Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 22

Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 22
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Þegar breski rithöfundurinn Matt Haig tilkynnti aðdáendum sínum á samfélagsmiðlinum Twitter um hvað næsta bók hans fjallaði átti hann ekki von á að verða krossfestur. Matt hugðist beina sjónum að hætt- unum sem steðja að karlmönnum vegna hugmynda sam- félagsins um karlmennsku. Böðlar hans kenndu sig flestir við femínisma. „Þetta er eins og ef hvít manneskja skrifaði bók um hvað það er erfitt að vera hvítur,“ fullyrti einn. Matt sagðist sjálfur vera femínisti. „Ég er ekki að afneita kúgun kvenna, ég er að reyna að berjast gegn henni með því að kalla eftir sveigjanlegri túlkun á karlmennskuhug- takinu.“ En gagnrýnendur hans létu ekki segjast. „Femín- ismi var ekki fundinn upp til að hjálpa karlmönnum.“ Af forréttindum Í síðustu viku skrifaði ungur maður, Atli Jasonarson, pistil sem birtist á visir.is um þrautir þess að vera karlmaður. Atli sagði karlmenn vissulega búa við forréttindi. Ekki væru öll forréttindi karlmanna hins vegar jafneftirsóknarverð: 1) Karlmenn eru fjórum sinnum líklegri en konur til að svipta sig lífi. 2) Karlmenn eru fórnarlömb í 73% morðmála á Íslandi. 3) Tvisvar sinnum líklegra er að karlmaður látist í umferðarslysi hér á landi en kona. 4) Yfirgnæfandi meiri líkur eru á að karlmaður látist af völdum efnafíknar en kona. 5) Karlmenn eru 96% fanga í íslenskum fangelsum. 6) 62% háskólanema á Íslandi eru konur. 7) Af þeim grunnskólanemum sem taldir eru slakir í lestri eru 70% drengir. Tímamót á vinnumarkaði Árið 2015 áttu sér stað tímamót á breskum vinnumarkaði. Í fyrsta sinn fór fjöldi karlmanna sem vinna í hlutastarfi yfir milljón. Breytingarnar stafa ekki af efnahagslegum ástæðum á borð við skert atvinnuframboð. Og ekki er um að ræða láglaunastörf sem gjarnan hafa verið unnin í hlutastarfi. Um er að ræða val karlmannanna sjálfra af öllum stigum samfélagsins. Thiago de Moraes er listrænn stjórnandi hjá aug- lýsingastofu í Bretlandi. Hann mætir á skrifstofuna þrjá daga í viku en eyðir hinum tveimur með börnum sínum tveimur. „Ég elska að sækja son minn í skólann og segja: Hei, klukkan er hálf fjögur og það er sól, skellum okkur í almenningsgarðinn.“ Fórnarlömb staðalhugmynda Ekki eru öll „forréttindi“ karla álitleg eins og samantekt Atla Jasonarsonar ber með sér. Kannski má segja að karlar hafi, rétt eins og konur, verið fórnarlömb staðal- hugmynda samfélagsins. Harðjaxla-ímyndin hefur til að mynda verið mörgum karlmanninum fjötur um fót. „Mótið sem karlmenn eiga að passa í er lítið. Þeir eiga að hafa áhuga á fótbolta, ofbeldisfullum tölvuleikjum og halda kjafti um tilfinningar sínar. Þeir eiga að stríða hver öðrum, horfa á stríðsmyndir og hlutgera konur,“ sagði Matt Haig á Twitter. „Ég er þeirrar skoðunar að bæði konur og karlar myndu græða á víðtækari hugmyndum um karlmennskuna.“ Síðasti spölur kvennabaráttunnar virðist ætla að ganga hægt. Enn er til dæmis launamunur kynjanna vandamál. Getur verið að leiðin að jafnrétti felist í að ráðast gegn staðalhugmyndum um karla en ekki aðeins um konur? Þangað til nýlega hefur karlmaður ekki þótt merki- legur pappír á vinnumarkaði nema hann væri hlekkj- aður við vinnustað sinn bróðurpart vikunnar og heilsaði fjölskyldu sinni eins og óvæntur gestur um helgar. Í Bret- landi er það að breytast. Í stað þeirrar hefðbundnu hug- myndar að konan sé heima með börnin og karlinn úti að vinna sést það nú í auknum mæli að foreldrar skipta með sér ábyrgðinni heima við og vinna bæði úti í hluta- starfi. Karlar fá að njóta fjölskyldulífs og konur komast út á vinnumarkaðinn: Þetta er „win win“ staða. Viðurkenning á áþján karla er ekki afneitun á alda- langri kúgun kvenna. Það er ekkert því til fyrirstöðu að við tökum saman höndum og fetum saman veginn að betra samfélagi. Jafnrétti fyrir alla, konur og karla. Þjáningar karlmannsins Þegar fjallað er um Ríkisútvarpið mætti stundum ætla að einungis væru tveir kostir í stöðunni – óbreytt Ríkisútvarp eða ekkert Ríkisútvarp. Þetta er dæmi um hvernig umræðan þróast þegar hún litast um of af áróðri. Ísland er ekki eina landið í heiminum þar sem deilt er um starfsemi ríkisfjölmiðla í breyttu umhverfi eins og mætti ætla af málflutningi áköfustu fylgismanna Ríkisútvarpsins. Enginn friður ríkir um svokallaða almannafjölmiðla í nálægum löndum. Sjálft flaggskip almannaútvarps, BBC í Bretlandi, þarf að bregðast við breyttum tímum og herða sultarólina. BBC hefur verið gert að ráðast í gífurlegan sparnað. Fyrstu skrefin hafa verið stigin nú þegar. Framboð á íþróttaefni verður skorið niður svo um munar. Þar er byrjað vegna þess að einkastöðvar sinna íþróttum betur en ríkismiðillinn, að dómi fólksins í landinu samkvæmt könnunum. Enda hafa margar einka- stöðvar sérhæft sig í íþróttaviðburðum. Fram kom í Markaði Fréttablaðsins nýlega að BBC hefur nú þegar gefið eftir réttinn að opna breska meistaramótinu í golfi. Kappaksturskeppnir munu hljóta sömu örlög, enda vandséð af hverju ríkið á að sjá fólki fyrir slíkri afþreyingu frekar en einhverri annarri. Þegar rekstrartölur BBC eru skoðaðar fær kenningin um tregðu ríkisfyrirtækja til hagræðingar byr undir báða vængi. Þar er kostnaður vegna markaðsstarfs – vegna svokallaðra fjölmiðlafulltrúa og almannatengla – margfaldur á við sambærileg útgjöld einkastöðv- anna. Einnig er launakostnaður miklu hærri. Munur- inn fer vaxandi þrátt fyrir að harðnað hafi á dalnum. BBC þarf því að berjast við ýmis innanhússmein eins og önnur fyrirtæki. Þó að á það sé bent dettur fáum í hug að í því felist einhver sérstök óvild í garð almanna- útvarps. Sama á við um Ríkisútvarpið hér á landi. Þó að rómuðustu dagskrárliðir BBC afli því virðingar er vert að hafa í huga að fyrir hvern náttúru- lífsþátt Sir Davids Attenborough er fjöldi útsendinga frá hæfileikakeppnum og spjallþáttum. Erfitt er að réttlæta ríkisstuðning við slíkt. Undanfarna daga hefur Fréttablaðið birt fjölda aðsendra greina frá fólki sem telur að Ríkisútvarpinu vegið. Sumar eru málefnalegar en aðrar ekki, eins og gengur. Álíka greinar hafa birst í öðrum fjölmiðlum þannig að engum dylst að á ferðinni er skipulögð áróðursherferð í miðjum fjárlagaslag. Og við sem störfum á einkareknu miðlunum þurfum endalaust að sitja undir meinfýsnum árásum um óvönduð vinnu- brögð. Þeir svokölluðu stuðningsmenn, sem lengst ganga, gera Ríkisútvarpinu engan greiða. Flestir Íslendingar telja að við þurfum á Ríkisút- varpi að halda. Auðvelt er að færa rök fyrir því. Þar er byggt á dýrmætum hefðum, sem æskilegt er að viðhalda. Hins vegar á almannafjölmiðill að sníða sér stakk eftir vexti og sinna því vel sem réttlætir niður- greiðslu með skattfé. Hann á ekki að standa í sam- keppni við einkamiðla um afþreyingarefni og ekki stunda auglýsingasölu. Allt eða ekkert? Álíka greinar hafa birst í öðrum fjölmiðlum þannig að engum dylst að á ferðinni er skipulögð áróðursher- ferð í miðjum fjárlagaslag. Mögnuð bók, ótrúleg lesning - The Times bokafelagid.is MÖGNUÐ SAGA 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.