Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 55
Staða leikskólastjóra við leikskólann Fífuborg
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Fífuborg.
Fífuborg er fjögurra deilda leikskóli við Fífurima í Grafarvogi. Í næsta nágrenni leikskólans er grenndarsvæði hans, Hallsholt.
Leikskólinn er Grænfánaskóli og unnið er eftir kenningum John Dewey, Caroline Pratt og Lev Vygotsky.
Í leikskólanum er lögð áhersla á lýðræðislega stjórnun með samstarfi allra sem mynda samfélag Fífuborgar, þ.e. barna, foreldra
og starfsfólks. Mikil áhersla er lögð á lýðræði, að raddir barnanna heyrist og þau hafi áhrif á umhverfi sitt.
Gildi Fífuborgar eru virðing, heilbrigði og gleði.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að þróa og leiða uppeldis- og menntastarf í Fífuborg.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreyti-
lega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júlí 2015. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, sími 411 1111.
Netfang: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is
Leikskólinn Skerjagarður
Við á Leikskólanum Skerjagarði, Bauganesi 13 í
Reykjavík, erum að leita að metnaðarfullum og
jákvæðum leikskólakennara eða leiðbeinanda, sem
hefur brennandi áhuga að starfa með börnum.
Framtíðarstarf í boði. Skerjagarður er lítill einkarekinn
leikskóli, þar sem frumkvæði og gleði eru í fyrirrúmi.
Umsókn og frekari upplýsingar sendist á netfangið
skerjagardur@skerjagardur.is.
eða í síma 8485213 Sóldís
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli.
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Meistaragráða í verkfræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sterk öryggis- og umhverfisvitund
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum liðsmönnum
á umhverfis- og verkfræðisvið Norðuráls. Störfin sem um
ræðir fela í sér undirbúning og stjórn á marg þættum og
krefjandi verkefnum á Grundartanga.
Sótt er um á www.nordural.is, umsóknar-
frestur er til og með 30. apríl nk. Upplýsingar
veita Einar F. Björnsson, framkvæmdastjóri
Umhverfis- og verkfræðisviðs, og Valka Jóns-
dóttir starfsmannastjóri í síma 430 1000.
Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna, endurmenntun og starfs-
þróun, frábæran starfsanda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð starfsaðstaða
í lifandi umhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
SPENNANDI STÖRF Á
UMHVERFIS- OG VERKFRÆÐISVIÐI
STARFSSVIÐ:
• Undirbúningur verkefna og verkefnastýring
• Rekstur og þróun umhverfismála
• Umsjón með gerð og eftirfylgni áætlana
• Kostnaðareftirlit
• Greining og upplýsingagjöf innanhúss og
til opinberra aðila