Fréttablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 36
Ég hallaðist að
lífrænum vörum enda er
manni ekki sama um
hvað maður setur ofan í
sig eða á sig.
Hafdís Jónsdóttir
Einstök tækni gerir kremunum
frá Novexpert kleift að ná djúpt
inn í húðina og byggja hana upp
innan frá og hægja þannig á öldr-
unarferli húðarinnar. „Árangurinn
er sá að sjáanlega dregur úr línum
á skömmum tíma,“ segir Margrét
Friðriksdóttir viðskiptastjóri hjá
Heilsu ehf.
C-vítamín línan
„Verðlauna C-vítamín boosterinn
er stjörnuvaran í þessari flottu
línu. Booster C-vítamín er ein öfl-
ugasta vara sinna tegundar. C-vít-
amínið er 25% af innihaldi hennar
en það veitir húðinni ljóma og lýsir
upp litabletti og ör,“ segir Margrét
Hún segir húðina öðlast enn
meiri orku og jafnvægi þar sem
öflug efnasambönd styrkja húðina
og veita henni samstundis ljóma og
geislandi yfirbragð.
Fæst í öllum verslunum Lyfju og er
núna á sérstökum 20% afmælis-
afslætti
Dregur sjáanlega úr línum
Novexpert er frönsk húðlína hönnuð af fjórum háttvirtum vísindamönnum í húðvörugeiranum sem hafa sérhæft sig í húðlækningum.
Vörurnar innihalda engin óæskileg efni þar sem markmiðið er 100 prósent öryggi ásamt því að ná 100 prósent árangri.
Novexpert C-vítamín boosterinn er fyrir konur á öllum aldri.
Engir töfrar –
aðEins vísindi
C-vítamín vörulínan saman-
stendur af
l Booster – notist kvölds og
morgna með eða án andlits-
krems. Hentar öllum húð-
gerðum.
l Orkugefandi augnkremi –
veitir lyftingu og fyllingu.
l 2in1 maska (exfoliator) –
fjarlægir dauðar húðfrum-
um ásamt því að veita góða
djúphreinsun.
l Hreinsifroðu – ný vara sem
fjarlægir farða á mildan en
áhrifaríkan hátt ásamt því
að veita fallegan ljóma.
l Næturkremi – örvar frumu-
endurnýjun húðarinnar.
Notist á hverju kvöldi til að
tryggja áhrifaríka meðferð.
Hentar öllum húðgerðum.
Inniheldur engin:
l Rotvarnarefni
l Paraben
l Silicon
l Steinefnaolíu
l Engin efni úr dýraafurðum
CollagEn örvun
100
75
50
25
0
+ 69%
+ 33%
N
ov
ex
pe
rt
st
ab
ili
se
d
V
it
C
C
on
ve
nt
io
na
l
cl
as
si
ca
l V
it
C
„Face, Body & Home er lífræn
snyrtivöru- og heimilislína sem
framleidd er sérstaklega fyrir
Laugar Spa. Hún er umhverfis-
væn, án allra aukefna og hentar
báðum kynjum,“ útskýrir Hafdís
Jónsdóttir, eigandi World Class.
Dísa segist lengi hafa gengið
með hugmyndina að eigin línu í
maganum og hafði ákveðnar hug-
myndir um hvernig hún yrði sam-
sett. Línan kom á markaðinn fyrir
ári og hefur slegið í gegn.
„Ég hallaðist að lífrænum
vörum enda er manni ekki sama
um hvað maður setur ofan í sig eða
á sig. Einnig er ég mikill dýravin-
ur og því var mikilvægt að vörurn-
ar væru ekki prófaðar á dýrum,“
útskýrir Dísa.
Vörurnar eru framleiddar af
þýsku fyrirtæki með starfsemi
við Dauðahafið. Við hlið verk-
smiðjunnar er lífrænn búgarður
þar sem allt hráefni er ræktað og
handtínt en engar vélar koma að
vinnsluferlinu, hvorki við fram-
leiðslu né pakkningu.
„Eins fannst mér mikilvægt að
línan væri fyrir bæði kyn, enda er
maðurinn minn yfirleitt kominn
hálfur ofan í snyrtitöskuna mína.
Það er mjög handhægt að hafa eitt
sett fyrir okkur bæði,“ segir Dísa.
Andlitslínan er ilmefnalaus og
samanstendur af andlitshreinsi,
serum, andlitskremi, augnkremi,
leirmaska og rakamaska. Í leir-
maskanum er einnig skrúbbur.
Líkamslínan kemur í tveimur ilm-
tegundum, Lemongrass og Sweet
amber, og samanstendur af salt-
skrúbbi, olíu og húðmjólk. Þá
saman stendur heimilislínan af
tveimur tegundum af herbergis-
ilmi og kerti sem er þó ekki úr
vaxi heldur hreinni olíu. Einung-
is þarf að kveikja á kertinu í tíu
mínútur til að allt fari að ilma, þá
má slökkva og nota heita olíuna á
þurra bletti á húð, axlir eða fætur.
„Línan hefur fengið frábær-
ar móttökur, bæði hjá körlum og
konum,“ segir Dísa. „Strákarnir
eru sérstaklega duglegir að nota
andlitshreinsinn og serumið eftir
rakstur og þá kaupir fólk vörurn-
ar fyrir börn með exem og þurra
húð. Mér finnst mikill kostur hve
mikið pláss sparast á baðherberg-
inu. Til dæmis er gott til að grípa
saltskrúbbinn með sér í ræktina til
að nota í sturtunni, þá þarf ekki að
taka með sér krem eða bera á sig
olíu á eftir því það er olía í skrúbb-
inum.“
Vörurnar fást eingöngu í stöðv-
um World Class og í netverslun
worldclass.is
Húð- og heimilislínan slær í gegn
Face, Body & Home lína Lauga Spa hefur fengið góðar viðtökur síðan hún kom á markaðinn fyrir ári. Það er ekki sama hvað fólk setur ofan
í sig eða á, segir Dísa í World Class en línan er lífræn.
Face Body & Home lína World Class hefur slegið í gegn. myND/aNtoN BrINk
margrét Friðriksdóttir, viðskipta-
stjóri hjá Heilsu. myND/StEFÁN
HEILSa og FEgurð kynningarblað
25. febrúar 20166