Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 102
R eynslan af Sogni hefur verið mjög góð,“ segir Margrét Frímanns-dóttir, forstöðukona á Sogni og Litla-Hrauni. Fangelsið að Sogni
hefur verið starfandi í þrjú ár eða frá
því að Réttargeðdeild var flutt þaðan
og í bæinn. Pláss er fyrir 22-23 fanga
þar en áður var rekið opið fangelsi að
Bitru í eitt ár en starfsemin svo færð á
Sogn. Um svokallað opið fangelsi er að
ræða en það felur í sér að engar girð-
ingar eða múrar afmarka fangelsið. Þar
hefur hver fangi sitt herbergi og heim-
ilislegt um að litast.
Fangar þurfa að fylgja þeim reglum
sem settar eru í fangelsinu en brjóti
þeir þær þá eru þeir sendir í öryggis-
fangelsi. Flestir sem afplána á Sogni eru
karlmenn en nú eru þar tvær konur og
ein kona afplánaði þar nokkra mánuði.
„Þeir sem fara í opið úrræði eru þeir
sem geta átt eftir sirka tvö ár af afplán-
un eða þangað til þeir fara á Vernd eða
í rafrænt eftirlit.“
Fangar taka virkan þátt í heimilis-
haldinu, sumir vinna við eldamennsku,
þrif, þvotta og annað sem viðkemur
húshaldi og viðhaldsstörfum meðal
annars. Á staðnum er að finna gróður-
hús. „Menn geta fengið heimild til þess
að vinna á næstu bæjum og við erum
líka í samstarfi við mjög gott fyrirtæki í
Hveragerði sem heitir Fengur. Nokkrir
hafa fengið að spreyta sig þar í vinnu.
Þetta er auðvitað ómetanlegt í endur-
Frjálsari reglur í opnum fangelsum
Að Sogni í Ölfusi hefur verið rekið opið fangelsi í þrjú ár. Áður var þar réttargeðdeild. Alla jafna komast fangar inn í
opin úrræði þegar þeir eiga um tvö ár eftir af afplánun sinni, eða þangað til þeir fara á Vernd eða í rafrænt eftirlit.
hæfingu og að búa menn undir að
takast á við lífið eftir afplánun.“
Reglur um heimsóknir eru ekki eins
strangar í opnum fangelsum eins og
lokuðum. Á Sogni geta fangar fengið
heimsókn föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Börn þeirra geta dvalið
hjá þeim frá klukkan 10-17.
Jólin eru haldin hátíðleg á Sogni og í
síðustu viku voru fangar með jólahlað-
borð sem þeir stóðu að sjálfir. „Þetta er
dálítið eins og stór fjölskylda bara á jól-
unum,“ segir Margrét um jólin á Sogni.
Á dögunum var haldið sérstakt jólahlaðborð á Sogni. Fangar sjá sjálfir um elda-
mennsku og önnur heimilisstörf.
Á Sogni er öllu heimilislegra á að líta en í öryggisfangelsinu sem er Litla-Hraun. Hver og einn fangi er með sitt herbergi og engar girðingar eða múrar afmarka fangelsið.
Hér má sjá herbergi eins fangans. Þeir sjá sjálfir um það sem viðkemur almennu húshaldi og er markmiðið meðal annars að
þjálfa þá í lífsleikni. Þannig er lagður grunnur að því að búa fanga undir að koma út í samfélagið að nýju.
Á Sogni eru gróðurhús og hænsn í kofa, en fangar sjá um umhirðu og ræktun. Fangar sem vistast á Sogni þurfa að hegða sér á ábyrgan hátt og virða þær reglur sem þar gilda, annars eru þeir sendir í öryggis-
fangelsi á nýjan leik. FrettabLaðið/anton brink
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Fangelsismál
Refsing eða betrun?
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r66 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð