Fréttablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Birtu
Björnsdóttur
Bakþankar
Sími 568 9512
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
Lokað á aðfangadag
Troðfull
verslun af
merkjavöru!
40 - 70%
afsláttur
af öllum vörum
Barnafatnaður frá
mánudag, þriðjudag,
miðvikudag (þorláksmessa)
mmtudag til sunnudags
frá kl. 11 til 19
frá kl. 11 til 21
Opið lengur um jólin
sími: 566 6666
Jólagjöfin í ár
Taska fylgir með
Phantom 3
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Talsvert hefur borið á að lands-menn eigi erfitt með að átta sig á söguþræði, aðalpersónum
og framvindu í einu vinsælasta jóla-
laginu, Jólasveinar einn og átta. Hér
verður ykkur rétt hjálparhönd í þeim
efnum.
Jólasveinarnir voru sum sé einn
og átta, en þarna er stuðst við æva-
forna talningaraðferð þar sem einn
og átta eru átján en ávallt þurfti að
draga fimm frá þegar þessi aðferð var
notuð. Átján mínus fimm, sem sagt
þrettán eins og allir vita. Að hitta Jón
á Völlunum hefur einnig vafist fyrir
einhverjum en þarna er einfaldlega
um að ræða samheiti yfir þá daglegu
iðju að fara að sofa. Uppruna orða-
tiltækisins má rekja til góðkunningja
Jóns Más Péturssonar sem lengi bjó
í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Var
það samdóma álit samferðamanna
hans að Jón væri leiðinlegasti maður
þjóðarinnar frá landnámi og að hitta
Jón á Völlunum þýddi óumflýjanlega
að menn lognuðust útaf á meðan Jón
óð elginn.
Þá er það hann Andrés, en hann
er umboðsmaður jólasveinanna til
margra ára, dulur maður og ófram-
færinn en sinnir sínu starfi af stakri
natni. Einhverjir hafa velt fyrir sér
hvernig jólasveinarnir fara að því að
setja gjafir í skó allra íslenskra barna
til sjávar og sveita auk þess að leiða
yfirspennta krakka kringum jólatré
á vegum allra starfsmannafélaga
landsins. Þetta er honum Andrési og
excel-skjölunum hans að þakka.
En þegar þarna var komið sögu
hafði Andrés sopið ótæpilega á púrt-
víni og hent í status þar sem hann
fagnaði komu flóttamanna til lands-
ins auk þess að lýsa yfir velþóknun
á fyrirhugaðri byggingu mosku í
Reykjavík. Andrés var því frekar
timbraður og utangátta og beið þess
að vera fórnað á altari nettröllanna.
Þegar fyrrnefndar upplýsingar,
sem fengnar voru eftir mikla yfirlegu
á handritadeild stofnunar Árna
Magnússonar, eru öllum ljósar ættu
allir að geta tekið hraustlega undir á
næsta jólaballi með allar staðreyndir
málsins í farteskinu.
Andrés og Jón