Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 134

Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 134
Við Vildum fá hann til að koma fram sem einleikara og sVo leyfðum Við honum líka að ráða hVaða Verk yrðu Valin. „Okkur langaði að prófa að fara aftur í gömlu hlýlegu kirkjuna okkar, Áskirkju,“ segir Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari þegar hún er spurð út í jólatónleika Kammersveitar Reykja- víkur á morgun, 20. desember, klukkan 17. Hún segir dagskrána glæsilega í ár og nefnir þar sérstaklega Branden- borgarkonsert númer 5 eftir Bach. Efnisskráin markist af því að ákveð- ið hafi verið að bjóða Jeremy Joseph, sembal- og orgelleikara, hingað frá Vín. „Við vildum fá hann til að koma fram sem einleikara og svo leyfðum við honum líka að ráða hvaða verk yrðu valin,“ segir Rut og lýsir dag- skránni nánar. „Við spilum tvö verk eftir Bach þar sem semballinn er alveg í forgrunni, konsert fyrir fiðlu, flautu og sembal, þar sem semballinn er aðalhljóð- færið og svo Brandenborgarkons- ertinn númer fimm og þar er flott sembalsóló. Með þessu valdi Joseph verk eftir þrjú tónskáld sem bjuggu í Austurríki, kannski af því hann býr sjálfur í Vínarborg. Þau voru aðeins á undan Bach í tíma og hann ber höfuð og herðar yfir þau. En þetta er mjög skemmtilegt prógramm og hann er frábær, þessi ungi maður. Rut tekur fram að þær Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari séu einnig einleikarar á tónleikunum og láti ekki sitt eftir liggja. En hefur Jeremy Joseph komið áður hingað til lands? „Nei, þetta er í fyrsta skipti sem hann kemur. Hann var í námi í Lübeck í Þýskalandi á sama tíma og Hrafnkell Orri Egils- son, sellóleikari í kammersveitinni, og það er í gegnum Hrafnkel sem við fáum hann hingað. Það er mjög gaman.“ Kammersveitin var á æfingu fyrir stóru stundina á morgun en gaf sér tíma til að stilla sér upp í myndatöku. Fréttablaðið/Ernir Bækur ★★★★★ Gerill Snæbjörn ragnarsson Útgefandi: Sögur Fjöldi síðna: 277 kápuhönnun: Arnar Geir Ómarsson Ljósmynd: Mikael Karlbom Íslenskir rithöfundar eru margir hverjir fjölhamir í meira lagi. Ekki nóg með að flestir skrifi þeir bæði ljóð, leikrit, fullorðinsskáldsögur og barnabækur, öfugt við ýmsa starfsfélaga þeirra í útlöndum sem sérhæfa sig oftast í einni bókmenntagrein, heldur eru þeir gjarna myndlistarmenn, verk- fræðingar, kennarar eða lögfræðingar í fullu starfi meðfram skrifunum. Snæbjörn Ragnarsson er hér engin undantekning. Hann er starfandi aug- lýsingagerðarmaður og tónlistarferil hans með hljómsveitum eins og Ljótu hálfvitunum, Innvortis og Skálmöld þekkja flestir en hann á einnig langan og farsælan skrifferil að baki. Eftir hann liggja leikrit fyrir bæði börn og fullorðna, hnyttnir dægurlagatextar, beinskeyttir pistlar um þjóðfélags- mál sem hafa vakið mikla athygli og epískir kvæðabálkar sem hann tón- klæðir ásamt félögum sínum í þunga- rokkssveitinni Skálmöld á þann hátt að sér ekki fyrir endann á vinsældum sveitarinnar meðal stórs hluta þjóðar- innar. Snæbjörn hefur því reynt sig við mörg ólík textaform með góðum árangri og biðu margir fyrstu skáld- sögu hans með nokkurri óþreyju. Gerill segir af Arngrími Sævari sem dreymir um að verða rokkstjarna og er sannfærður um að draumar hans um frægð og frama muni rætast ef honum bara tekst að koma sér á framfæri. Hann stofnar með félögum sínum hljómsveitina Gerlar og við fylgjumst með henni gera allt í kringum sig súr- ara eins og gerlum er tamt. Getuleysi og sjálfsblekkingar eru aðalsmerki Sævars og það truflar hann ekkert sérstaklega þó hann hafi ekkert fram að færa þegar hann er loksins búinn að búa sér til tækifæri því það reddast alltaf – einhvern veginn. Gerill er langt frá því að vera geril- sneydd gelgjusaga og alls ekki bók sem ætti að halda að unglingsdrengj- um með rokkstjörnudrauma en sem karnivalísk galsasaga fyrir fullorðna á hún ágæta spretti. Ýmis- legt minnir á kvikmyndina This Is Spi- nal Tap, sem s e g i r s ö g u þungarokks- hljómveitar á t ó n l e i k a f e r ð um Bandaríkin, og það er ekki ólíklegt að aðdá- endur þeirrar myndar eigi eftir að hafa gaman af þessari bók. Snæbjörn hefur sjálfur lifað og hrærst í tónlistarheiminum um árabil og ekki fjarri lesandanum að álykta að hann byggi persónur og atvik á raunveruleika sem oft er lygi- legri en skáldskapur. Textinn er lipur og mjög fyndinn á köflum, óþægilegur á öðrum. Bókin kinkar kolli til óreiðu- kennds galsans í gróteskusögum miðalda, lesandanum er hvergi hlíft, hvorki við háðulegum kynlífslýs- ingum né líkamsvessum og -úrgangi sem blandast, eða ekki, í söguþráðinn. Sjónarhorn bókarinnar fylgir Sævari, þó einstaka sinnum fáum við skoðanir annarra á bröltinu í honum, og það er með hans augum sem við sjáum aðrar persónur, til dæmis kvenpersónurnar sem eru allar frekar tvívíðar og fyrst og fremst dæmdar út frá útliti og gagn- semi. Snæbjörn skýtur föstum skotum á dægurmenningu samtímans og eirir engu og engum í hressilegum fíflaskap og háði, síst af öllu aðalpersónunni. Miðað við það vald sem Snæbjörn hefur sýnt á stíl og textagerð er engin ástæða til að telja að hann hafi ætlað sér að skrifa annað en einmitt þessa bók. Ég hefði viljað sjá meira afgerandi afstöðu sögumanns gegn sjónarhorni Sævars sem er á köflum nánast eins og handbók í gauramenningu, til dæmis er tekið furðulétt á því þegar Sævar verður fyrir grófu kynferðisofbeldi og hrelliklámi og það látið falla að ann- arri grótesku textans. Snæbjörn hefur sýnt það ítrekað að hann getur tekið harða afstöðu þegar honum sýnist svo og það hefði verið gaman að sjá hann beita sér betur á þeim vettvangi í þess- ari bók. En miðað við afköst hans á rit- vellinum má telja fullvíst að það gefist fleiri tækifæri. brynhildur björnsdóttir Samantekt: Karnivalísk galsasaga fyrir fullorðna sem hefði þolað beittari afstöðu í skrifum. Groddalegur galsi Jeremy Joseph er fæddur í Durban í Suður-afríku árið 1978. Hann byrjaði að spila á orgel níu ára gamall. Við fjórtán ára aldur fékk hann sína fyrstu stöðu sem orgelleikari við Dómkirkjuna í Durban. Hann ernú búsettur í Vínar- borg þar sem hann er orgelleikari við hina þekktu kirkju Hofburg- kapelle. Hann er semballeikari Wiener akademie hljómsveitar- innar auk þess að leika reglulega með mörgum af helstu hljóm- sveitum austurríkis og víðar. einnig kennir hann við universi- tät für musik und Darstell ende kunst í Vínarborg. orgelleikarinn Jeremy Joseph kammersveit reykjavíkur bauð hinum virta suðurafríska semballeikara, Jer­ emy Joseph, hingað frá Vínarborg að spila á jólatónleikunum í áskirkju á morgun og efnisskrá tónleikanna er sér­ staklega metnaðarfull og glæsileg. FALLEG GLÖS GLEÐJA AUGAÐ Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900 Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Semballinn verður í forgrunni 1 9 . D e S e m B e r 2 0 1 5 L a u G a r D a G u r98 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.