Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 112
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 68
Fyndnasti háskólaneminn fannst á
sviði Stúdentakjallarans á fimmtu-
dagskvöldið og varð lögfræðinem-
inn Jóhannes Ingi Torfason þar hlut-
skarpastur.
Stúdentaráð Háskóla Íslands stóð
fyrir viðburðinum og segir formað-
urinn, Aron Ólafsson, aðsóknina
hafa farið algjörlega fram úr björt-
ustu vonum. „Við urðum hrein-
lega að vísa fólki frá, það var alveg
stappað,“ segir hann og bætir við:
„Það tók gott korter að komast að
barnum, það er ágætis mælistika á
stöðuna.“
Segist Aron fullviss um að hér sé
lagður grunnur að árlegum viðburði
í félagslífi skólans.
Halldóra Kristín Unnarsdótt-
ir varð í öðru sæti og Brynjólfur
Jóhann Bjarnason nældi sér í þriðja
sætið. „Ég átti ekkert von á þessu,
vonaði bara að einhver myndi hlæja
smá,“ sagði Jóhannes auðmjúkur.
Hann hlaut hundrað þúsund krón-
ur í verðlaun og liggur beinast við
að fá að vita hvað hann hyggist gera
við peninginn. „Ég veit það ekki, en
það er ágætt að geta notað ávísunina
sem sönnun fyrir að brandararnir
mínir séu í alvöru góðir, ef einhver
efast einhvern tímann aftur um
ágæti þeirra.“ gudrun@frettabladid.is
Lögfræðinemi
reynist aðal-
spéfugl skólans
Háskólanemar fj ölmenntu á lokakvöld frumraunar
Stúdentaráðs til að fi nna fyndnasta nemann innan
sinna raða. Ljóst þykir að stemningin var allsráðandi.
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Njóttu
Náttúrunnar á hlaupum
Vönduð föt og búnaður
fyrir náttúruhlaupin
20% kynningarafsláttur
af öllum Ronhill vörum
fæst nú í útilífi glæsibæ
Ronhill hlaupafatnaður
Sérfræðingur frá Ronhill verður á staðnum frá kl. 13 - 15 í dag.
UPPLÍFGANDI Steiney Skúladóttir var
kynnir og fórst það vel úr hendi.
➜ Keppnin var sú fyrsta
sinnar tegundar innan skólans
og þótti takast svo vel að hún
verður að árlegum viðburði.
FYNDNASTUR
Jóhannes
grínaði sig að
fyrsta sætinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STUÐPÍUR
Arnhildur og Júlía.
ÞRJÁR Í KASTI
Ólöf, Helga og
Maren í góðu
glensi.