Fréttablaðið - 18.04.2015, Qupperneq 50
FÓLK|HELGIN
Ég fékk tvær sögur sendar til að myndskreyta. Núna er ég búin að lesa allar sögurnar í bókinni og
hún er ótrúlega flott og mikið í hana
lagt. Sögurnar eru mjög draugalegar hjá
krökkunum og mér fannst sérstaklega
gaman að fá að gera ógnvekjandi myndir
í barnabók því yfirleitt er það öfugt. Ég
þarf að halda aftur af mér. Það er alltaf
gaman að teikna eitthvað „krípí“,“ segir
Fanney Sizemore en hún er einn af sjö
teiknurum sem myndskreyta glænýja
drauga- og hryllingssögubók eftir nítján
grunnskólakrakka í Reykjavík, Eitthvað
illt á leiðinni er.
Útgáfuhóf bókarinnar er haldið í dag
og er það eitt af því sem er á dagskránni
yfir helgina hjá Fanneyju. „Það verður
gaman að hitta krakkana á bak við sög-
urnar,“ segir hún.
Annars á hún annasama helgi fram
undan.
„Ég hef verið að myndskreyta aðra
sögu, tónlistarævintýri sem gerist í
orgeli. Það er æfing í dag hjá okkur fyrir
tónleika sem verða svo fluttir á miðviku-
daginn á Barnamenningarhátíð. Annað
kvöld er ég svo að vinna uppi í Borgar-
leikhúsi þar sem ég er hvíslari.
Hvísla núna við sýninguna Er ekki nóg
að elska?“ segir Fanney og viðurkennir
að þetta sé frekar dæmigerð helgi hjá
henni.
Þegar hún á frí reynir hún að gera vel
við sig í kósíheitum eða skellir sér út að
dansa.
„Ég dansa lindýhopp hvenær sem
tækifæri gefst en fer lítið á djammið.
Dansæfingarnar eru þó yfirleitt á virkum
kvöldum en stundum um helgar og oft
er hægt að dansa lindýhopp á djasstón-
leikum um helgar. Ég fer líka gjarnan í
leikhús ef ég á frí á laugardagskvöldum,
það virðist einhvern veginn fylgja því að
vinna í leikhúsi,“ segir Fanney.
„Það kemur frekar sjaldan fyrir að ég
eigi lausan dag um helgi til að gera ekki
neitt en ef það gerist sæki ég yfirleitt í
kósíheit, reyni að sofa út ef kisi vekur
mig ekki eldsnemma og fæ mér góðan
morgunmat, egg og beikon til dæmis. Ég
er svo léleg í morgunmatnum á virkum
dögum. Svo kveiki ég yfirleitt ekki á sjón-
varpinu heldur gríp frekar í bók að lesa.“
Ertu þá að lesa hryllingssögur?
„Ég er reyndar lítið í hryllingssög-
unum en les mikið fantasíur og vísinda-
skáldsögur.“
GAMAN AÐ TEIKNA
EITTHVAÐ „KRÍPÍ“
HELGIN Fanney Sizemore dembir sér í útgáfuhóf bókarinnar Eitthvað illt á
leiðinni er í dag en hún er einn af sjö teiknurum sem myndskreyta bókina.
Helgin verður annars annasöm hjá Fanneyju við teikningar og hvísl.
ÚTGÁFUHÓF ÆFING
OG HVÍSL Fanney
Sizemore ætlar í útgáfu-
partí í dag en hún er ein
þeirra sem myndskreyta
hryllingssögusafnið
Eitthvað illt á leiðinni
er, eftir nítján grunn-
skólakrakka í Reykjavík.
Annað kvöld hvíslar hún
við sýninguna Er ekki
nóg að elska? í Borgar-
leikhúsinu.
MYND/VALLI
Eiginmaður Lee lést úr krabbameini fyrir
18 árum. Þau hjónin fóru reglulega í sigl-
ingar. Eiginmaður hennar sem starfaði sem
bankamaður og var fjárfestir lagði á það ríka
áherslu áður en hann lést að hún héldi áfram
að ferðast. Lee borgar rúmar 20 milljónir
króna á ári fyrir búsetu í skipinu. Um borð
en hún kölluð Mama Lee og hún nýtur þess
að mæta á alla viðburði um borð, dansar og
skemmtir sér. Hún hefur komið í margar hafn-
ir í mörgum heimsálfum á þessum sjö árum.
Skipið hefur siglt til Ástralíu, frá Afríku til
Brasilíu og Miami. Þá hefur hún siglt um Mið-
jarðarhafið og heimsótt sögufrægar borgir.
Um borð á Lee 1.080 nágranna sem stoppa
þó stutt við. Flestir þeirra eru Bandaríkja-
menn en skipafélagið sem Lee siglir með
heitir Crystal Cruises. Lee hefur fimmtán
sinnum á ævinni siglt umhverfis jörðina.
Þegar skipið kemur til Flórída hittir hún börn
sín og barnabörn.
BÝR Á SKEMMTIFERÐASKIPI
Lee Wachtstetter er 86 ára amma sem seldi húsið sitt fyrir sjö árum og flutti um
borð í skemmtiferðaskip. Skipið er heimili hennar.
SVÍTAN Herbergið er glæsilegt og Lee hefur öll þægindi um borð á
meðan hún siglir um heimsins höf.
GLÆSI-
SKIP Lee
býr um
borð í skipi
frá skipa-
félaginu
Crystal
Cruises.
COMMA-FASHION.COM
Fallegt, fágað og töff
Smáralind
facebook.com/CommaIceland