Fréttablaðið - 18.04.2015, Page 98

Fréttablaðið - 18.04.2015, Page 98
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA SIGÞÓRSDÓTTIR Skúlagötu 20, Reykjavík, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 12. apríl, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 20. apríl kl. 13.00. Kolbrún Bessadóttir Pétur Jóhannesson Bjarni Bessason Guðrún Erna Baldvinsdóttir Erla Andrea Pétursdóttir Elísabet Pétursdóttir Magnús Snorri Bjarnason Sólveig Bjarnadóttir og barnabarnabörn. Ástvinur okkar, VALGARÐ RUNÓLFSSON fyrrv. skólastjóri í Hveragerði og leiðsögumaður, lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. apríl sl. Útför fer fram frá Áskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 14.00. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir Vera Ósk Valgarðsdóttir Guðjón Sigurðsson Kjartan Valgarðsson Nína Helgadóttir Bolli Valgarðsson Hrafnhildur Hauksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru KRISTÍNAR SVÖVU AGNARSDÓTTUR frá Ísafirði. Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk HSS. Svavar Garðarsson Agnes Margrét Garðarsdóttir og aðstandendur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR ERNA HAUKSDÓTTIR Logafold 176, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 14. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Karítas. Ólafur Örn Valdimarsson Bergþóra Hrund Ólafsdóttir Guðmundur Konráðsson Valdimar Grétar Ólafsson Kristbjörg Kristjánsdóttir Sunneva Ólafsdóttir Jósef Hermann Albertsson barnabörn og aðrir aðstandendur. Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru VILBORGAR AXELSDÓTTUR Sérstakar þakkir til starfsfólks Dagvistunar- heimilis eldri borgara á Seltjarnarnesi og starfsfólks Landspítala Íslands. Rögnvaldur Geir Sigurðsson Ingibjörg Kristín Dalberg Stefán Dalberg Karen Rögnvaldsdóttir Ragnar Karlsson Svandís Rögnvaldsdóttir Guðmundur B. Hannah Íris Rögnvaldsdóttir Hilmir B. Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Mágur minn, GUÐMUNDUR HEIMIR PÁLSSON fyrrverandi sjómaður, áður til heimilis að Maríubakka 2, verður jarðsunginn frá bænhúsi Fossvogs- kirkju mánudaginn 20. apríl kl. 13.00. Guðrún Árnadóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa, langafa og vinar, HAFSTEINS ÞORVALDSSONAR Engjavegi 28, Selfossi. Þorvaldur Guðmundsson Hjördís Leósdóttir Ragnheiður Hafsteinsdóttir Birgir Guðmundsson Þráinn Hafsteinsson Þórdís Lilja Gísladóttir Aðalbjörg Hafsteinsdóttir Ólafur Óskar Óskarsson Vésteinn Hafsteinsson Anna Hafsteinsson Östenberg afabörn og langafabörn Ingunn Pálsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUNNAR HELGASON Vesturgötu 7, lést 29. mars síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Dóra Gunnarsdóttir Guðmundur Hallgrímsson Anna Gunnarsdóttir Birgir Karl Guðmundsson Guðbjörn Gunnarsson Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar og tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNJU BORGÞÓRSDÓTTUR til heimilis á Sólvangi, Hafnarfirði, áður Álfaskeiði 64D. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimili Sólvangs fyrir einstakt viðmót og frábæra umönnun. Gunnar Þór Júlíusson Ingveldur J. Gunnarsdóttir Guðrún Júlíusdóttir Jón Vídalín Hinriksson Helgi Guðbjörn Júlíusson Stefanía Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINGERÐUR BJARNEY INGÓLFSDÓTTIR til heimilis að Árskógum 8, Reykjavík, lést miðvikudaginn 15. apríl á Vífilsstöðum. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.00. Ingólfur Þór Baldvinsson Svanhvít Hreinsdóttir Ásta Baldvinsdóttir Lars Magne Kalvenes Anna Bára Baldvinsdóttir Hjörtur Hafliðason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar og afi, AHMED HAFEZ AWAD Stífluseli 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 15. apríl umkringdur ástvinum. Ómar Awad Á. Laila Awad Miriam Petra Awad Samy Awad og barnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR Bár, Norðfirði, lést á Hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað laugardaginn 11. apríl. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 27. apríl kl 14.00. Önundur Erlingsson Dagmar Vigdís Viðarsdóttir Kristinn Pálsson Hulda Valdís Önundardóttir Eiríkur Rúnar Elíasson og börn. Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, HALLDÓR BIRGIR JÓHANNSSON lést miðvikudaginn 8. apríl. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 22. apríl klukkan 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning til styrktar börnum hans, rknr. 0515-14-410555, kt. 201278-5979. Ragna Marí Halldórsdóttir Davíð Logi Halldórsson Jóhann Halldórsson Olga Guðmundsdóttir Elvar Örn Jóhannsson Jóhann Freyr Jóhannsson Hrönn Veronika Runólfsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EGILL BJARNASON fv. héraðsráðunautur í Skagafirði, Bárustíg 1, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki miðvikudaginn 15. apríl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 25. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási. Minningarkortin fást í Blóma- og gjafabúðinni Sauðárkróki. Alda Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Egilsson Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir Ásta Egilsdóttir Lárus Sighvatsson Bjarni Egilsson Elín Petra Guðbrandsdóttir Árni Egilsson Þórdís Sif Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. „Þetta hefur verið ævintýralegt og mjög skemmtilegur fífla- gangur,“ segir Steinþór Þráinsson, kórstjóri þingeyska karla- kórsins Hreims, en kórinn fagnar 40 ára afmæli sínu með tónleikum ásamt Ljótu hálfvitunum. „Við höldum alltaf stóra tónleika á vorin en í ár ákváðum við að gera eitthvað meira en venjulega til að halda almennilega upp á afmælið okkar. Úr því varð þessi skemmtilega blanda af klassíska karlakórnum og svo fíflaganginum í hálfvitunum,“ segir Steinþór. Steinþór segir undirbúning hafa gengið gríðarlega vel, þrátt fyrir að það hafi verið fremur skiptar skoðanir á meðal með- lima kórsins í fyrstu. „Eftir að við hófum æfingar um áramótin voru allir sammála um að þetta yrði bara skemmtilegra með hverri æfingunni. Aldursforsetinn okkar sem er áttræður seg- ist hreinlega aldrei hafa skemmt sér eins vel,“ segir Steinþór. Kórinn og hljómsveitin héldu tónleika síðustu helgi fyrir norðan. „Þeir gengu mjög vel og salurinn var fullur, þrátt fyrir öskrandi stórhríð,“ segir Steinþór og telur að tónleikarnir í dag verði ekki síðri. „Þessi blanda er svo skemmtileg og það hefur verið alveg ótrúlega gaman að vinna með þessum vitleysing- um,“ segir Steinþór. Afmælistónleikarnir fara fram í Háskóla- bíói í dag klukkan 15 og munu Hreimur og Hálfvitarnir flytja tónlist sína á hefðbundinn hátt en vinna einnig saman. Hálf- vitarnir hafa meðal annars útsett nokkur lög kórsins eftir sínu höfði og munu leika undir söng kórsins. Einnig hafa nokkur lög hljómsveitarinnar fengið meðferð hjá kórnum og mun hann taka undir lögin. „Fyrri hluti tónleikanna verður klassískir karlakórstónleikar, en Ljótu hálfvitarnir koma inn rétt fyrir hlé og þá erum við strax farnir út af sporinu. Eftir hlé munum við síðan syngja með þeirra lögum og úr verða mjög frumlegir og skemmtilegir tónleikar,“ segir Steinþór. - ag Karlakór og fífl agangur hin fullkomna blanda Karlakórinn Hreimur heldur upp á 40 ára afmælið sitt ásamt Ljótu hálfvitunum. Þrátt fyrir skiptar skoðanir meðlima í fyrstu er útkoman frumlegir og ævintýralegir tónleikar. BREGÐA Á LEIK Jón Þormóðsson, Snæbjörn Ragnarsson, Steinþór Þráinsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Guðmundur Jónsson og Guð- mundur Svafarsson stilla sér upp á mynd meðan Eggert Hilmarsson og Baldur Ragnarsson stelast inn á myndina fyrir aftan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.