Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2015, Qupperneq 114

Fréttablaðið - 19.12.2015, Qupperneq 114
Á liðnum vikum hafa fjár­mál Ríkisútvarpsins verið í umræðunni í tengslum við fjárlög. Sumir stuðn­ingsmenn RÚV telja, með réttu eða röngu, að öfl innan ríkisstjórnarinnar vilji skera almanna­ útvarpið við trog, væntanlega til að ýta undir einkarekna fjölmiðla. Þegar einkarekið íslenskt útvarp berst í tal, hugsa líklega flestir um Bylgjuna sem hóf göngu sína árið 1986. Stöku stjórnmálanirðir kynnu þó að rifja upp skammlífu og ólöglegu sjóræningjastöðina sem nokkrir frjáls­ hyggjumenn úr Sjálfstæðisflokknum starfræktu í miðju BSRB­verkfalli árið 1984. En upphafið var þó mörgum ára­ tugum fyrr. Einkarekið útvarp á sér nefnilega lengri sögu á Íslandi en sjálft Ríkisútvarpið. Útvarpið er mögulega sú uppfinn­ ing frá fyrri helmingi tuttugustu aldar sem haft hefur mest samfélagsleg áhrif. Flókið er að rekja upphafssögu útvarpsins, enda koma þá upp ýmis skilgreiningavandamál. Mörkin milli útvarps, loftskeyta og jafnvel talsímatækni voru óljós. Þannig má finna dæmi í sögunni, svo sem á Ítalíu, um nokkurs konar „útvarpsstöðvar“ sem reknar voru í gegnum almenna símkerfið, þar sem símnotendur hringdu inn og gátu hlustað á tónlist, fyrirlestra, fréttir og leikrit í gegnum símtólið. Raunar voru fyrstu útvarpstækin keimlík þessu, því það var ekki fyrr en árið 1924 að útvarpshátalarinn kom til sögunnar. Áður þurftu hlustendur að vera með heyrnartól og aðeins einn gat notið útsendingarinnar í einu. Æsileg kosninganótt Ýmsir hafa verið nefndir til sögunnar sem upphafsmenn útvarpsins, en flest­ ir munu þó sammála um að Banda­ ríkjamanninum Lee de Forest beri sá heiður. Hann kom að mörgum mikils­ verðum tilraunum á þessu sviði, bæði vestan hafs og austan. Þannig varpaði hann tónlist úr Eiffel­turninum sem heyrðist í viðtækjum víða um Frakk­ land þegar árið 1908 og árið eftir lét hann tengdamóður sína flytja erindi um kosningarétt kvenna, sem telja má fyrsta ræðuflutning í útvarpi. Lee de Forest var einnig að baki þess sem kalla má fyrstu eiginlegu útvarps­ dagskrána, í nóvember 1916, þegar þúsundir manna fylgdust með margra klukkutíma útsendingu á kosninga­ nótt í forsetakjörinu, þar sem demó­ kratinn Woodrow Wilson vann naum­ an sigur á repúblikananum Charles Hughes. Bandarískar for­ setakosningar hafa raunar reynst örlaga­ ríkar í útvarpssögunni, því fjórum árum síðar – árið 1920 – hóf fyrsta eiginlega útvarpsstöðin sem rekin var í atvinnu­ skyni starfsemi sína í Pitts­ burg. Sú stöð byrjaði ein­ mitt útsendingar á kjördag. Árið 1920 komu einnig fram ýmsar tækninýjungar sem auðvelduðu notkun útvarps­ tækninnar til mikilla muna og er því stundum talað um það sem fæðingarár útvarpsins. Sumir telja að einvígið milli Wil­ sons og Hughes hafi reynst afdrifaríkt í mannkynssögunni. Þannig hafi sigur Wilsons verið forsendan fyrir þátttöku Bandaríkjanna í fyrri heimsstyrjöld­ inni og þannig ráðið úrslitum hennar. Unglingaskólunum útrýmt Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um hina skringilegu upphafssögu útvarpsins á Íslandi. …KIRKJUR LANDSINS YRÐU RIFNAR EN Í STAÐ- INN RÁÐINN EINN ÚT- VARPSKLERKUR SEM GÆTI MESSAÐ FRÁ KOL- VIÐARHÓLI. En fyrir Íslendinga hafði kosninga­ nóttin einnig aðrar afleiðingar í för með sér. Veturinn 1916 var nefnilega Íslendingur við störf á rannsóknar­ stofu Lee de Forest. Íslenska tækjadellan Ottó B. Arnar var aðeins 22 ára þegar hann hélt vestur um haf til að nema útvarps­ og loftskeyta­ fræði við fótskör meistar­ ans. Hann var þó enginn nýgræðingur í faginu – hóf störf hjá Landssíma­ num fjórtán ára gamall og hafði árið 1915 staðið fyrir stofnun Félags símamanna og fagtímaritsins Elek­ tron, sem var helsta tímarit landsins, ekki aðeins á sviði símamála heldur um tækni almennt. Eftir Bandaríkjadvölina sneri Ottó aftur til Íslands, sannfærður um að framtíðin fælist í útvarpi. Sú framtíð virtist sífellt nálægari í byrjun þriðja áratugarins. Viðtæki urðu sterkbyggð­ ari, ódýrari og einfaldari í meðförum. Útvarpsstöðvum fjölgaði og árið 1922 var BBC stofnað í Bretlandi. Var það í fyrstu í eigu nokkurra fyrirtækja sem framleiddu útvarpsbúnað. Það var ekki tekjuvon af útvarpsrekstrinum sjálfum sem þar réð för. Helsta tekjuvonin af útvarpi fólst í að selja eða leigja út við­ tækin sjálf, en til að einhver vildi kaupa útvarpstæki varð auðvitað að vera dag­ skrá í boði. Strax veturinn 1922­23 fóru tækja­ óðir Íslendingar að verða sér úti um útvörp til að ná sendingum frá Evrópu, einkum BBC. Hlustunarskilyrðin voru þó bágborin, nema einna helst á kvöld­ in og næturnar. Þessi fyrstu íslensku útvarpstæki voru fyrst og fremst dýr leikföng, en opnuðu þó augu margra fyrir möguleikum tækninnar. Þegar á árinu 1924 sóttist Ottó B. Arnar eftir einkaleyfi frá Alþingi til að reka útvarpsstöð. Leyfið skyldi vera til nokkurra ára og hefði ríkið rétt á að kaupa stöðina við lok tímans. Allir skráðir útvarpseigendur skyldu greiða stöðinni árlegt afnotagjald, en jafn­ framt vildu aðstandendur útvarps­ félagsins fá einkarétt á framleiðslu og sölu á viðtækjum. Skóli allrar þjóðarinnar Það var engin tilviljun að í stjórn útvarpsfélagsins sátu forystumenn Búnaðarfélagsins, Fiskifélagsins og veðurstofustjóri. Flestir sáu mögu­ leikann á flutningi veðurfrétta sem aðalkost hinnar nýju tækni, ekki hvað síst fyrir bændur og sjófarendur. Aðrir lögðu áherslu á menntunar­ hlutverkið. Þannig spáði Gísli J. Ólafs­ son landssímastjóri því í blaðagrein árið 1925 að „víðvarpið“ myndi útrýma öllum unglingaskólum. Nóg væri að safna bestu kennurum landsins fyrir framan hljóðnemann á degi hverjum. Halldór Laxness tók í sama streng, reyndar í glensi, þar sem hann stakk upp á að kirkjur landsins yrðu rifnar en í staðinn ráðinn einn útvarpsklerk­ ur sem gæti messað frá Kolviðarhóli. Og raunar hófst rekstur fyrstu íslensku útvarpsstöðvarinnar á messu. Það var 31. janúar 1926, þar sem útvarpað var beint frá guðsþjónustu í Hafnarfirði. Um tilraunaútsendingu var að ræða, þar sem kannað var hvort nokkur skip á miðunum gætu nýtt sér tæknina. Þremur dögum síðar hófust svo reglubundnar sendingar. Útvarps­ öld var hafin á Íslandi. Sent var út tvisvar á dag. Fyrst í hálftíma á morgnana með veðurspá, upplýsingum um gengi gjaldmiðla og helstu fréttum sem lesnar voru upp úr Morgunblaðinu. Aðaldagskráin var hins vegar á kvöldin með fyrirlestrum, tónlistarflutningi, messum og fleiru. Stundum var tónlist leikin af hljóm­ plötum, en þó sjaldan enda hljómgæð­ in lítil. Tækin buðu ekki upp á annað en að stilla hljóðnemanum upp fyrir framan grammófóninn. Á sama hátt þurfti að hljóðrita alla tónleika með einungis einum hljóðnema. Það var þó ekki tækjabúnaðurinn sem varð þessari fyrstu útvarpsstöð að falli. Dauðadómurinn var í raun undir­ ritaður strax í upphafi þegar stjórnvöld höfnuðu beiðninni um einkaleyfi á sölu útvarpstækja. Rekstrar áætlanir reiknuðu með að viðtækjasalan yrði drjúg tekjulind og án hennar gengi dæmið ekki upp. Engu að síður ákváðu Ottó og félagar að láta slag standa. Þeim tókst að halda rekstrinum gang­ andi í rúmt eitt og hálft ár. Haustið 1927 var hætt að útvarpa eftir dag­ skrá og kveikt var á tækjabúnaðinum í síðasta sinn þá um jólin. Guðslömbin þagna Um það leyti sem fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi var að gefa upp öndina, var sú næsta í startholunum. Og það sem meira var – hún var í senn fyrsta trúarlega stöðin og fyrsta lands­ byggðarútvarpið. Arthur Charles Gook var enskur maður sem fékk ungur þá trúarlegu köllun að hann skyldi flytja til Íslands að breiða út orð Guðs. Ekki hafði himnafaðirinn þó uppfrætt hann betur um sálirnar sem honum var ætlað að fanga en svo að Gook taldi Íslendinga tala dönsku. Hann undirbjó því starf sitt með því að flytjast til Danmerkur að læra hana. Tungumálamisskilningurinn leið­ réttist um leið og Gook kom til Akur­ eyrar árið 1905. Þar stofnaði hann Sjónarhæðarsöfnuðinn og boðaði jöfnum höndum kristindóm og smá­ skammtalækningar. Trúboðið gekk bærilega á Akureyri en hægar í sveit­ unum í kring, meðal annars vegna bágra samgangna. Þegar Gook frétti af útvarps­ tækninni taldi hann sig hafa fundið lausnina á vanda sínum. Með kröftugri útvarpsstöð á Akureyri mætti ná til drjúgs hluta landsmanna án mikillar fyrirhafnar. Fjármögnunin leystist á undursamlegan hátt þegar trúuð ekkja í Englandi fékk vitrun og ákvað að selja húsið sitt til að festa kaup á útsendingartækjum. Gook fékk leyfi yfirvalda til útvarps­ sendinga, en með hörðum skilyrðum þó. Ekki kom til álita að hann inn­ heimti afnotagjald og forstöðumað­ urinn varð að lofa því að standa fyrir fjölbreytilegri dagskrá annarri en á trúarlegu efni. Voru reyndar skiptar skoðanir um hvernig tókst að standa við það loforð. Afdrifaríkara reyndist að ráðamenn voru ekki tilbúnir að veita starfsleyfi nema til skamms tíma. Trúboðinn hjartahreini hafði litlar áhyggjur af þessu skilyrði, enda sannfærður um að allir myndu sjá hin samfélagsbætandi áhrif útvarps­ stöðvarinnar. Annað kom á daginn. Alþingi og ríkis stjórn höfðu komist að þeirri niðurstöðu að stofna bæri Ríkisútvarp. Lítill áhugi var á því að hin nýja stofn­ un þyrfti að standa í samkeppni, auk þess sem misgóð tæknileg rök voru færð fyrir því að rekstur Sjónarhæðar­ stöðvarinnar gæti truflað útsendingar RÚV. Í desember 1929 var stöðin því svipt starfsleyfi sínu. Árið eftir tók Ríkisútvarpið til starfa og undraskjótt gleymdu flestir öllu um þessa frum­ herja íslensks útvarpsrekstrar. 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R78 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.