Fréttablaðið - 19.12.2015, Síða 160
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Pawels
Bartoszek
Bakþankar
Tilkynning frá Póstinum: „Flugpósti til landa í Evrópu þarf að skila í síðasta lagi 16.
desember.“ Já, þannig hljómaði
auglýsing frá pósthúsinu á Akur-
eyri sem birtist í blaði þar í bæ árið
1987. Það ár var aðfangadagur á
fimmtudegi, eins og í ár. En hver var
þá seinasti skiladagur póstkorta
í ár? Jú, ef póstkort áttu að berast
til Evrópu fyrir jól (með A-pósti)
þurfti líka að póstleggja þau fyrir
16. desember.
Auglýstur flutningshraði póstsins
til Evrópu hefur sem sagt ekki
batnað á þrjátíu árum. En ókei, er
póstþjónustan þá ekki allavega
orðin hagkvæmari og skilvirkari?
Það er búið að loka öllum þessum
pósthúsum, taka niður alla þessa
póstkassa, pakkar eru varla keyrðir
heim til fólks lengur. Það hlýtur
að vera að öll þessi hagræðing hafi
skilað sér til neytenda? Er það ekki?
Nei, ekki alveg. Skömmu eftir
myntbreytinguna árið 1981
kostaði ódýrasta bréfið til Evrópu
2,2 krónur. Síðan þá hafa verð í
landinu um það bil þrjátíufaldast.
Það ætti að kosta 64 krónur að
senda bréf til Evrópu. En verðið er
165 krónur. Og það er B-pósturinn,
vel að merkja, og þeim póstkortum
þurfti að skila fyrir 10. desember.
Á þessum minnstu sendingum
er fyrirtækið Íslandspóstur með
einokun. Hluti markaðarins er
raunar frjáls, aðrir en Íslandspóstur
mega dreifa pökkum og auglýs-
ingabæklingum, en þetta er samt
hamlandi. Svona eins og ef bara ein
búð mætti selja mjólk og sú búð
seldi allt annað líka. Auðvitað færu
flestir í þá búð.
Einokunin var sögð nauðsynleg
til að tryggja stöðuga þjónustu og
sanngjörn verð. Þjónustan hefur
ekki batnað. Verðið hefur þre-
faldast. Það er kominn tími á sam-
keppni.
Engar framfarir
á 30 árum
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
sími: 566 6666
Jólagjöfin í ár
Taska fylgir með
Phantom 3
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka