslega í mismiklu
jólaskapi, og á meðan einhverjir brostu
sínu breiðasta til papparassanna sem fylgja
þeim yfirleitt hvert fótmál voru aðrir ör-
lítið þyngri á brún. Leikstjóranum Quentin
Tarantino stökk til að mynda ekki bros á vör
og Kylie Jenner var töluvert sparari á brosið
en gengur og gerist. Sér
í lagi sé horft til þess að
hún stillti sér upp sem
nýtt andlit Nip + Fab
strekkingarkrem-
anna. En menn og
konur geta svo sem
ekkert alltaf verið
í stuði, ekki einu
sinni stórstjörnur.
Frægir
á ferð
Lady Gaga
og unnusti hennar
Taylor Kinney
voru í jólaskapi á
Billboard Women
in Music Glass
award, enda
vopnuð sérlegum
jólahundi.
Okkar kona,
Kylie Jenner, var
fremur fýld að sjá
þegar hún pósaði
með kremdollu í
Hollywood.
Katrín hertogaynja lék á als oddi þegar
hún lamdi húðir með börnum á jóla-
skemmtun Anna Freud Centre Family
School í London í vikunni.
Maria Carey var blússandi sátt við
bæði guð og menn þegar hún steig
inn í Beacon-leikhúsið á þriðjudag.
Rita Ora yfirgaf Groucho Club
aldeilis spræk, í áberandi
fallega grænni yfirhöfn. Ora
skorar alltaf hátt hjá tísku-
spekúlöntum.
Tarantino var ekki í neinu
sérstöku stuði þegar hann
yfirgaf myndver The Late
Show With Stephen Colbert
á þriðjudagskvöldið.
Alexa Chung, tískudrottning
með meiru, strunsaði um
götur New York, sennilega
þungt hugsi yfir komandi jóla-
gjafakaupum eins og við hin.