Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 28

Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 28
Antonio Berardi er uppalinn á Eng- landi en á ættir að rekja til Sikil- eyjar. Hann var alltaf ákveðinn í að verða hönnuður. Antonio nam við hinn virta skóla Central Lond- on Saint Martins College of Art & Design en vann jafnframt sem að- stoðarmaður Johns Galliano. Hans eigin fatalína kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1995 og vakti mikla athygli. Fyrirsætur hans, meðal annars söngkonan Kylie Min ogue, voru í skóm sem hann- aðir voru af Manolo Blahnik sem síðar varð heimskunnur, sérstak- lega eftir að sjónvarpsþættirnir Sex and the City voru sýndir á ár- unum 1998-2004. Á tímabili hann- aði Antonio einnig undir ítalska merkinu Ruffo Research. Antonio Berardi hefur hann- að kjóla á margar helstu stjörn- ur nútímans. Má þar nefna Nicole Kidman, Cate Blanchett, Victo- riu Beckham, Megan Fox, Evu Mendes, Amy Adams, Madonnu, Anne Hathaway, Zoe Saldana, Beyoncé, Diane Kruger, Kate Hud- son og Rosie Huntington Whitely. Frægasti kjóll Antonios Ber- ardi er svartur og hvítur kjóll sem Gwyneth Paltrow klæddist við frumsýningu myndarinnar Two Lovers árið 2008. Kjóllinn var valinn sá glæsilegasti árið 2009 af tímaritinu Harper og hönnuð- urinn fékk mikið hrós frá helstu tískulöggum heimsins. Hann hefur stundum síðan verið kallaður kon- ungur kjólanna. Konungur Kjólanna Breski tískuhönnuðurinn Antonio Berardi er helst frægur fyrir kjóla sína sem meðal annarra Gwyneth Paltrow hefur skartað. Antonio þykir hafa gott auga fyrir kvenlegum elegans. Hann sýnir hönnun sína á tískuviku í Lundúnum sem nú stendur yfir. NÝ SENDING RÝMINGARSALA af eldri vöru 50% - 70% afsláttur Skipholti 29b • S. 551 0770 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r4 f ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.