Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 128
NÆRMYND
Karólína
Jóhannsdóttir
sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna
2015 fyrir hönd Menntaskólans í Reykjavík.
Hún flutti lagið Go Slow með hljómsveit-
inni Haim. Karólína er tvítug og hefur aldrei
lært söng en hún hefur þó alltaf haft gaman
af því að syngja. Þetta var í tuttugasta og
fimmta skiptið sem söngkeppnin er haldin
og hefur fjöldi tónlistarmanna stigið sín
fyrstu skref þar. Því verður forvitnilegt að
fylgjast með Karólínu í framtíðinni.
Karólína er yndislega mikil
tilfinningavera og kemur
til dyranna nákvæmlega
eins og hún er klædd. Hún
er fremur lítil morgun-
manneskja og ég á stund-
um erfitt með að koma
henni á fætur. Hún er al-
gjör femínisti og antisportisti og það sem
hún hefur áhuga á gerir hún vel. Karólína
er mikill grínisti og þykir óhemju vænt um
fjölskyldu sína og tileinkar hún Arnaldi litla
bróður sínum lögin sín. Ég veit að yfirvöldin
í MR hafa stundum þurft að reyta hár sitt
yfir henni en henni tekst þó alltaf að bræða
okkur öll.
Auður Smith, móðir.
Helsti eiginleiki Karó er
hvað hún er rosalega
fyndin og frumleg í gríni.
Oft segir hún eitthvað
sem enginn annar myndi
segja og væri eflaust
ekkert fyndið ef einhver
annar myndi segja þetta
en þegar hún gerir það verður það hrein-
lega frábært. Hún er alltaf að syngja ný lög
og með nýjar hugmyndir, enda er hún alveg
ótrúlega hugmyndarík. Sumar hugmyndirnar
eru fremur klikkaðar og hún lætur kannski
ekki allar verða að veruleika en það er alltaf
eitthvað nýtt í gangi hjá henni.
Oddur Atlason, vinur.
Karólína er fyndnasta
manneskja sem ég þekki
og hún hreinlega reytir af
sér brandara. Hún er frá-
bær fyrirmynd enda ótrú-
lega flott og sterk stelpa.
Ég á í raun ekki til nóg af
góðum orðum til að lýsa
henni. Við kynntumst fyrir hálfgerða tilviljun
á Twitter og höfum verið nánast óaðskiljan-
legar síðan. Hún er töffari af guðs náð og
tók til dæmis mikið þátt í Free the Nipple
og rokkaði það eins og allt. Hún er sönn vin-
kona og stendur alltaf með vinum sínum
og er ótrúlega góð við litla bróður sinn, sem
hún elskar meira en allt.
Hanna María Geirdal, vinkona.
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
ELDBORG Í HÖRPU 16. JÚNÍ KL. 23:00
MIÐASALA Á MIÐI.IS
AUKATÓNLEIKAR