Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 66

Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 66
FÓLK| HELGIN Frábært verð Heyrnartólin kosta 8.990 krónur. AUGLÝSING: TOUCH KYNNIR Blúndukökur eru smákökur sem margir gera fyrir jólin og eflaust enn fleiri sem kannast við að hafa gætt sér á þeim í jólaboðum æskunnar. Þær er frekar einfalt að gera og þær bragðast vel. Í þessari uppskrift er eitt leynihrá- efni sem gerir smákökurnar enn betri en það eru pekanhnetur. Það er ekki seinna vænna að baka nokkrar smákökur fyrir jólin og eru þessar tilvaldar að prófa. 1 bolli pekanhnetur 2 tsk. ósaltað smjör 1 bolli ljós púðursykur 1 stórt egg 1 tsk. vanilludropar 1/4 bolli hveiti 1/2 tsk. lyftiduft 1 klípa salt Bráðið súkkulaði Hitið ofninn í 180°C. Fínsaxið pekanhneturnar í matvinnslu- vél. Hrærið smjör og púður- sykur í hrærivél á lágum hraða þar til það er orðið létt og ljóst. Hrærið eggjum og vanilludrop- um saman við. Bætið við hveiti, lyftidufti og salti, blandið vel. Bætið pekanhnetunum við. Setjið deigið á bökunar- pappír á ofnplötu, passlegt er að kúffylla teskeið. Hafið gott bil á milli kakanna. Bakið í sex mínútur. Takið kökurnar úr ofninum og látið þær kólna. Sprautið bráðnu súkkulaðinu yfir kökurnar og látið standa þar til súkkulaðið hef- ur storknað. ÖÐRUVÍSI BLÚNDUKÖKUR Þeir sem ætla að baka smákökur fyrir jólin gætu gert það um helgina. Það er ráð að prófa þessar blúndukökur, þær eru afar ljúffengar. „Ég hef verið að vinna að því að þróa s jónvörp síðastl iðin þrjú ár. Í tengslum við það hef ég ferðast til Kína og fyrir ári fékk ég þá hug- mynd að bæta heyrnartólum við. Ég heimsótti verksmiðju í Kína og keypti þar heyrnartól sem ég hef verið að þróa og breyta síðan. Út- koman er að mínu mati og annarra sem hafa prófað framúrskarandi. Hljómurinn er frábær og bassinn geggjaður og alveg á pari við sam- bærileg heyrnartól,“ segir Garðar Garðarsson. Hann mun selja heyrnatólin í Firð- inum í Hafnarfirði fram að jólum, á 8.900 krónur. „Verðið á sambæri- legum heyrnartólum er hins vegar í kringum 20 til 30 þúsund,“ segir Garðar sem hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að lækka raftækjaverð á Íslandi. „Jóhannes í Bónus lækkaði matarverðið og ég ætla mér að lækka raftækjaverðið og stefni að því að opna verslun í Firði í vor.“ Garðar er enn að þróa sjónvörpin en vonast til að þau komist á mark- að einhvern tíma á nýju ári. „Í dag er staðan þannig að fólk getur flogið til Danmerkur, keypt sér sjónvarp og komið með það heim en samt verið að borga minna en það myndi greiða fyrir sjónvarp út úr búð hér heima. Þessu vil ég breyta. Ég vil að fólk geti keypt gott sjónvarp á viðráðan- legu verði og jafnvel nokkur heyrnar- tól með,“ segir hann glaður í bragði. Touch-heyrnartólin eru þráð- laus og hægt að tengja við símann, iPadinn, sjónvarp og önnur Blue- tooth-tæki, en Bluetooth-inn er sér- pantaður frá Bretlandi og hefur að sögn Garðars reynst mjög vel. Batteríið endist í tíu tíma en auk þess má stinga heyrnar tólunum í sam- band. „Með einu klikki er svo hægt að svara með þeim í símann,“ útskýr- ir Garðar. Hann segir heyrnartólin tilvalin jafnt heima fyrir, á ferðinni og í ræktinni og hafa þeir sem hafa prófað lýst yfir mikilli ánægju með þau. „Nú er komin tölu- verð reynsla á heyrnartólin og er hún mjög góð. Ég er að vonum ánægð- ur með það enda markmið mitt að vera með góðar vörur á verði sem allir geta verið ánægðir með.“ JÓLAGJÖFIN Í ÁR TOUCH KYNNIR Touch heita þráðlaus heyrnartól sem komu á markað fyrir skemmstu, en fyrsta sending seldist upp á nokkrum dögum. Frumkvöðullinn Garðar Garðarsson byrjaði að þróa þau fyrir ári og standa þau að hans sögn jafnfætis öðr- um sambærilegum heyrnartólum að gæðum. Verðið er þó langtum betra en þekkst hefur. Þau verða til sölu í Firðinum í Hafnarfirði fram að jólum. Garðar Garðarsson Tónlistarkonan Mr. Silla vakti mikla athygli á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem haldin var í Reykjavík í síðasta mánuði. Nýjasta plata hennar, og um leið fyrsta sólóplatan, kom út í októ- ber og hefur fengið góðar við- tökur innanlands og erlendis. Mr. Silla, sem heitir réttu nafni Sigurlaug Gísladóttir, er eng- inn nýgræðingur í tónlist. Hún hefur undanfarin tíu ár komið fram undir merkjum Mr. Silla & Mongoose og rokkbandsins Mr. Silla auk þess að vera með- limur í múm um sjö ára skeið. Einnig hefur hún spilað með og sungið inn á plötur listamanna á borð við Snorra Helgason, Mice Parade, Low Roar og Teit Magnússon. Á síðasta ári varð stefnubreyt- ing í tónlistarsköpun hennar þeg- ar hún setti rokkið til hliðar og fór að semja elektróníska tónlist. Afraksturinn má heyra á nýju plötunni sem sat m.a. í efsta sæti Tónlistans vikuna sem Airwaves hátíðin fór fram. Stefnubreytingin var þó ekki meðvituð ákvörðun að hennar sögn. „Við höfðum verið að leika okkur vinirnir með nokkur lög sem við höfðum samið í rokk- hljómsveitinni Mr. Silla. Þegar ég ákvað að einbeita mér að því að semja ný lög ein míns liðs þá einhvern veginn urðu synthar og sömpl ósjálfrátt fyrir valinu. Voru svona innan handar og hentuðu vel þeim hljóðheimi sem mig langaði að skoða mig um í.“ EINN AF HÁPUNKTUNUM Nýja platan var tekin upp að mestu í Reykjavík og London með aðstoð upptökustjórans Mike Lindsay. „Vinnan var frábrugðin fyrri verk- um að því leyti að við reyndum að vera eins trú upprunalegum grunn- um og demóum og við gátum. Við bættum við elementum og lékum okkur með strúktúr frekar en að skipta öllu út og taka upp upp á nýtt. Það var á vissan hátt mjög frelsandi og gaman.“ Það var ekki bara nýja platan sem gekk vel í kringum Airwaves tónlistarhátíðina. Erlendir blaða- menn voru einnig mjög hrifnir af tónleikum hennar og valdi t.d. bandaríska tímaritið Rolling Stone hana eitt af bestu atriðum hátíðar- innar. „Við spiluðum í Gamla bíói sem er yndislegur salur til að spila í. Á síðustu Airwaves hátíð spil- uðum við í Silfurbergi sirka korteri eftir að ég kom frá upptökunum í London. Þannig að ári síðar erum við komin með „live“ settið meira í blóðið.“ BLÓÐUG SLAGSMÁL Næstu vikur og mánuðir verða annasamir hjá Sigurlaugu. Þann 6. janúar verða haldnir útgáfu- tónleikar í Hörpu sem eru hluti af Blikktrommuseríunni. „Þar munum við spila plötuna í heild sinni og jafnvel bæta við nokkrum lögum. Í framhaldinu förum við á flakk um Evrópu til að kynna plötuna. Við erum líka að vinna að myndbandi við lag númer tvö af plötunni. Þóra Hilmarsdóttir gerði myndbandið við Breathe en þar erum við Saga Garðarsdóttir í blóðugum slags- málum, gaman að því. En mynd- band númer tvö verður unnið af myndlistarkonunni Rakel Jónsdótt- ur við lagið Down the hill.“ Sigurlaug og eiginmaður henn- ar, Tyler Ludwick, giftu sig í sumar og halda fyrstu jólin saman hér á landi í ár. „Hann hefur spilað með mér á tónleikum undanfarið og við höldum áfram þann 20. des- ember þegar við höldum sunnu- dagsjólatónleika með Snorra Helgasyni á Lofti hosteli. Annars er bara notalegt að vera heima hjá mömmu og pabba að jólastússast. Það verður gaman fyrir Tyler að upplifa sín fyrstu íslensku jól. Við verðum að öllum líkindum rétt hjá Skálholti hjá bróður mömmu minnar með fjölskyldunni hans líka. Það hefur verið hefðin hjá okkur síðan ég man eftir mér að halda jólin með þeim og ég hlakka mikið til.” MJÖG FRELSANDI SKÖPUN LJÚFIR TÓNAR  Mr. Silla vakti mikla athygli á Airwaves tónlistarhátíðinni í nóvember. Nýja platan hefur fengið góðar viðtökur. NÝ STEFNA „Þegar ég ákvað að einbeita mér að því að semja ný lög ein míns liðs þá einhvern vegin urðu synthar og sömpl ósjálf- rátt fyrir valinu,“ segir Mr. Silla en ný plata hennar kom út í október. MYND/VILHELM ÆTLAR AÐ LÆKKA RAF- TÆKJAVERÐIÐ!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.