Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 104
Það allra versta á árinu:
Fantastic Four
Þegar sjálfur leikstjórinn afneitar
myndinni sinni á opinberum vett
vangi er hægt að reiða sig á að þar
sé ósvikinn klepri á ferð. Og
þessi mynd stendur
undir vonbrigðum með
glæsibrag.
Mortdecai
Johnny Depp leikur
enn einn furðufugl
inn í ævintýralega
gleymanlegri mynd
sem nær einhvern
veginn bæði að móðga og
svæfa áhorfendur með þvælulegu
plotti og óspennandi og fíflalegri
persónusköpun.
Fifty Shades
of Grey
Illa skrifað húsmæðra
klám E.L. James var
loksins myndgert í þessari
klunnalegu og
ósexí mynd um
ósannfærandi
milljóna
mæring sem
eltihrellir
persónu
leikalausa
stúlku og
aulahrellir
áhorfendur. Þeim
sem hrífast af þeim
ranghugmyndum sem þarna
eru bornar á borð um samskipti
kynjanna viljum við benda á að
þetta er bara bíómynd … mjög
mjög léleg bíómynd.
Ridiculous Six
Rasísk, heimskuleg og slæm
mynd með Adam Sandler.
Með öðrum orðum enn
ein Adam Sandler myndin.
Ákveðið blað þó brotið þar
sem þetta er fyrsta Netflix
myndin sem fyrirtækið reynir
vísvitandi að fela fyrir notend
um sínum. Stærsta spurningin
er hvað hann Sandler hefur á
Steve Buscemi sem veldur því
að hann mætir aftur og aftur til
að láta niðurlægja sig.
The Cobbler
Önnur rasísk, heimskuleg og slæm
mynd með Adam Sandler. Ertu til
í að hætta þessu Adam Sandler? Í
alvörunni! Já, og láttu Steve Buscemi
í friði.
Ex Machina
Óaðfinnanlega smíðuð saga um
mörkin milli mennsku og gervi
greindar sem kemur stöðugt á
óvart. Höfundurinn Alex Garland
sest hér í fyrsta skiptið í leikstjóra
stólinn og býr til þetta líka meist
araverk.
Star Wars
The Force Awakens
JJ Abrams nær hér að fanga aftur þá
töfra sem gerðu Star Wars bálkinn
að einum mikilvægasta menningar
stólpa síðustu kynslóða. Gömul
andlit og ný halda uppi frábærri
atburðarás í vetrarbraut langt langt
í burtu. Einn afar jákvæður spoiler;
það er enginn Jar Jar.
Sicario
Stríði Bandaríkjamanna gegn fíkni
efnum gerð átakanleg skil í þessari
kröftugu ádeilu þar sem skilin
milli góðs og ills eru ekki til staðar.
Vekur áleitnar spurningar um hina
vonlausu baráttu Vesturlanda gegn
fíkniefnavandanum.
Steve Jobs
Algjör andstaða við Ashton Kutch
er lestarslysið í kvikmyndinni Jobs
frá 2013. Frábær mynd og höfund
urinn Aaron Sorkin líklega með sín
bestu skrif frá fyrstu þáttaröðinni af
West Wing.
Straight out of
Compton
Ótrúlega skemmtileg mynd um
hina mögnuðu hljómsveit NWA og
sögu rapparans Eazy E. Skemmtileg
sýn á þetta tímabil í tónlistarsög
unni sem er gerð af virðingu fyrir
bæði hljómsveit og aðdáendum. Og
með óaðfinnanlegu tónlistarvali.
Inside Out
Pixar tekst að skapa eina hjart
næmustu og tilfinningaríkustu
mynd ársins með því að gægjast
bak við luktar dyr sálarlífs korn
ungrar stelpu sem flytur í nýja borg.
Mynd sem tosar mjög viljandi í alla
hjartans strengi og nær að mynd
gera þá djúpstæðu veröld sem býr
í hugum okkar allra.
Beasts of No Nation
Ísköldum raunveruleika barna
hermanna í Afríku gerð virkilega
góð skil í þessari stórbrotnu mynd.
Hún fer með mann í hrikalegt
ferðalag sem er erfitt að skilja eða
vilja trúa að sé raunveruleikinn.
Átakanleg mynd sem vekur bæði
reiði og sorg.
The Martian
Matt Damon er farinn að gera það
að vana sínum að gleymast úti í
geimi en hér er þó á ferðinni ein
vandaðasta vísindaskáldsagna
kvikmynd síðari ára þar sem hug
vit og vísindi bjarga deginum.
Leikstjórinn Ridley Scott bætir hér
ríflega fyrir viðbjóðinn í Exodus:
Gods and Kings.
Mad Max – Fury Road
George Miller, leikstjóri fyrri
myndanna um Óða Max, snýr hér
aftur með glæsilega endurfæðingu
sagnabálksins sem keyrir á áhorf
endur með sturluðu sjónarspili,
femínískum undirtónum og einni
svölustu kvenhetju síðari ára. Já,
og töffaraömmum á mótorhjólum.
It Follows
Snjöll og fáguð hryllingsmynd þar
sem óhugnanlegt skrímsli smitast
milli fólks eins og kynsjúkdómur.
Heldur manni á ystu nöf fram á
síðustu mínútu og óttinn og par
anojan hrella áhorfendur löngu
eftir að ljósin eru kveikt í salnum.
10bestu erlendu bíómyndirnar
Baldvin Z, Jóhann Ævar og Andri Óttarsson bíóspekúlantar dæma
um það besta og versta í erlendum kvikmyndum árið 2015.
Jóhann Ævar Grímsson, Baldvin Z og Andri Óttarsson skipuðu dómnefnd.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Dómnefndin
Desembermyndir sem við
hlökkum til að sjá:
l The Reverant
l Hateful 8
l The Big Short
l Creed
l Anomalisa
l Macbeth
1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R68 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð