Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 98
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA SIGÞÓRSDÓTTIR
Skúlagötu 20, Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
12. apríl, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Kolbrún Bessadóttir Pétur Jóhannesson
Bjarni Bessason Guðrún Erna Baldvinsdóttir
Erla Andrea Pétursdóttir
Elísabet Pétursdóttir
Magnús Snorri Bjarnason
Sólveig Bjarnadóttir
og barnabarnabörn.
Ástvinur okkar,
VALGARÐ RUNÓLFSSON
fyrrv. skólastjóri í Hveragerði
og leiðsögumaður,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. apríl sl.
Útför fer fram frá Áskirkju föstudaginn
24. apríl kl. 14.00.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir
Vera Ósk Valgarðsdóttir Guðjón Sigurðsson
Kjartan Valgarðsson Nína Helgadóttir
Bolli Valgarðsson Hrafnhildur Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru
KRISTÍNAR SVÖVU AGNARSDÓTTUR
frá Ísafirði.
Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk
HSS.
Svavar Garðarsson
Agnes Margrét Garðarsdóttir
og aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
UNNUR ERNA HAUKSDÓTTIR
Logafold 176, Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
þriðjudaginn 14. apríl. Útförin fer fram
frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. apríl
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Minningarsjóð Karítas.
Ólafur Örn Valdimarsson
Bergþóra Hrund Ólafsdóttir Guðmundur Konráðsson
Valdimar Grétar Ólafsson Kristbjörg Kristjánsdóttir
Sunneva Ólafsdóttir Jósef Hermann Albertsson
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
VILBORGAR AXELSDÓTTUR
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dagvistunar-
heimilis eldri borgara á Seltjarnarnesi og
starfsfólks Landspítala Íslands.
Rögnvaldur Geir Sigurðsson
Ingibjörg Kristín Dalberg Stefán Dalberg
Karen Rögnvaldsdóttir Ragnar Karlsson
Svandís Rögnvaldsdóttir Guðmundur B. Hannah
Íris Rögnvaldsdóttir Hilmir B. Jóhannesson
barnabörn og barnabarnabörn.
Mágur minn,
GUÐMUNDUR HEIMIR PÁLSSON
fyrrverandi sjómaður,
áður til heimilis að Maríubakka 2,
verður jarðsunginn frá bænhúsi Fossvogs-
kirkju mánudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Guðrún Árnadóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður, afa, langafa og vinar,
HAFSTEINS ÞORVALDSSONAR
Engjavegi 28, Selfossi.
Þorvaldur Guðmundsson Hjördís Leósdóttir
Ragnheiður Hafsteinsdóttir Birgir Guðmundsson
Þráinn Hafsteinsson Þórdís Lilja Gísladóttir
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir Ólafur Óskar Óskarsson
Vésteinn Hafsteinsson Anna Hafsteinsson Östenberg
afabörn og langafabörn
Ingunn Pálsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
GUNNAR HELGASON
Vesturgötu 7,
lést 29. mars síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dóra Gunnarsdóttir Guðmundur Hallgrímsson
Anna Gunnarsdóttir Birgir Karl Guðmundsson
Guðbjörn Gunnarsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar og tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BRYNJU BORGÞÓRSDÓTTUR
til heimilis á Sólvangi, Hafnarfirði,
áður Álfaskeiði 64D.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimili
Sólvangs fyrir einstakt viðmót og frábæra umönnun.
Gunnar Þór Júlíusson Ingveldur J. Gunnarsdóttir
Guðrún Júlíusdóttir Jón Vídalín Hinriksson
Helgi Guðbjörn Júlíusson Stefanía Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINGERÐUR BJARNEY
INGÓLFSDÓTTIR
til heimilis að Árskógum 8, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 15. apríl á Vífilsstöðum.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 27. apríl kl. 13.00.
Ingólfur Þór Baldvinsson Svanhvít Hreinsdóttir
Ásta Baldvinsdóttir Lars Magne Kalvenes
Anna Bára Baldvinsdóttir Hjörtur Hafliðason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar og afi,
AHMED HAFEZ AWAD
Stífluseli 4, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 15. apríl
umkringdur ástvinum.
Ómar Awad
Á. Laila Awad
Miriam Petra Awad
Samy Awad
og barnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR
Bár, Norðfirði,
lést á Hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins
í Neskaupstað laugardaginn 11. apríl.
Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju
mánudaginn 27. apríl kl 14.00.
Önundur Erlingsson
Dagmar Vigdís Viðarsdóttir Kristinn Pálsson
Hulda Valdís Önundardóttir Eiríkur Rúnar Elíasson
og börn.
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
HALLDÓR BIRGIR JÓHANNSSON
lést miðvikudaginn 8. apríl. Útför hans fer
fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
22. apríl klukkan 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á reikning til styrktar
börnum hans, rknr. 0515-14-410555, kt. 201278-5979.
Ragna Marí Halldórsdóttir Davíð Logi Halldórsson
Jóhann Halldórsson Olga Guðmundsdóttir
Elvar Örn Jóhannsson
Jóhann Freyr Jóhannsson Hrönn Veronika Runólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EGILL BJARNASON
fv. héraðsráðunautur í Skagafirði,
Bárustíg 1, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
miðvikudaginn 15. apríl. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 25. apríl
kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Sigurlaugar
Gunnarsdóttur frá Ási. Minningarkortin fást í Blóma- og
gjafabúðinni Sauðárkróki.
Alda Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Egilsson Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir
Ásta Egilsdóttir Lárus Sighvatsson
Bjarni Egilsson Elín Petra Guðbrandsdóttir
Árni Egilsson Þórdís Sif Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Þetta hefur verið ævintýralegt og mjög skemmtilegur fífla-
gangur,“ segir Steinþór Þráinsson, kórstjóri þingeyska karla-
kórsins Hreims, en kórinn fagnar 40 ára afmæli sínu með
tónleikum ásamt Ljótu hálfvitunum. „Við höldum alltaf stóra
tónleika á vorin en í ár ákváðum við að gera eitthvað meira en
venjulega til að halda almennilega upp á afmælið okkar. Úr því
varð þessi skemmtilega blanda af klassíska karlakórnum og
svo fíflaganginum í hálfvitunum,“ segir Steinþór.
Steinþór segir undirbúning hafa gengið gríðarlega vel, þrátt
fyrir að það hafi verið fremur skiptar skoðanir á meðal með-
lima kórsins í fyrstu. „Eftir að við hófum æfingar um áramótin
voru allir sammála um að þetta yrði bara skemmtilegra með
hverri æfingunni. Aldursforsetinn okkar sem er áttræður seg-
ist hreinlega aldrei hafa skemmt sér eins vel,“ segir Steinþór.
Kórinn og hljómsveitin héldu tónleika síðustu helgi fyrir
norðan. „Þeir gengu mjög vel og salurinn var fullur, þrátt fyrir
öskrandi stórhríð,“ segir Steinþór og telur að tónleikarnir í dag
verði ekki síðri. „Þessi blanda er svo skemmtileg og það hefur
verið alveg ótrúlega gaman að vinna með þessum vitleysing-
um,“ segir Steinþór. Afmælistónleikarnir fara fram í Háskóla-
bíói í dag klukkan 15 og munu Hreimur og Hálfvitarnir flytja
tónlist sína á hefðbundinn hátt en vinna einnig saman. Hálf-
vitarnir hafa meðal annars útsett nokkur lög kórsins eftir sínu
höfði og munu leika undir söng kórsins. Einnig hafa nokkur lög
hljómsveitarinnar fengið meðferð hjá kórnum og mun hann
taka undir lögin. „Fyrri hluti tónleikanna verður klassískir
karlakórstónleikar, en Ljótu hálfvitarnir koma inn rétt fyrir
hlé og þá erum við strax farnir út af sporinu. Eftir hlé munum
við síðan syngja með þeirra lögum og úr verða mjög frumlegir
og skemmtilegir tónleikar,“ segir Steinþór. - ag
Karlakór og fífl agangur
hin fullkomna blanda
Karlakórinn Hreimur heldur upp á 40 ára afmælið sitt ásamt Ljótu hálfvitunum. Þrátt
fyrir skiptar skoðanir meðlima í fyrstu er útkoman frumlegir og ævintýralegir tónleikar.
BREGÐA Á LEIK Jón Þormóðsson, Snæbjörn Ragnarsson, Steinþór
Þráinsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Guðmundur Jónsson og Guð-
mundur Svafarsson stilla sér upp á mynd meðan Eggert Hilmarsson
og Baldur Ragnarsson stelast inn á myndina fyrir aftan.