Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 6
Ferðalagi fagnað
Vinicius, lukkudýr Ólympíuleikanna í Ríó sem fram fara síðar í ár, gleður gesti á viðburði sem fram fór í gær til kynningar á ferðalagi Ólympíu
kyndilsins um Brasilíu í aðdraganda leikanna. Hlaupið hefst 3. maí og verða sótt heim 329 bæir og borgir í öllum héruðum Brasilíu. Fréttablaðið/EPa
DANMÖRK Formaður heilbrigðis-
nefndar danska þingsins, Liselott
Blixt sem er þingmaður Danska
þjóðarflokksins, vonar að læknar
geti í nánustu framtíð ávísað menn-
ingu í stað lyfja.
Kristilega dagblaðið hefur það
eftir yfirlækninum Per Thorgaard
að píanókonsert eftir Mozart eða
önnur róandi tónlist geti í vissum
tilfellum gert sama gagn fyrir sjúk-
ling og verkjastillandi lyf, eins og til
dæmis tvær töflur af Panodil.
Danski þjóðarflokkurinn stóð
fyrir kynningu í þinginu á ágæti
menningar fyrir sjúklinga. Bæði
danskir og erlendir læknar greindu
frá reynslu sinni. – ibs
Ávísi menningu í stað lyfja
KjARAMál Félagsmenn í stéttar-
félögum Alþýðusambands Íslands
(ASÍ) samþykktu nýja kjarasamn-
inga við Samtök atvinnulífsins (SA)
með miklum meirihluta.
Atkvæðagreiðslu kjörgengra með-
lima ASÍ lauk á hádegi í gær. Alls
voru 75.635 manns á kjörskrá en
10.653 tóku þátt, eða fjórtán pró-
sent.
Rúm níutíu prósent þátttakenda
kusu með nýjum samningum, alls
9.724. Þá kusu 832 á móti, eða tæp
átta prósent. Tæpt eitt prósent þátt-
takenda skilaði auðu í atkvæða-
greiðslunni.
Samkvæmt nýjum samningum
hækka laun um 6,2 prósent frá og
með 1. janúar síðastliðnum í stað
5,5 prósenta 1. maí næstkomandi.
Í stað þriggja prósenta hækkunar
launa 1. maí á næsta ári hækka laun
um 4,5 prósent og í stað tveggja pró-
senta hækkunar 1. maí 2018 hækka
laun um þrjú prósent.
Atkvæðagreiðsla fór fram meðal
aðildarfyrirtækja SA dagana 12.-19.
febrúar og voru þá um 49 prósent
atkvæða nýtt. Samningurinn var
samþykktur með um 79 prósent-
um greiddra atkvæða. Þá voru um
tólf prósent atkvæða greidd gegn
honum en um níu prósent atkvæða
voru auð.
Í tilkynningu frá SA kemur fram
að sum aðildarfyrirtæki geti ekki
hrint í framkvæmd launabreyting-
um um þessi mánaðamót þar sem
þau hafi nú þegar lokið útreikningi
launa fyrir febrúarmánuð. Það
verður því gert í mars í þeim til-
vikum. – þea
Hærri laun
bíða fram í
marsmánuð
DANMÖRK Líf dönsku ríkisstjórnar-
innar hékk í gær á bláþræði eftir
að skyndilega brutust út deilur um
athafnir Evu Kjer Hansen, umhverf-
is- og matvælaráðherra.
Óljóst var í gærkvöld hvort
stjórnin myndi lifa af þessa eld-
raun, en Lars Løkke Rasmussen
forsætisráðherra kallaði í gær for-
menn hinna hægriflokkanna á
sinn fund og hótaði að boða til
þingkosninga, næðist ekki sam-
komulag.
Fundi formannanna lauk án
niður stöðu í gær, en Løkke Rasmus-
sen ætlar að halda áfram að reyna
að ná sáttum á þinginu í dag, þegar
landbúnaðarfrumvarp stjórnarinn-
ar verður borið undir þingið.
Málið komst í hámæli á þriðju-
dag þegar Íhaldsflokkurinn, sem
hefur stutt minnihlutastjórn Ven-
stre-flokksins, sagðist ekki lengur
bera traust til Evu Kjer Hansen.
Lars Løkke Rasmussen forsætis-
ráðherra, sem jafnframt er leiðtogi
Venstre-flokksins, brást við af fullri
hörku og hótaði að boða til þing-
kosninga tækist ekki sátt.
Søren Pape, sem er leiðtogi
Íhaldsflokksins, gagnrýnir Evu Kjer
Hansen fyrir að hafa gefið þinginu
villandi upplýsingar í tengslum við
landbúnaðarfrumvarpið. Ágrein-
ingurinn snýst um það hvort til-
tekin efnisatriði í frumvarpinu
muni reynast umhverfinu skaðleg.
Leiðtogar hinna hægriflokkanna,
Danska þjóðarflokksins og Frjáls-
lynda bandalagsins, taka þó ekki
undir kröfur Papes um afsögn Kjer
Hansen. Þeir Kristian Thulesen
Dahl og Anders Samuelsen segja
Pape hafa brugðist allt of hart við,
þótt ágreiningur sé um efnistatriði
frumvarpsins.
Pape sagðist hins vegar síðdegis
í gær standa fastur á því að Kjer
Hansen þyrfti að víkja úr embætti,
jafnvel þótt breytingar yrðu gerðar
á efnisatriðum frumvarpsins í með-
ferð þingsins í dag.
„Ég hef sagt það allan tímann að
þetta snúist um trúnaðartraust,
sem ekki er til staðar,“ er haft eftir
Pape á vefsíðu dagblaðsins Politi-
ken. „Þetta snýst ekki um embætti
eða tiltekið umráðasvið, heldur
snýst þetta um einstakling.“
Pape á töluvert á hættu, fari leik-
ar svo að Løkke Rasmussen boði
til þingkosninga. Í síðustu kosn-
ingum fékk Íhaldsflokkur Papes
ekki nema 3,4 prósent atkvæða, og
gæti átt á hættu að detta alveg út af
þingi. gudsteinn@frettabladid.is
Uppnám innan
dönsku stjórnarinnar
Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hótaði í gær stjórnarslit-
um næðist ekki sátt um Evu Kjer Hansen sem umhverfis- og matvælaráðherra í
minnihlutastjórn Venstre-flokksins. Formenn flokka funduðu síðdegis í gær.
Eva Kjer Hansen, hægra megin á myndinni, í danska þinghúsinu í gær. tekist er á
um skipan hennar í embætti ráðherra. NordicPHotos/aFP
lars løkke
rasmussen,
forsætisráðherra
danmerkur og
formaður
Venstre
2 5 . f e b R ú A R 2 0 1 6 f I M M T U D A G U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A b l A ð I ð