Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 96

Fréttablaðið - 17.12.2015, Page 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Birtu Björnsdóttur Bakþankar Sími 568 9512 Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen) Lokað á aðfangadag Troðfull verslun af merkjavöru! 40 - 70% afsláttur af öllum vörum Barnafatnaður frá mánudag, þriðjudag, miðvikudag (þorláksmessa) mmtudag til sunnudags frá kl. 11 til 19 frá kl. 11 til 21 Opið lengur um jólin sími: 566 6666 Jólagjöfin í ár Taska fylgir með Phantom 3 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Talsvert hefur borið á að lands-menn eigi erfitt með að átta sig á söguþræði, aðalpersónum og framvindu í einu vinsælasta jóla- laginu, Jólasveinar einn og átta. Hér verður ykkur rétt hjálparhönd í þeim efnum. Jólasveinarnir voru sum sé einn og átta, en þarna er stuðst við æva- forna talningaraðferð þar sem einn og átta eru átján en ávallt þurfti að draga fimm frá þegar þessi aðferð var notuð. Átján mínus fimm, sem sagt þrettán eins og allir vita. Að hitta Jón á Völlunum hefur einnig vafist fyrir einhverjum en þarna er einfaldlega um að ræða samheiti yfir þá daglegu iðju að fara að sofa. Uppruna orða- tiltækisins má rekja til góðkunningja Jóns Más Péturssonar sem lengi bjó í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Var það samdóma álit samferðamanna hans að Jón væri leiðinlegasti maður þjóðarinnar frá landnámi og að hitta Jón á Völlunum þýddi óumflýjanlega að menn lognuðust útaf á meðan Jón óð elginn. Þá er það hann Andrés, en hann er umboðsmaður jólasveinanna til margra ára, dulur maður og ófram- færinn en sinnir sínu starfi af stakri natni. Einhverjir hafa velt fyrir sér hvernig jólasveinarnir fara að því að setja gjafir í skó allra íslenskra barna til sjávar og sveita auk þess að leiða yfirspennta krakka kringum jólatré á vegum allra starfsmannafélaga landsins. Þetta er honum Andrési og excel-skjölunum hans að þakka. En þegar þarna var komið sögu hafði Andrés sopið ótæpilega á púrt- víni og hent í status þar sem hann fagnaði komu flóttamanna til lands- ins auk þess að lýsa yfir velþóknun á fyrirhugaðri byggingu mosku í Reykjavík. Andrés var því frekar timbraður og utangátta og beið þess að vera fórnað á altari nettröllanna. Þegar fyrrnefndar upplýsingar, sem fengnar voru eftir mikla yfirlegu á handritadeild stofnunar Árna Magnússonar, eru öllum ljósar ættu allir að geta tekið hraustlega undir á næsta jólaballi með allar staðreyndir málsins í farteskinu. Andrés og Jón

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.