Fréttablaðið - 18.04.2015, Qupperneq 106
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
Sýningin MENN beinir sjónum að
stöðu karla við upphaf 21. aldar og
þeim breytingum sem orðið hafa á
högum þeirra í ljósi breyttrar stöðu
kvenna. Á sýningunni eru verk eftir
þá Curver Thoroddsen, Finn Arnar
Arnarson, Hlyn Hallsson og Krist-
in G. Harðarson. Í verkunum tak-
ast þeir á við spurningar um stöðu
karla innan fjölskyldu, hugmyndir
um þátttöku þeirra í heimilislífi,
ábyrgð á afkomu og uppeldi barna.
Málþing í tengslum við sýninguna
verður á morgun, laugardag, og
hefst klukkan 14. Framsögumenn
eru Ingólfur V. Gíslason, Jón Ingvar
Kjaran og Árni Matthíasson og auk
þeirra taka listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni þátt í umræðum
sem Haukur Ingvarsson rithöfund-
ur stýrir. Eins og að framan greinir
er Curver Thoroddsen einn þeirra.
„Þeir eldri munu eflaust velta
fyrir sér breyttri stöðu kynjanna
eftir að jafnrétti á heimilinu óx
fiskur um hrygg en ég er yngst-
ur og eiginlega afsprengi þeirra
aðstæðna. Mitt innlegg í umræðuna
verður því bara lýsing á lífi ungra
fjölskyldumanna nútímans.“ - gun
Afsprengi aukins jafnréttis
Efnt verður til málþings í Hafnarborg í Hafnarfi rði á morgun, laugardag,
í tengslum við sýninguna Menn sem þar stendur yfi r.
KUNG FU
ÞVOTTA-
HÚS 2015
Curver og
Hrafnkell
Tími
Thoroddsen
sinna
þvottinum.
Stilla úr
vídeóverki
sem sýnt er í
Hafnarborg.
Opnað verður
fyrir umsóknir
í Myndlistarsjóð
18.apríl
Myndlistarsjóður
Veittir verða
Undirbúningsstyrkir og styrkir
til minni sýningar verkefna allt
að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningar-
verkefna, útgáfu/rann sóknar-
styrkir og aðrir styrkir allt að
2.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er 1.júní 2015
Upp lýsingar um myndlistarsjóð,
um sóknar eyðublað, út hlutunar-
reglur og leið beiningar er að finna
á vefsíðu myndlistarráðs
www.myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í júlí
119.990,-
73.990,-
ÚRVALIÐ
ER HJÁ OKKUR!
Í dag verður Safnahúsið opnað að
nýju með sýningu á sjónrænum
menningararfi þjóðarinnar. Að
sýningunni standa höfuðsöfnin
þrjú, Þjóðminjasafn, Listasafn og
Náttúruminjasafn, auk Þjóðskjala-
safns, Landsbókasafns Íslands
– Háskólabókasafns og Stofnun-
ar Árna Magnússonar í íslensk-
um fræðum. Samstarf þessara
sex stofnana býður upp á einstakt
tækifæri til að skoða arfleifðina
í nýju samhengi og varpa ljósi
á ósagða sögu með nýstárlegum
hætti.
Sjónrænn menningararfur snýr
langt því frá einvörðungu að því
sem almennt er litið á sem mynd-
list. Þarna er að finna muni á borð
við íslensku handritin, hönnun og
myndlist samtímans, handverk lið-
inna alda og svo mætti lengi telja.
Mikil áhersla er lögð á fræðslu-
þáttinn fyrir fjölskyldur sem skóla
og hefur Hlín Gylfadóttir, safn-
fræðslufulltrúi Þjóðminjasafnsins,
unnið að fræðsluefni ásamt fleir-
um í aðdraganda opnunarinnar.
„Þetta er búið að vera langt og
mikið ferli sem hefur verið ákaf-
lega gaman að taka taka þátt í.
Sýningin verður tækifæri til sam-
verustunda fyrir börn og full-
orðna og þannig hugsuð að fólk
geti komið saman og notið hennar
á sínum forsendum.
Við erum búin að útbúa fræðslu-
efni sem virkar eins og hjálpar-
tæki þegar sýningin er skoðuð.
Það eru t.d. spil, leikir og þraut-
ir sem leiða fólk áfram í gegnum
sýninguna og hvetja það um leið
til þess að nota hugmyndaflugið.
Þannig verður það sem skoðað er
að lifandi munum sem tala með
sínum hætti til þeirra sem skoða
og njóta. Heimsókn í Safnahúsið
er þannig tilvalið tækifæri til sam-
verustundar ólíkra kynslóða. Að
auki verður hægt að nálgast sér-
sniðið efni á vefnum okkar fyrir
kennara fyrir skólaheimsóknir.“
Safnahúsið mun einnig bjóða
upp á leiðsöguforrit í gegnum síma
og leigu á símum. Með því er hægt
að þræða sig eftir sýningunni með
hvort sem er heldur hljóðleiðsögn
eða skjátexta og því er mikið gert
til þess að fólk geti notið sýningar-
innar til fulls og fengið skemmti-
lega fræðslu í senn. Sýningar-
stjóri er Markús Þór Andrésson
og er rétt að minna á að í næstu
viku verður enginn aðgangseyrir
að safninu. magnus@frettabladid.is
Skoðaðu samhengið
Safnahúsið opnar sýningu á sjónrænum menningararfi þjóðarinnar og áherslan
er lögð á að ólíkar kynslóðir geti notið þess að skoða sýninguna saman.
SAFNFRÆÐSLUFULLTRÚI Hlín Gylfadóttir er á meðal þeirra sem hafa unnið að
fræðsluþætti sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KISTILL
NAFN LISTA-
MANNS/-KONU
ÓÞEKKT
VESTFIRÐING-
UR 1700,
22,2 X 20,5 X
18,5 CM
ÚTSKURÐUR
(FURA)
SJÓNRÆNN MENNINGARARFUR Á sýningunni gefur víða að líta muni frá ólíkum tíma sem tengjast þó jafnvel með óvæntum hætti.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/E
RN
IR
ÁN TITILS
ÞÓR VIGFÚSSON
2005, 20 X 32 CM
PLASTSKÚLPTÚR
DRYKKJARHORN
NAFN LISTAMANNS/-
KONU ÓÞEKKT
1625, 34 CM
ÚTSKURÐUR
(NAUTSHORN),
SILFURSMÍÐI
FJÖL FRÁ GAULVERJABÆ
NAFN LISTAMANNS/-
KONU ÓÞEKKT
1000-1100,
68,3 X 17,9 CM
ÚTSKURÐUR (FURA)